Morgunblaðið - 11.12.2020, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 11.12.2020, Qupperneq 28
28 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. DESEMBER 2020 ✝ SteingerðurÞorsteinsdóttir fæddist 2. febrúar 1926 á Vatnsleysu í Biskupstungum. Hún lést 28. nóv- ember 2020. Foreldrar Stein- gerðar voru Ágústa Jónsdóttir húsmóðir, f. 28. ágúst 1900, d. 25. september 1986, og Þorsteinn Sigurðsson bóndi á Vatnsleysu, f. 2. desember 1893, d. 11. október 1974. Systkini Steingerðar voru: Ingi- gerður, f. 1923, d. 1994; Sig- urður, f. 1924, d. 2020; Einar Geir, f. 1930, d. 2019; Kolbeinn, f. 1932, d. 2013; Þorsteinn Þór, Gunnarsdóttir. Guðni átti tvær dætur af fyrra hjónabandi, Steinunni, f. 10. júní 1937, d. 7. maí 2012, og Gerði Karitas, f. 10. júlí 1942. Barnabörn Stein- gerðar og Guðna eru sex, auk uppeldisdóttur Þorfinns, barna- barnabörn tólf og barnabarna- barnabörn tvö. Steingerður ólst upp á Vatnsleysu í Biskupstungum. Ung kona flutti hún á Selfoss og starfaði nokkur ár hjá Kaup- félagi Árnesinga. Steingerður og Guðni gengu í hjónaband árið 1949 og fluttu sama ár til Reykjavíkur. Stein- gerður starfaði á skrifstofu Mjólkursamsölunnar í Reykja- vík í um 40 ár. Útför Steingerðar fer fram frá Grafarvogskirkju í dag, 11. desember 2020. Stytt slóð á streymi: https://tinyurl.com/y6ep8w9q Virkan hlekk á streymi má nálgast á: https://www.mbl.is/andlat f. 1933, d. 1940; Bragi f. 1935, d. 2018; Sigríður, f. 1938, d. 2017; Við- ar, f. 1945. Eiginmaður Steingerðar var Guðni Þórarinn Þorfinnsson, f. 4. mars 1916, d. 13. febrúar 1966. Börn Steingerðar og Guðna eru: 1) Sig- ríður, f. 13. febrúar 1950, eig- inmaður hennar er Sigurður Jónsson. 2) Þorsteinn, f. 7. ágúst 1952, eiginkona hans er Brynhildur Ásgeirsdóttir. 3) Þorfinnur, f. 8. mars 1959, d. 15. febrúar 2015, eftirlifandi eiginkona hans er Bryndís J. Að minnast tengdamóður minn- ar, Steingerðar Þorsteinsdóttur, kallar fram margar minningar. Fyrstu kynni mín af Steingerði voru á Sauðárkróki. Hún kom að heimsækja dóttur sína, sem var þar að kenna, og að skoða dreng- inn sem hún var að slá sér upp með. Kynnin af Vatnsleysufjölskyld- unni leiddu í ljós að þar ríkti mikil samheldni. Allir svo nánir, alltaf að hittast og spyrja um líðan hvers og eins. Steingerður lék stórt hlut- verk í fjölskyldunni. Allir sögðu: „Hvað segir Steingerður eða Steina?“ ef verið var að ræða jóla- kaffi, fjölskylduferð, sem farnar voru í yfir 25 ár víða um landið, eða samveru um verslunarmannahelg- ina í sumarbústaðnum. Steingerð- ur var tengd öllum og væri skírn, afmæli, ferming eða gifting í fjöl- skyldunni var Steingerði boðið. Við að rifja upp persónuleika Steingerðar kemur fyrst upp í hugann hlýja og dugnaður. Hún var jú stjórnsöm og forvitin, en á jákvæðan hátt. Hún vildi vita allt um sína fjölskyldu, hvað væri að gerast og hvernig hver og einn hefði það og vildi að öllum gengi vel. Hún elskaði að vera með barnabörnum og barnabarnabörn- um sínum og var unun að sjá hana leika við þau. Hún gat, komin yfir níutíu árin, skriðið um með þeim á gólfinu og leikið við þau. Sigga og Steingerður voru mjög nánar, oft eins og systur. Í þau rúm 45 ár sem ég hef verið í fjöl- skyldunni hefur Steingerður verið mikið með okkur og börnunum okkar. Ferðast með okkur innanlands sem utan og má segja að við Sigga færum varla neitt nema að mamma væri