Morgunblaðið - 11.12.2020, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 11.12.2020, Qupperneq 19
19 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. DESEMBER 2020 Augnablikið Starfsmenn sprengjusveitar Landhelgisgæslunnar skutu þremur púðurskotum úr fallbyssu í Reykjavíkurhöfn í vikunni, Halldóri B. Nellet skipherra til heiðurs, sem sigldi varðskip- inu Þór til hafnar í síðasta sinn. Halldór lætur nú af störfum hjá Gæslunni, eins og fram kom í Morgunblaðinu í gær. Myndin fangar sérstakt augnablik, á sekúndubroti, er eitt skotið reið af. Árni Sæberg Umræður um varn- ar- og öryggismál eru takmarkaðar hér á landi. Er það undar- legt miðað við hve áhuginn á þróun þessara mála í ná- grenni okkar eykst jafnt og þétt meðal stjórnmálamanna, sérfræðinga og fjöl- miðlamanna. Fyrir skömmu sendi norska ríkisstjórnin frá sér nýja hvítbók um norðurslóðir þar sem sér- staklega er áréttað að gjörbreyt- ing hafi orðið frá því að síðasta norska stefnuskjalið um þetta ná- grannasvæði okkar Íslendinga var birt árið 2011. Helsta breytingin snýr að hernaðarlega þættinum, það er stefnubreytingu Rússa með aukinni hervæðingu á öllum svið- um og þar með kjarnorkuhervæð- ingu á Kólaskaganum. Þögn hér á landi breytir engu um þessa þróun. Hún eykur að- eins hættu á að blekkingartrú verði rótfastari. Blekking um að sé setið auðum höndum „reddist þetta“ eða þróunin verði á annan veg hér en annars staðar. Umræður á NATO-þingi Nokkru áður en norska norður- slóðastefnan birtist hittust þing- menn frá 30 aðildarlöndum NATO á fjarfundi NATO-þingsins. Meðal viðmælenda þingmannanna var Jens Stoltenberg, framkvæmda- stjóri NATO. Hann sat fyrir svör- um og breski íhaldsþingmaðurinn Alec Shelbrooke beindi athygli Stoltenbergs og þingmannanna að norðurslóðum. Shelbrooke vék sérstaklega að framgöngu Rússa og Kínverja og hvernig hún sneri að NATO. Kín- verjar litu á sig sem nágranna norður- slóða. Þeir hefðu áform um silkileið í Norður-Íshafi og efndu til flotaæfinga á Eystrasalti. Hann sagði að kafbátaum- svif Rússa í Norður- Atlantshafi væru nú meiri en árið 1983. (Um þær mundir hófst endurnýjun alls búnaðar í Keflavíkur- stöðinni vegna út- þenslu Sovétmanna.) Áætlun Rússa um skipasmíðar væri þriðja stærsta í heimi, nú væri verið að endurvopna rússneska Norðurflotann, nýir ísbrjótar væru í smíðum og siglingar í norðri og auðlindanýting yrðu Rússum mikilvægari á næstu ára- tugum. Í september 2020 hefðu Bretar sýnt áhuga sinn á öryggi á norð- urslóðum í verki með því að stjórna fjölþjóðlegri flota- og flugsveit við æfingar á Barents- hafi. Svonefndur norðurhópur 12 ríkja lyti forystu Breta til að auka hernaðarlegt öryggi í norðri með virku varnarsamstarfi. Spurði hann Stoltenberg hver væru áform NATO í bráð og lengd til að gæta eigin strategískra hags- muna á þessu svæði. Hvernig ætl- aði NATO að hvetja aðildarríkin til að styrkja getu sína vegna nýrra norðlægra verkefna. Jens Stoltenberg svaraði að norðurslóðir skiptu mjög miklu fyrir NATO. Þær yrðu aðeins enn mikilvægari við stækkun íslausra hafsvæða og vegna aukinna hern- aðarumsvifa Rússa og vaxandi áhuga Kínverja. Það hefði jafnan verið litið á norðurslóðir sem lág- spennusvæði. Hann vildi að það yrði gert áfram sem yrði auðvitað erfiðara með vaxandi hernaðar- umsvifum. Hann vildi fylgja tví- þættri stefnu: samtals og hern- aðarlegrar staðfestu. NATO hefði þess vegna styrkt viðveru sína á norðurslóðum. Þess væri vænst að bandalagsríkin fylgdu þessu fram með tækjum og mannafla. Bretar hefðu þegar styrkt flota sinn og keypt kaf- bátaleitarvélar. Sömu sögu væri að segja um Dani, Norðmenn, Kanadamenn og Bandaríkjamenn. „Við verðum að vernda Norður- Atlantshaf, við verðum að verja alla kaplana“ sem Stoltenberg sagði að tryggðu nær öll stafræn samskipti milli ríkja. Þá yrði að efna til fleiri æfinga á borð við Trident Juncture-æfinguna árið 2018. Í fyrsta