Morgunblaðið - 11.12.2020, Qupperneq 16
16 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. DESEMBER 2020
IB ehf | Fossnes A | 800 Selfoss | ib.is
Nánari upplýsingar ib.is
Ábyrgð og þjónusta fylgir öllum nýjum bílum frá IB
Bílar á lager
Sími 4 80 80 80
Litur: Svartur/ Dark Ash Walnut
að innan. 2020 GMC Denali,
magnaðar breytingar t.d. 10 gíra
skipting, auto track millikassi,
multipro opnun á afturhlera,
flottasta myndavélakerfið á
markaðnum ásamt mörgu fleirra.
5th wheel í palli.
VERÐ
12.990.000 m.vsk
ATH. ekki „verð frá“
2020 GMC Denali Ultimate 2500
Litur: Silver/ Grár að innan.
6,7L Diesel, 450 Hö, 925 ft of
torque, 4X4, 10-speed Automatic
transmission. 6 manna.
Heithúðaður pallur.
VERÐ
11.290.000 m.vsk
ATH. ekki „verð frá“
2020 Ford F-350 XLT 6-manna
Litur: Carbon Black/ Walnut að
innan. 2020 GMC Denali, magn-
aðar breytingar t.d. 10 gíra skipting,
auto track millikassi, multipro
opnun á afturhlera, flottasta
myndavélakerfið á markaðnum
ásamt mörgu fleira. Samlitaðir
brettakantar, gúmmimottur í húsi
og palli.
VERÐ
13.190.000 m.vsk
2020 GMC Denali Ultimate 3500
ATH. ekki „verð frá“
Ágúst Ásgeirsson
agas@mbl.is
Rúmlega 3.000 dauðsföll í Bandaríkj-
unum í fyrradag voru rakin til kór-
ónuveirunnar. Er það mesta mann-
tjón af völdum veirunnar hvar í landi
sem er á sólarhring, frá í apríl.
Í Bretlandi hægði á efnahagsbata í
október en hann nam 0,4% í mán-
uðinum. Búist er við að samdrátt-
urinn mælist meiri í nóvember.
Kanadamenn hafa tekið sér stöðu
við hlið Breta og heimilað notkun
Pfizer-BioNTech-bóluefnisins gegn
kórónuveirunni. Talið er að Banda-
ríkjamenn færist nær leyfisveitingu
fyrir bóluefni eftir fund sérfræð-
ingahóps Matvæla- og lyfjaeftirlits-
ins (FDA) sem ráðgerður var í gær.
Heilbrigðisráðherra Bandaríkjanna,
Alex Azar, sagði að leyfi fyrir notkun
efnisins yrði væntanlega veitt eftir
helgi.
Samkvæmt bókhaldi fréttaveit-
unnar AFP hefur kórónuveiran
kostað að minnsta kosti 1.570.398
manns lífið frá því hennar varð fyrst
vart í Kína, í desember fyrir ári.
Verst hafa Bandaríkin orðið úti með
289.450 dauðsföll, í öðru sæti er
Brasilía með 178.995, Indland með
141.772 og Mexíkó með 111,655. Alls
hafa 68,9 milljónir manna sýkst af
veirunni.
Biðlistar lengjast
Sjúklingar sem beðið hafa eitt ár
eða lengur eftir venjulegri sjúkra-
húsaþjónustu séu nú 100 sinnum
fleiri en áður en kórónufaraldurinn
fór af stað, samkvæmt gögnum
breska heilbrigðiskerfisins.
Líklegt er að dauðsföllum af völd-
um veirunnar fjölgi á næstu vikum í
Þýskalandi vegna aukins slagkrafts
veirunnar í landinu og fjölgunar sýk-
inga, að sögn forstjóra Robert Koch-
stofnunarinnar. „Staðan er mjög al-
varleg og hefur versnað síðustu vik-
una. Við erum enn að sjá fjölgun
sýkinga,“ sagði hann í gær. Fjölgun í
Thüringen, Brandenburg og Sax-
landi-Anhalt væri áhyggjuefni. Þjóð-
verjum hefur hingað til miðað betur í
stríðinu gegn kórónuveirunni en á
hefur hallað að undanförnu og voru
til að mynda tilkynnt 440 dauðsföll á
einum sólarhring í gær. Alls hafa
20.372 manns týnt lífi til vírussins í
Þýskalandi.
Ekkert lát er á aflýsingu stórra
íþróttaviðburða. Alþjóðafrjáls-
íþróttasambandið frestaði í gær HM
innanhúss, sem ráðgert var í Nanjing
í Kína í mars nk., fram í mars 2023.
Sæfarendur komast hvergi
Um 400.000 sæfarendur með út-
runna kjarasamninga eru strand á
höfum úti þar sem ekki er hægt að
koma þeim til síns heima af völdum
kórónuveirunnar, segir Alþjóðasigl-
ingamálastofnunin (IMO). Sumir
þessara hafa starfað úti á sjó og ekki
komið í land í rúmt hálft annað ár,
eða miklu lengur en 11 mánaða há-
mark sem er á óslitnum starfstíma á
sjó. „Því miður höfum við horft upp á
mannréttindi sæfarenda, fiskimanna
og annarra starfsstétta á sjó stefnt í
háska í kreppunni. Þetta er klárt
mannréttindamál og hefur lagst
þungt á viðkomandi,“ sagði fram-
kvæmdastjóri IMO í gær. Þá eru
hundruð þúsunda sæfarenda föst
heima fyrir og komast ekki til skips
og geta því ekki séð fjölskyldum sín-
um farborða.