með. Steingerður var mjög dugleg og handlagin hvort sem var við saumaskap, að prjóna eða flísa- leggja og mála. Þegar við vorum að taka heimilið okkar, í Þorlákshöfn, í gegn fyrir mörgum árum sá hún um að mála alla gluggana. Að vera ekkja frá 1966 kallaði á að hún þurfti að gera hlutina ein. Hún átti þó marga góða að, utan sem innan fjölskyldunnar, sem hjálpuðu henni. Mér er það minnisstætt þegar hún tók þá ákvörðun að selja íbúð- ina í Álheimunum og kaupa sér nýja íbúð í Frostafold 36. Húsið var í byggingu og fór hún margar ferðir til að fylgjast með og ræða við verktakann um breytingar á innra skipulagi og innréttingum sem hún vildi gera, eins og að sleppa veggjum og óskaði þá eftir afslætti af íbúðarverðinu og fékk hann. Meðan við fjölskyldan bjuggum í Danmörku kom hún nokkrum sinnum að heimsækja okkur og ferðaðist m.a. með okkur til Ítalíu. Hún kynntist dönskum vinum okk- ar og tengslin við þá héldust í mörg ár, því hún var svo ræktarsöm. Þegar við giftum okkur þá bak- aði hún til veislunnar, sá um allt, hélt ræðu og tók á móti bandarísku skiptinemafjölskyldu Siggu sem kom í giftinguna. Nú kveð ég tengdamóður mína og það verður skrýtið að hitta hana ekki á heimili hennar í Frostafoldinni, fá holl og góð ráð frá henni, vera saman um jólin, eiga stundir saman í sumar- húsinu, ferðast með henni og fylgj- ast með henni að leik við barna- barnabörnin. Hafðu þökk fyrir allt og allt. Sigurður Ósmann Jónsson. Elskuleg tengdamóðir mín, Steingerður, er látin. Mig langar að minnast hennar og þakka fyrir samveruna í 50 ár. Það hefur alla tíð verið mjög mikið og náið samband við ömmu Steingerði og Vatnsleysufjöl- skylduna og höfum við börnin mín og barnabörn notið þess að vera með fjölskyldunni í gegnum árin, á Vatnsleysu, í sumarbústaðnum og á ferðalögum um landið okkar. Fjölskylduferðirnar á sumrin þar sem margir ættliðir komu saman, allir jafn velkomnir og amma hrókur alls fagnaðar ásamt börn- unum sínum. Endalaust sungið og sagðar sögur og alltaf stutt í hlát- urinn. Það eru fallegar og skemmtilegar minningar sem við eigum. Hún elskaði börnin sín og heim- ilið sitt og vildi hvergi annars stað- ar vera og var partur af tilverunni að fara í heimsókn til ömmu Stein- gerðar sem fagnaði okkur öllum stórum og smáum. Þar var hlýtt og notalegt, kaffiilmur og margar sortir á borðum. Börnin lærðu ung að meta þessar heimsóknir enda þótti henni einstaklega vænt um litlu börnin. Við söknum ömmu en yljum okkur við góðar og fallegar minn- ingar. Hún var fróð og skemmtileg og á ég eftir að sakna þess að ræða saman um bækur sem við höfðum lesið, fréttirnar eða rifja upp gamla tíma. Hún var svo klár í kollinum og mundi allt og þó að sjónin og heyrnin hefðu daprast, fór ekkert framhjá henni. Hún hafði einlægan áhuga á því sem við vorum að gera og fylgdist með fólkinu okkar. Steingerður var flott og tignar- leg, bein í baki og létt á fæti. Alltaf fín og vel tilhöfð, sjálfstæð og stolt. Hún skilaði sínu vel, hún á dásam- legan hóp afkomenda en lífið tók líka frá henni, Guðna yndislegan eiginmann þegar hún var ung kona og yngsta soninn elsku Toffa fyrir nokkrum árum. Ég bið góðan Guð að geyma elsku Steingerði og veit að hún er umvafin ástvinum sínum á himnum. Takk fyrir allt og allt, elsku tengdó. Brynhildur Ásgeirsdóttir. Elsku fallega amma okkar. Það er óraunverulegt að hugsa til þess að þú sért farin