Morgunblaðið - 11.12.2020, Síða 21

Morgunblaðið - 11.12.2020, Síða 21
UMRÆÐAN 21 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. DESEMBER 2020 Glæsilegar jólagjafir Bankastræti 12, 101 Reykjavík – Sími 551 4007 www.skartgripirogur.is Glæsilegt úrval af úra- og skartgripaskrínum 15.900 Demantar 58.900 Demantar 65.900 82.900 69.250 54.900 41.900 39.900 31.000 22.900 39.900 8.900 5.900 19.900 Frá 4.990 1 18 kt demantar 258.000 18 kt demantar 185.000 18 kt demantar 165.000 Frá 14.900 21.500 10.500 liðið fyrrnefnd skattsvik þar sem þeir njóta sjálfir góðs af. Hér áð- ur þótti til hæfis að þeir sem ræktu ekki starfsskyldur sínar væru reknir og hýrudregnir en hjá skattyfirvöldum virðist vera litið svo á að vanræksla á starfs- skyldum hvað þennan málaflokk varðar sé einhvers konar dyggð. Það virðist ekki nokkur ærlegur yfirmaður hafa verið ráðinn til skattyfirvalda marga síðustu ára- tugi, einhver sem er svo hreinn og beinn að innrætið segi honum að svona skattsvik skuli ekki líð- ast, jafnvel þó hann sjálfur beri skarðan hlut frá borði við að upp- ræta svindlið. Í þessu sambandi er vert að hugsa til þess að eng- inn fjölmiðill virðist þora að kryfja þessi mál með ítarlegri umfjöllun. Væntanlega er það hvoru tveggja af ótta við að verða látnir líða fyrir slíkt hjá opinber- um aðilum og svo gætu einhverjar auglýsingatekjur horfið mislíki ákveðnu flugfélagi umfjöllunin. Þá er það alveg sérstaklega athug- unarvert að hópur fólks af rík- isfjölmiðlinum RÚV skuli vera tilbúið til að brölta þúsundir kíló- metra til Afríku til að fjalla um mútuhneyksli þar þegar sams konar mál blasa við nánast í næsta húsi. En þetta fólk fengi auðvitað enga dagpeninga greidda við gerð slíkrar umfjöllunar hér heima ólíkt því sem þetta fólk fékk vegna slíkrar umfjöllunar í fjarlægri heimsálfu þar sem mútugreiðslur eru í raun meitl- aðar í stein. Við skyldum þó ekki eiga slíkan stein hér Íslandi? Höfundur er fv. atvinnurekandi. orng05@simnet.is Staðan er snúin. Að samfélaginu steðjar vandi í efnahags- og fé- lagsmálum sem á rót að rekja til heimsfar- aldursins og viðbragð- anna við honum. Loks er útlit fyrir að unnt verði að hemja hann með bóluefnum á næsta ári, en þó varla að fullu fyrr en undir lok þess árs. Búsifjar hafa orðið miklar og verða enn. Stjórnvöld hafa að mörgu leyti staðið sig vel og fengið til þess svig- rúm á hinum pólitíska vettvangi. Ríkisstjórnin hefur hingað til notið fulls stuðnings stjórnarandstöðu til góðra verka og Alþingi greitt götu hennar. Það var sjálfsagt, einkum þegar hendur hennar voru fullar af flóknum, erfiðum og óvæntum við- fangsefnum. Því miður hefur rík- isstjórnin ekki kosið þá leið að hafa stjórnarandstöðuna með í ráðum í aðgerðum og útfærslu þeirra. Á vettvangi þingsins hefur þó tekist að færa margt til betri vegar með held- ur óvenjulegum hætti. Ríkisstjórnin hefur beitt sér þannig á Alþingi að hafna með öllu hugmyndum og tillögum sem koma ekki úr hennar ranni. Þetta gerir hún þrátt fyrir að hafa í stjórnar- sáttmála sínum lagt ríka áherslu á stöðu og hlutverk Alþingis og sam- vinnu við það. En ef henni hafa þóknast tillögur stjórnarandstöð- unnar hefur hún stundað að leggja þær sjálf fram í kjölfar synjunar, lítt breyttar og í eigin nafni. Þetta er óþarfur tvíverknaður. Tryggingagjald og áfengisgjald Viðreisn vill gera margt betur og öðru- vísi en ríkisstjórnin. Á það er ekki hlustað. Síðastliðinn fimmtudag felldi stjórnarmeiri- hlutinn allar tillögur Viðreisnar um breyt- ingar á einum af svo- kölluð bandormum sem fylgir fjárlögum. Fyrst ber að telja til- lögu um að á næsta ári myndu fyrirtæki sem ráða til sín fólk af atvinnuleysisskrá fá helm- ingsafslátt af tryggingagjaldi. Ekki þarf