Tvö af stærstu flugfélögum
Bandaríkjanna, Delta Airlines og
United Airlines, hafa sett rúmlega
eitt þúsund manns á bannlista fyrir
að virða ekki reglur um notkun and-
litsgrímna í flugi.
Metfjöldi látinna í Bandaríkjunum
Líklegt er að dauðsföllum af völdum kórónuveirunnar fjölgi á næstu vikum í Þýskalandi vegna
aukins slagkrafts veirunnar Kanadamenn hafa heimilað notkun Pfizer-BioNTech-bóluefnisins
AFP
Bóluefnið Forstjórar flutningaflugfélaga skýrðu samgöngunefnd Bandaríkjaþings frá því í gær hvernig þeir sæju
fyrir sér fjöldadreifingu bóluefna. Á myndinni heldur Wesley Wheeler frá United Parcel Service á lyfjaglasi.
Talið er að þrír hvalir sem til sást
undan Mexíkóströndum tilheyri áð-
ur óþekktri hvalategund. Rannsókn-
armenn fundu hvalina þegar þeir
voru að fylgjast með ferðum nefju-
hvala skammt frá San Benito-eyjum
í nýliðnum nóvember, um 500 km
sunnan landamæra Bandaríkjanna.
Jay Barlow, sjávardýralíffræð-
ingur við Scripps-hafrannsókna-
stofnunina í San Diego í Kaliforníu í
Bandaríkjunum, sagði við BBC að
þeir hefðu ekki áttað sig á fundinum
fyrr en við skoðun ljósmynda af
hvölunum nokkrum dögum seinna.
Bíða vísindamennirnir niðurstöðu
DNA-greiningar sjávarsýnishorna
sem gætu varðveitt skinnfrumur
sem staðfest gætu hvort um nýja
hvalategund sé að ræða. Sé svo yrði
þetta 24. þekkta tegund nefjuhvala.
Rannsóknarhópurinn hélt út á sjó
til að reyna að finna út hvaða teg-
und hvala það væri sem gefið hafði
frá sér áður óþekkt hljóð, er fram
komu á hljóðupptökum úr fyrri leið-
angri að San Benito-eyjum. Náðust
myndir og myndbandsupptökur af
hvölunum óþekktu og með
neðansjávarmíkrófónum náðust
upptökur af hljóðmerkjum
hvalanna.
Vísindamennirnir Gustavo Card-
enas Hinojosa, Jay Barlow og Eliza-
beth Henderson kveðast „tiltölulega
sannfærð“ um að dýrin heyri nýrri
hvalategund til.
Ný hvalategund fundin
AFP
Hvalur Áður óþekkt hvalahljóð
leiddu vísindamennina á sporið.
Námu áður
óþekkt hvalahljóð
„Mjög stórar gjár eru enn í vegi
samninga Breta og Evrópusam-
bandsins (ESB) um samskipti eftir
komandi áramót,“ sagði forsætis-
ráðuneytið í London í gær.
Í þriggja stunda tilraun Boris
Johnsons forsætisráðherra Bret-
lands og Ursulu von der Leyen for-
seta framkvæmdastjórnar ESB yfir
fiskrétti í Brussel í fyrrakvöld varð
þó að samkomulagi að setja samn-
ingaviðræðurnar aftur í gang í gær.
Von der Leyen endurspeglaði
þetta viðhorf Downingstrætis 10 er
hún sagði í gær, að „mikið bæri í
milli“. Gáfu þau Johnson samninga-
mönnum sínum þau fyrirmæli að
klára samninga í síðasta lagi kom-
andi sunnudag, ellegar slíta þeim.
Settust samningamenn aðila aftur að
samningaborðinu síðdegis í gær.
Í fréttaskýringu á vefsíðu BBC
sagði að kvöldverðarviðræðurnar
hefðu „greinilega gengið illa“ og að
nú stæðu Bretar nær því en áður að
fara samningslausir út úr aðlögunar-
tímabili útgöngunnar um áramótin.
Dominic Raab utanríkisráðherra
lýsti þeirri skoðun sinni að „ólíklegt“
væri að viðræðurnar yrðu fram-
lengdar lengur en til sunnudags-
kvölds. Talsmaður forsætisráð-
herrans útilokaði það ekki með því
að segja að leiðtogarnir tveir vildu fá
„einarðlega ákvörðun“ á sunnudag
um framtíð viðræðnanna.
Enn ginnungagap í við-
ræðum Bretlands og ESB
Helgin verður
afdrifarík fyrir
Brexit-samninga
AFP
Beðið eftir tollafgreiðslu Flutningabílar bíða í röðum eftir tollafgreiðslu í
höfninni í Dover í Englandi á leið til evrópska meginlandsins.