og ein- manaleg tilhugsunin um að nú verðir þú ekki á fallega heimilinu þínu í Grafarvoginum, alltaf tilbú- in að taka á móti okkur barna- börnunum og barnabarnabörnun- um sem elskuðu þig svo heitt. Alveg fram að kveðjustund fylgd- ist þú svo vel með öllum þessum fjölda og vissir alltaf hvar við vor- um og hvað við vorum að bardúsa. Þú áttir einstakt og náið samband við hvert og eitt okkar og svo varstu auðvitað límið sem hélt þessum stóra hópi saman. Lang- ömmubörnin voru alltaf til í að kíkja til ömmu Steingerðar þar sem spjallað var og leikið með dót- ið sem þú áttir alltaf í dótakass- anum fína. Það er eiginlega ekki hægt að rifja upp heimsóknirnar okkar til þín án þess að minnast á kræsing- arnar sem alltaf biðu okkar. Heimalagaðar tertur, brauð og bollur, svo ekki sé minnst á pönnu- kökurnar þínar frægu. Pönnukök- urnar sem þú kenndir okkur að búa til svo börnin okkar fengju allt- af ömmupönnsur öðru hvoru. Við fyllumst þakklæti þegar við hugsum um þig og allar þær stund- ir sem við fengum að eiga með þér, og erum svo ótrúlega þakklátar fyrir að börnin okkar hafi fengið tækifæri til að kynnast þér og verja tíma með þér. Þú sýndir þeim alltaf svo mikinn áhuga og sást ekki sólina fyrir þeim. Og þau vissu það. Þau munu eiga það í hjartanu um ókomna tíð. Það er svo margs að minnast, elsku amma. Eins og ferðanna með þér í sumarbústaðinn árum saman. Þá tókstu okkur með þér yfir helgi, eða jafnvel til lengri tíma, vílaðir ekkert fyrir þér að fylla bílinn af börnum og svo dekraðir þú við okkur eins og kóngafólk. Svo í seinni tíð í Tröllatungunni okkar þar sem við höfum átt yndislegar stundir saman. Ekki var dekrið minna þegar þú bauðst okkur að koma og gista hjá þér í gamla daga, fyrst í Álfheim- unum og svo í Grafarvoginum. Þú áttir alltaf til ísblóm í frystikist- unni. Þú spilaðir við okkur og spjallaðir og sinntir okkur svo vel. Það er svo dýrmætt að hafa átt þig að, elsku amma, og þess vegna finnst okkur erfitt að kveðja. En við vitum líka að þú varst tilbúin í þessa hinstu för og nú færðu að vera með þeim sem þú hefur sakn- að í gegnum árin. Afi tekur vel á móti þér og systkini þín líka og auðvitað hann Toffi okkar. Við vit- um að þú ert jafn umkringd ást og væntumþykju þar sem þú ert núna eins og þú varst hér. Við elskum þig út í geim og aftur heim, elsku amma. Þú ert best. Þínar ömmustelpur, Sigríður Sara og Hildur Þorsteinsdætur. Amma hefur kvatt okkur. Amm- an okkar og ættmóðirin. Við vorum einstaklega heppnar með ömmu og voru forréttindi að fá að alast upp í návist hennar öll þessi ár. Við systurnar urðum því miður ekki þess aðnjótandi að eiga afa í lífi okkar og föðuramma okkar lést þegar við vorum ungar að árum. Því var dýrmætt að eiga hana ömmu að og tók hún hlutverk sitt alvarlega. Hún hafði einstakt lag á að slá afkomendum sínum gull- hamra og sagði gjarnan við hverja og eina okkar: „Þú ert best“ á með- an hún hélt fast í höndina á manni. Alltaf dró hún það jákvæða fram í fari okkar og gaf okkur trú á okkur sjálf. Amma var sterkur karakter, sjálfstæð og mikil fyrirmynd. Hún var alltaf vel tilhöfð. Rúllur í hárið, andlitsförðun, sterkur og fallegur varalitur og snyrtilegur klæðnað- ur. Heimilið hennar svo hlýlegt og snyrtilegt og ríkti þar góður andi sem veitti okkur öryggi, ást og um- hyggju. Hún var stór partur í lífi okkar og eigum við margar góðar og