að fjölyrða um þörfina á að liðka fyrir atvinnusköpun til að draga úr atvinnuleysi og ömurlegum áhrifum þess. Þess í stað ákvað stjórnarmeirihlutinn að hækka sóknargjöld sérstaklega, taldi það brýnna. Þá var felld tillaga um að falla frá því að hækka áfengisgjald um 2,5%. Rekstrarerfiðleikar veitingageirans eru miklir, hvert sem litið er. Snar þáttur í rekstri flestra slíkra fyrir- tækja er sala áfengis. Hækkun áfengisgjalds mun enn auka á þessa erfiðleika og draga úr getu þeirra til þess að þrauka áfram næstu miss- eri. Á því þurfa þau ekki að halda. Nokkur stór skref Viðreisnar Fjárlög eru enn óafgreidd ásamt fjölda mála sem varða viðbrögð við faraldrinum. Mörg þeirra þarf að af- greiða fyrir áramót en það er ekki sama hvernig það verður gert. Enn munum við í Viðreisn láta á það reyna að koma að mikilvægum breytingum og viðbótum. Ferðaþjónustan og lista- og menningargeirinn hafa orðið fyrir meiri áföllum en flestir. Leggur Við- reisn því til að ný ferða-, lista- og menningargjöf verði veitt að fjár- hæð 15.000 kr. sem gildi fram á haust 2021. Með þessu verður í senn mikil örvun í þessum greinum og fólki gert auðveldara að ferðast og njóta listar og menningar af öllu tagi. Álag á félagsþjónustu sveitar- félaganna hefur vaxið mikið í far- aldrinum og á eftir að vaxa enn meira, ekki síst vegna mikils at- vinnuleysis. Þau þurfa aðstoð til þess að ráða við þetta stóra verk- efni. Viðreisn leggur til að sveitar- félögin fái tvo milljarða á næsta ári til þess að koma til móts við stórauk- inn kostnað. Nú reynir á að leggja grunninn að fjölbreyttara atvinnulífi sem gerir okkur betur í stakk búinn til að tak- ast á við sveiflur, skapa verðmæt störf og stórauka verðmætan út- flutning vöru og þjónustu. Rann- sóknir og þróun eru forsenda þess. Þess vegna leggur Viðreisn til að framlög til Tækniþróunarsjóðs, Rannsóknasjóðs og Innviðasjóðs verði aukin um tvo milljarða á næsta ári. Alþingi hefur þegar samþykkt frumvarp Viðreisnar um að sál- fræðimeðferð falli undir greiðslu- þátttökukerfi Sjúkratrygginga og verði þannig veitt á sömu forsendum og önnur heilbrigðisþjónusta. Fjár- magn til þessa verkefnis hefur hins vegar ekki enn verið tryggt og því verður lagt til að í fjárlögum næsta árs verði heimilt að veita allt að tveimur milljörðum til þessa verk- efnis. Öllum er ljóst að þessi þjón- usta er nauðsynlegur þáttur í að bæta lýðheilsu og líðan fjölda fólks. Orkuskipti og græn uppbygging eru nauðsynleg til þess að takast á við loftslagsvána. Þar eru fólgin mikil tækifæri til aukinnar nýtingar á innlendri hreinni orku með til- heyrandi gjaldeyrissparnaði. Þess vegna leggur Viðreisn til að upp- byggingu hleðslustöðva verði hraðað verulega. Viðreisn lagði einnig til að kolefn- isgjald og gjald vegna losunar gróð- urhúsalofttegunda yrði fært upp um 5% í stað 2,5%. Að mati Viðreisnar er það nauðsynlegt í baráttunni við loftslagsvá, til að stuðla enn frekar að orkuskiptum og draga úr kostn- aði vegna skuldbindinga okkar á þessum sviðum. Samhliða þessu var lögð áhersla á að ríkisstjórnin nýti fjármagnið sem gjöldin skila til að skapa hvata til aukinnar bindingar með endurheimt votlendis, skóg- rækt og nýsköpun á sviði bindingar í jarðvegi. Nei, sögðu stjórnarflokk- arnir. Það verður fróðlegt að sjá hvort ríkisstjórninni þóknist þessar lausn- ir nóg til að fallast á þær, eða hvort hún hafni þeim og geri að sínum eig- in. Viðnámi breytt í sókn Eftir Jón Steindór Valdimarsson » Leggur Viðreisn því til að ný ferða-, lista- og menningargjöf verði veitt að fjárhæð 15.000 kr. sem gildi fram á haust 2021. Jón Steindór Valdimarsson Höfundur er þingmaður Viðreisnar. jonv@althingi.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.