sinn á mörgum áratug- um væri nú haldið úti flugmóður- skipi á norðurhluta Atlantshafs. Flotar Breta og Bandaríkjamanna létu auk þess að sér kveða á ann- an hátt en áður. Unnið væri að gerð varnaráætlana á vegum NATO fyrir hvert eitt aðildarríki og sérstaklega væri litið til flota- mála í norðri. Ekki mætti gleyma því að NATO hefði komið á fót nýrri herstjórn í Norfolk í Virg- iníu-ríki í Bandaríkjunum sem sinnti verkefnum á Norður- Atlantshafi. Þar birtist einnig aukin áhersla NATO á Norður- Atlantshaf. Loftslag og öryggi Þessi orðaskipti um norður- slóðir eru skarpari en þau hafa verið á opinberum NATO- vettvangi um langt árabil. Um áratugur er síðan þáverandi ríkis- stjórn Kanada vildi ekki nein NATO-afskipti af norðurslóðum. Undanfarin ár má hins vegar greina ákveðna stigmögnun í orðalagi NATO um nauðsyn þess að auka styrk og viðveru undir merkjum bandalagsins í norðri. Jens Stoltenberg er sömu skoð- unar og norrænir varnarmálaráð- herrar sem vilja einnig að litið sé á norðurslóðir (e. Arctic) sem lág- spennusvæði. Í orðum allra nor- rænna ráðamanna um þetta má þó greina undirtón um að líklega versni þó ástandið. Norðurskautsráðið er sam- starfsvettvangur átta ríkja, nú undir formennsku Íslendinga. Þar er ekki fjallað um varnar- og ör- yggismál. Danskir fræðimenn hafa hreyft hugmynd um að kom- ið verði á fót óformlegum sam- ráðsvettvangi um arktísk öryggis- mál með þátttöku fleiri en ríkjanna átta. Í lok nóvember 2020 var lögð fram 67 bls. skýrsla, NATO 2030, sem hefur að geyma ábendingar 10 manna hóps sem starfaði á vegum Stoltenbergs í umboði ríkisoddvitafundar bandalagsins í desember 2019. Í kafla um loftslagsmál segir meðal annars að áréttað skuli af hálfu NATO að loftslagsbreyt- ingar hafi áhrif á öryggisumhverfi bandalagsins og að sjá verði til þess að sú staðreynd seti svip á strategísk stefnuskjöl. Þá segir: „NATO á að styrkja aðgerðir til ástandsmats á norðurslóðum og á Norðurskautssvæðinu (e. Arctic) og að því er varðar norð- urslóðir, sem falla undir ábyrgð- arsvæði SACEURs [Evrópuher- stjórnar NATO], ætti að móta strategíu sem nær til víðtækari fælingar og varnaráætlana. Gerð þessarar svæðisbundnu strategíu taki samstillt tillit til viðkvæmni og innsýnar NATO-aðildarríkj- anna sem eiga land að Norður- Íshafi. Í henni felist áætlanir til að tryggja siglingafrelsi í norður- höfum og á nálægum höfum þar á meðal Norður-Atlantshafi auk ákvæða um hvernig brugðist skuli við herskáum aðgerðum ríkja. Til að styðja við þessi áform verði flotastefna bandalagsins frá 2011 uppfærð svo að hún endurspegli nýjar ógnir við tengslin yfir Atl- antshaf og ósk NATO um að Ark- tik/norðurslóðasvæðið haldist sem lágspennusvæði.“ Þá segir einnig í þessum kafla framtíðarskýrslu NATO að lofts- lagsbreytingar móti áfram örygg- isumhverfi NATO. Þótt það sé einkum verkefni einstakra aðild- arríkja að hafa stjórn á útblæstri gegni NATO þar hlutverki vegna vaxandi þarfar fyrir ástandsmat, tímabærar viðvaranir og upplýs- ingaskipti. Leggur ráðgjafarhóp- urinn til að hugað verði að því að koma á fót öndvegissetri NATO um loftslag og öryggi. Í störfum setursins yrði lagt upp með reynslu NATO af því að fjalla um loftslagsbreytingar og aðrar ekki- hernaðarlegar ógnir eins og far- sóttir við úrvinnslu NATO- áætlana um viðnámsþrótt og áfallastjórnun, þar verði sérstök áhersla lögð á að styrkja orku- virki og fjarskiptavirki til að standast veðurálag. Þarna er vikið að borgaralegum öryggisþáttum sem snerta hags- muni okkar Íslendinga beint eins og sannaðist fyrir ári. Íslensk stjórnvöld ættu að láta sig þenn- an þátt sérstaklega varða í starfi NATO. Eftir Björn Bjarnason » Þessi orðaskipti um norðurslóðir eru skarpari en þau hafa verið á opinberum NATO-vettvangi um langt árabil. Björn Bjarnason Höfundur er fv. ráðherra. NATO lítur til norðurs

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.