hlýj- ar minningar um hana ömmu. Leikur og glens í Álfheimunum, Frostafoldinni og í Biskupstungun- um. Hún ólst upp á bænum Vatns- leysu í Biskupstungum, Toscana Íslands eins og Toffi frændi sagði svo oft. Við fundum strax að í Tungunum var gott að vera, um- hverfið og frændfólkið svo áhrifa- mikið. Mikið sungið og hlegið. Ferðirnar og samveran í hjólhýs- inu sem staðsett var í landi Frænd- garðs við Tungufljótið. Seinna kom svo bústaðurinn Tröllatunga í land- ið. Hún naut þess að fara þangað og oft fór eitthvert barnabarnanna með henni. Minningin um hana mun lifa sterkt uppi í Tröllatungu sem var hennar griðastaður og okkar afkomendanna. Við skrif þessarar greinar finn- um við ilminn af pönnukökunum og heimatilbúnu fiskibollunum henn- ar, bragðið af stökku hafrakexinu og brauðinu sem hún bakaði. Amma vann sem gjaldkeri hjá Mjólkursamsölunni í yfir þrjátíu ár og var því ekki skrýtið að frysti- kistan heima hjá henni væri alltaf full af ís. Við munum ekki til þess að okkur hafa einhvern tímann ver- ið neitað um ís en Emmess-ís skyldi það vera. Við fengum oft að fara í heimsókn til hennar í vinnuna og sátum þar lengi bak við skrif- borðsstólinn hennar og töldum peninga. Við vorum orðnar ansi færar að handtelja peningaseðla á meðan hún tók á móti bílstjórunum með brosi, góðri kveðju og oftar en ekki löngu spjalli. Amma hafði einstakt lag á að gefa sig að öllum, vildi heyra hvað hefði drifið á daga hvers og eins sem leiddi oftar en ekki „á trúnó“. Það sem var svo yndislegt við hana var að henni var annt um þá sem við umgengumst og tengdumst, eins og vini okkar. Henni þótti mik- ilvægt að kynnast þeim og spurði reglulega frétta af þeim. Amma hélt mikið upp á jólin og voru miklar hefðir í kringum hátíð- ina sem eru okkur minnisstæðar. Ilmurinn af öllu góðgætinu, malt, appelsín og sinalco, messan á að- fangadag og Jólastundin okkar á jóladag. Nú eru jólin að ganga í garð og verða þau okkar fyrstu án hennar. Gleðilega hátíð, elsku amma, hvíldu í friði. Þínar Steingerður, Helga Jóna og Guðný. Amma mín Steingerður. „Góða nótt engillinn minn.“ Þetta sagðirðu við mig fyrstu æviárin, þegar ég fékk að gista hjá þér í Álfheimunum. Reyndar feng- um við barnabörnin að heyra þetta við hvert tækifæri. Álfheimarnir geyma ótalmargar minningar. Geymslan í kjallaran- um þar sem stóru frystikistuna var að finna, fulla af Ísblómum frá Mjólkursamsölunni. Úti að leika með krökkunum við blokkina, alltaf stuð og stemmning, í brennó, kýló og klukk. Ísbúðin fræga í Álfheim- um var þarna rétt hjá, en jafnaðist þó ekkert á við ísblómið, sérstak- lega þetta með karamellunni. Enda var Ísblómið frá MS en Ísbúðin að selja þennan annars flokks Kjörís! Það er erfitt að gleyma friðnum hjá þér í Álfheimunum. Alltaf gafstu þér tíma til að lesa fyrir litlu sálina sem fékk að gista hjá þér. Svo friðsæl og falleg stund að eng- inn vilji var til að sofna. Í þeim friði var þó varla hægt annað en að sofna blíðlega. Þegar augnalokin voru við það að breiða yfir augun heyrðist hlýlegt hvísl: „Góða nótt engillinn minn.