Morgunblaðið - 11.12.2020, Síða 20

Morgunblaðið - 11.12.2020, Síða 20
20 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. DESEMBER 2020 jólagjöfina Gullbúðin er með Bankastræti 6 • Sími 551 8588 Snusdósir 6.900 56.900 44.900 27.500 26.900 82.900 65.300 63.000 84.500 5.900 14 kt 35.900 Demantar 84.900 5.500 mantur 8.500 De 2 Demantar 63.900 Demantar 69.900 8.900 15.500 5.900 19.900 TAILS skartgripirogur.is 4.900 11.400 8.900 Íslensk sveitarfélög þurfa samkvæmt lög- um að rækja marg- víslegar skyldur og hafa til þess ýmsa tekjustofna. Til við- bótar við lögbundin verkefni hafa sveitar- félögin heimild til að sinna ýmsu öðru. Í til- viki Reykjavíkur- borgar er það svo sannarlega raunin. Innan samstæðu borgarinnar, svokallaðs B-hluta, er að finna fyrir- tæki á borð við Faxaflóahafnir, Fé- lagsbústaði, Malbikunarstöðina Höfða hf., Orkuveitu Reykjavíkur, Strætó bs. og Sorpu bs. Innan Orku- veitu Reykjavíkur er síðan fjöldi dótturfélaga, þar á meðal Gagna- veita Reykjavíkur. Yfirlýst hlutverk hennar er „að veita íslenskum heim- ilum og fyrirtækjum aðgengi að há- gæða þjónustu á opnu aðgangsneti“. Þetta er í daglegu tali kallað net- tenging. Hvergi er fjallað um beinan rekst- ur netþjónustu í lögum um skyldur sveitarfélaga. Það er því ekki hlut- verk borgarinnar, né fyrirtækja í hennar eigu, að veita þá þjónustu. Ekki frekar en að borgin eigi að sjá borgurunum fyrir matskeið af lýsi á morgnana, eins hollt og það er nú samt. Borgin ætti því að huga að sölu Gagnaveitunnar við fyrsta tækifæri. Samhliða ætti borgin að losa sig við eignarhlut sinn í Sorpu. Sorp- hirða er víða boðin út á Íslandi og sérhæfð fyrirtæki bjóða þá þjónustu á samkeppn- ismarkaði, nema auð- vitað þar sem sveitarfé- lagið heldur uppi einok- unarstarfsemi. Sorpa hefur reynst eitt risa- stórt lóð um háls hins syndandi skattgreið- enda og gæti hvenær sem er orðið óbærilega þungt. Almennt má segja að því minni rekstur sem er á könnu hins opin- bera, því minni líkur eru á því að skatt- og útsvarsgreiðendur sitji uppi með risastóra reikninga eftir óráðsíu og mistök. Það er því áríð- andi að losna við rekstur eins og Gagnaveituna og Sorpu úr miðstýr- ingu ráðhússins. Fólk mun eftir sem áður geta keypt sér aðgang að „opnu aðgangsneti“ og losnað við sorpið um leið og það tekur inn sitt eigið lýsi. Skyldur og gæluverkefni Eftir Katrínu Atladóttur Katrín Atladóttir » Borgin ætti því að huga að sölu Gagna- veitunnar við fyrsta tækifæri. Samhliða ætti borgin að losa sig við eignarhlut sinn í Sorpu. Höfundur er borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins. katrin.atladottir@reykjavik.is Þann 27. október síðastliðinn var stutt spjall í Bítinu á Bylgjunni við for- mann Samtaka skatt- greiðenda vegna vild- arpunkta sem ríkis- starfsmenn hafa notið mörg síðastliðin ár samhliða kaupum á flugmiðum sem skatt- greiðendur greiða fyrir vegna ferða sem farnar eru vegna vinnu. Punktasöfnun þessi er hins vegar háð því að flugmið- inn sé keyptur af réttu flugfélagi og þá er viðkomandi verðlaunaður persónulega. Umræddir vildar- punktar eru verðmæti sem starfs- maðurinn nýtur persónulega og getur nýtt til greiðslu persónu- legra útgjalda. Með þessu fyr- irkomulagi er ljóst að ríkulegur hvati er til þess að horfa fram hjá því hver býður besta verðið á