“ Það er varla hægt að minnast á Biskupstungurnar án þess að hugsa um ömmu sína Steingerði. Vatnsleysa, Heiði, Frændgarður, Tröllatunga og Réttin, allt umvafið minningu þinni. Þeir voru yndis- legir göngutúrarnir upp og niður með Tungufljótinu og að fossinum okkar Faxa. Haukadalurinn og Geysir þarna rétt hjá og svo auð- vitað Gullfoss. Þar labbaðir þú með okkur margoft. Þú lagðir hart að þér að fá mig, 16 ára pjakkinn, í alvöruvinnu eitt sumarið hjá þér uppi í MS. Þú náð- ir að koma mér inn á lagerinn, kæl- inn, með fínustu laun fyrir litla strákinn. Þetta var gott vinnuum- hverfi, þarna voru fyrirmyndar- krakkar sem voru aðeins eldri en ég, sem maður lærði mikið af. En svo auðvitað varst þú þarna uppi á efstu hæð í glerskrifstofunni og vinkaðir mér, starfsmanninum á plani, og horfðir til mín með þínu dásamlega brosi. Stundum kallað- ir þú á mig með handabendingu að kíkja upp til þín. Þá kláraði maður pöntunina á extra hraða og rauk upp. Þar gátum við setið og spjall- að og fengið okkur kaffi saman. Það þótti öllum þú svo skemmtileg uppi í MS, enda varstu sífellt bros- andi og hlæjandi. Þetta var mín fyrsta alvöru- vinna. Eftir það var það óskrifuð regla hjá okkur að þú kæmir í heimsókn í allar mínar vinnur. Alltaf mættirðu með innihaldsríka brosið og góða skapið, hreykin af litla stráknum, og með pönnukök- urnar þínar - a la amma Steina. Amma mín Steingerður, þú varst húmoristi, með smitandi hlátur, fallegt og skemmtilegt bros. Þú varst lestrarhestur og af- ar fróð, djúp og skörp alveg fram á síðustu stund. Strangheiðarleg, þannig að maður vissi alltaf hvar maður hafði þig. Þú varst líka vel á þig komin. Ég man þegar þú sast áttræð í jógastellingunni á gólfinu heima hjá þér, þegar við vorum í kaffi. Þú varst skemmtileg og auð- velt að líka við þig, enda hafa vinir mínir talað um hversu skemmti- leg, fyndin og smá flippuð þú vær- ir. Eins og tíminn heldur Tungu- fljótið áfram að renna. Það fer samt hvergi, frekar en minning þín. Sofðu rótt, engillinn minn. Þinn Guðni Þór. Steina systir mín er látin nær 95 ára. Ég tel óhætt að segja að hún megi kallast alþýðuhetja með framgöngu sinni í lífinu. Hún varð ekkja með þrjú börn 42 ára og all- ar götur síðan bjó hún ein. Ung að árum giftist hún öðlingnum Guðna Þorfinnssyni sem féll frá allt of ungur árið 1966 tæplega fimmtug- ur. Þegar ég lít til baka get ég ekki annað sagt en það hafi verið hetju- dáð að sjá sér og börnunum far- borða á þeim tíma á einföldum launum skrifstofustúlku. Hún trúði mér fyrir því á góðri stundu að hennar heitasta ósk hefði verið að ganga menntaveg- inn, umfram stutta skólagöngu á Laugarvatni. En lífið krafðist þess að hún færi að vinna og aðstoða foreldrana við barnauppeldið. Hún var þriðja í systkinaröðinni, dóttir Þorsteins og Ágústu á Vatnsleysu í Biskupstungum. Alls urðu börnin níu og átta náðu fullorðinsárum. Með Steinu hafa fimm systkini mín kvatt á aðeins 7 árum. Vegna aldursmunar hef ég aðeins spurnir af glaðværum uppvexti systkina minna og frændsystkina. Á vest- urhluta jarðarinnar bjó systir föð- ur míns og mágur, Kristín og Er- lendur. Leikir barnanna runnu því gjarnan saman. Nú erum við tveir eftir, Sigurður frændi minn á Vatnsleysu níræður og ég. Svona er gangur lífsins. Langlífi er í ætt- inni en ég staldra sennilega við um sinn. Þau Guðni og Steina gengu í hjónaband 1949 og stofnuðu heim- ili í Reykjavík. Upp frá því meðan systkini Steinu voru flest enn við- loðandi sveitina var oft gestkvæmt á Laugavegi 147 hjá ungu hjónun- um og má segja að þar hafi verið miðstöð fjölskyldunnar í Reykja- vík í nokkur ár. Börnin þrjú fædd- ust og lífið var í góðu jafnvægi þar til Guðni veiktist af krabbameini og féll frá. Ekkert var í huga Steinu annað en að halda áfram og af ótrúlegri útsjónarsemi tókst henni að koma börnunum til manns og til mennta og uppfyllti þannig þrá hennar sjálfrar. Aldrei var skortur á borðum Steinu en jafnljóst að hún þurfti að nýta hverja krónu vel til að ná endum saman. Við Steina ræddum ekki stjórnmál enda vissum við bæði að þar náðum við ekki saman. Í stíl við baráttu láglaunakonunnar aðhyllt- ist hún róttæka stefnu í stjórnmál- um sem ég virti en var ekki sam- mála. Árið 2015 er Þorfinnur sonur hennar féll frá varð henni að orði: „Það hefði verið nær að dauðinn hefði sótt mig en Þorfinn, ég var tilbúin.“ En þótt sorgin hafi kvatt dyra og lífið hafi oft verið erfitt kunni hún vel að gleðjast og gera sér dagamun. Síðustu áratugina bjó hún í fallegri íbúð í Grafarvogi og þar hittist fjölskylda hennar t.d. í veglegum jólaboðum. Alltaf var líka opið hús á afmælisdegi henn- ar. Við systkinin eigum saman spildu úr landi Vatnsleysu og Steina stóð fyrir að hún og hennar fjölskylda kæmu sér upp athvarfi þar. Síðustu árin fylgdi hún því eft- ir að afkomendurnir héldu sér við efnið og byggðu upp hús á reitnum. Nú væri rétt að húsið fái nafn hennar og heiti „Steingerðarstað- ir“. Ævivegur hennar er til eftir- breytni, hófsemi og vinnusemi gerði hana að sjálfstæðri konu. Blessuð sé minning Steinu systur. Við hjónin sendum fjölskyldunni samúðarkveðjur. Viðar Þorsteinsson. Enn eitt stórt skarð er höggvið í raðir fjölskyldunnar frá Vatns- leysu við fráfall Steinu frænku minnar, en fimm systkinanna frá Vatnsleysu hafa nú fallið frá á nokkrum árum. Steina frænka mín var bæði hlý og góð manneskja. Hún var engu að síður ákveðin og lá ekki á skoð- unum sínum um menn og málefni, en ávallt kurteis og framkoman falleg og fáguð. Steina var hnar- reist og vel tilhöfð eins og þeirra systkina er siður og engu breytti hvort maður hitti hana í veislum á vegum fölskyldunnar eða í heima- högunum í Frændgarði, sælureit fjölskyldunnar í Biskupstungum. Hún var alltaf svo glæsileg. Lífið lék þó ekki alltaf við Steinu. Árið 1966 varð hún ekkja, þá rétt um fertugt, þegar Guðni eiginmaður hennar og nafni minn lést úr krabbameini langt fyrir ald- ur fram. Ein og óstudd kom hún sér í gegnum lífsins ólgusjó og ól upp börnin sín þrjú af myndarskap svo úr þeim varð mikið fyrirmyndar- fólk. Steina varð fyrir enn einu áfall- inu þegar Þorfinnur sonur hennar lést langt fyrir aldur fram árið 2015. Þótt harmurinn hafi bankað svo áþreifanlega upp á í lífi frænku minnar hélt hún þó áfram lífinu með jákvæðnina að vopni svo ekki sé minnst á dugnaðinn og kraftinn. Aldrei heyrði ég hana kvarta eða bera sig illa við nokkurn mann þrátt fyrir þessi áföll í lífinu. Þegar litið er yfir farinn veg er margs að minnast enda samveru- stundirnar með Steinu frænku margar og góðar. Fyrst og fremst er það þó þakk- læti og virðing sem mér er efst í huga þegar ég kveð frænku mína, enda hefur hún verið mér mikil og góð fyrirmynd í lífinu. Við Andrea minnumst Steinu frænku af hlýju og þökkum að leið- arlokum fyrir þá góðu nærveru sem hún hefur veitt okkur alla tíð. Við munum ylja okkur við fallegar og góðar minningar um góða manneskju. Siggu og Sigga, Steina og Hildu og öllum öðrum aðstandendum vottum við samúð okkar. Guðni Geir og Andrea. Steingerður Þorsteinsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.