flug- miðanum. Í þessu kom fram að fjármálaráðuneytið hefur nú loks- ins eftir 10 ára baráttu lagt blátt bann við því að starfsmenn rík- isins njóti ávinnings persónulega af þessu tagi og tók reglugerð þess efnis gildi í byrjun október 2020. Þá kom fram í sama spjalli að enn ætti eftir að taka á málum sem varða greiðslur og skattalega meðhöndlun ferðadagpeninga. Þeir sem hafa eiga með höndum eftirlit með að skattaleg með- höndlun þessara dagpeninga sé lögum samkvæmt eru fyrst og fremst Skatturinn sem áður hét RSK, Skattrannsóknarstjóri og svo fjármálaráðuneytið sem emb- ætti þessi heyra und- ir. Og þá er ekki úr vegi að nefna í þessu tilliti Ríkisendur- skoðun sem hefur fullt leyfi til frum- kvæðisathugunar á málum sem ætla má að brjóti í bága við lög. En sá æðsti þar á bæ trónaði á toppi RSK í síðasta emb- ætti sínu og hreyfði engu í þessum málum frekar en fyrirrenn- arar hans. Í lögum um tekjuskatt er kveðið skýrt á um að dagpen- ingar séu frádráttarbærir frá tekjuskattsstofni að því marki sem nemur þeirri upphæð sem sannað er að sé vegna ferða á vegum at- vinnurekanda. Það er því ljóst að ekki er þörf á háskólagráðu í les- skilningi til að átta sig á því að sá hluti sem ekki er sannað að séu útgjöld af því tagi fellur utan við heimild til lækkunar á tekju- skattsstofni og ber því að greiða tekjuskatt af þeim hluta eins og venjulegum launum. Þeir sem helst njóta greiðslna af þessu tagi eru embættismenn ríkisins en svo eru flugliðar sem starfa um borð í íslenskum loftförum mjög fjöl- mennir í þessum hópi. Lengi vel var eina flugfélagið sem þetta snerti Flugleiðir sem síðar varð Icelandair. Skattyfirvöld hafa tek- ið einkafyrirtæki út fyrir sviga í þessu og mismuna nú eigendum þeirra og tengdum aðilum með þeim hætti að þeim einum er gert að færa sönnur á útgjöld sem þeir færa til frádráttar á móti fengnum dagpeningum. Allir sem einhvern tímann hafa fengið greidda dag- peninga vita að oftar en ekki eiga þeir góðan afgang eftir að hafa greitt útlagðan kostnað. Í áratugi hefur það svo verið í framkvæmd þannig að dagpeningarnir eru að fullu færðir til frádráttar frá tekjuskattsstofni án tillits til þess sem varið var í raun til greiðslu ferðakostnaðar. Flugliðar bera í langflestum tilfellum alls engan kostnað vegna ferða á vegum vinnuveitenda sinna en þar að auki eiga þeir samkvæmt reglum skattyfirvalda ekki rétt á þessum frádrætti þar sem eitt skilyrðið fyrir honum er að um sé að ræða ferðir utan venjulegs vinnustaðar. Hvar skyldi nú vera venjulegur vinnustaður flugliða annars staðar en um borð í loftförunum? Hvers vegna gilda þá ekki sömu reglur fyrir sjómenn, já og strætó- bílstjóra? Flugliði sem fer héðan að morgni í Evrópuflug kemur til baka seinnipart sama dags, rétt eins og strætóbílstjórinn sem mætir á sína morgunvakt. Mun- urinn er einna helst sá að fluglið- inn fær að borða í boði vinnuveit- anda á meðan strætóbílstjórinn þarf sjálfur að borga matinn ofan í sig. Í áratugi hafa þeir aðilar sem sinna eiga skatteftirliti í landinu sniðgengið starfsskyldur sínar og Eftir Örn Gunnlaugsson » Skattyfirvöld og fjármálaráðherra virðast líta á það sem dyggð að sniðganga starfsskyldur sínar hvað þennan málaflokk varðar. Örn Gunnlaugsson Starfsskyldurnar sniðgengnar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.