Morgunblaðið - 11.12.2020, Síða 29

Morgunblaðið - 11.12.2020, Síða 29
MINNINGAR 29 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. DESEMBER 2020 Elsku vinkona okkar, Stein- gerður Þorsteinsdóttir, hefur nú kvatt. Það væri auðvelt að fylla fleiri síður með skemmtilegum minningum um allar okkar dásamlegu samverustundir en það gerum við ekki hér. Margt var brallað, hlegið hátt og mikið var gaman. Steingerður var stórbrotin manneskja sem aldrei sá hindran- ir heldur lausnir. Hún var gáfuð, víðlesin og óumræðilega skemmti- leg. Líf hennar var ekki dans á rós- um en hún kvartaði aldrei. Fjöl- skyldan var það mikilvægasta í líf- inu og mikið væri gaman að vita af henni meðal þeirra sem hún þegar hafði þurft að sjá á bak. Við vonum að svo sé. Hér sitjum við með sorg og eftirsjá, syrgjum þig sem ei er hægt að ná, í hugum okkar er þín orðaskrá, orð alls þess besta sem þú trúðir á. Sálin þín svo hlý og himinblá, hugsun þín svo björt sem ljós á skjá. stríði og ógn svo óralangt í frá, ást í hverri athöfn mátti sjá. Ef stuðst við hefðum við þína stjórn- arskrá, við stuðlað hefðum að jákvæðri þjóð- hagsspá. Unnur Sólrún Bragadóttir, Sigurveig Helgadóttir. Látin er í Reykjavík kær vin- kona og frænka, Steingerður Þor- steinsdóttir frá Vatnsleysu í Bisk- upstungum. Hún ólst upp við gott atlæti for- eldra sinna ásamt stórum systk- inahópi og ég trúi því að það hafi verið mikið fjör og skemmtan þeg- ar frændsystkinin á Vatnsleysu- bæjunum voru að leik á hlaðinu. Svo liðu árin og Steina hitti Guðna sinn og felldu þau hugi saman og eignuðust þau þrjú mannvænleg börn, þau Sigríði, Þorstein og Þor- finn sem lést langt um aldur fram. Steina missti Guðna sinn mjög ung og tókst hún á við lífið með miklum dugnaði og þrautseigju. Steina og Guðni bjuggu á Lauga- vegi 147 í Reykjavík og svo vildi til að Hjálmar og Silla í vesturbæn- um á Vatnsleysu bjuggu þar líka og fór mjög vel á með þeim frænk- um. Sértaklega minnumst við 17. júní þegar allir komu saman á Laugaveginum hjá þeim frænkum og gengum svo niður Laugaveg- inn til að mæta gleðinni sem ríkti í bænum, þetta var mjög skemmti- legur tími. Steina var forkur til allrar vinnu og vann hún lengi í Mjólk- ursamsölunni eða þar til hún var komin á þann aldur að hún þurfti að hætta en þá fann hún sér bara eitthvað annað gera. Steina var mikil félagsvera, fannst gaman að hitta fólk og tala við fólk, fór í sund á hverjum degi og átti sínar góðu stundir í fé- lagsmiðstöðinni þar sem var prjónað og saumað. Steina var glæsileg kona, hlý og hjartagóð. Hún ræktaði frænd- garðinn vel og fylgdist vel með því sem var að gerast hjá sínum nán- ustu enda vel að sér í öllum mál- um. Það var alltaf gaman að hitta Steinu í réttunum og erum við ekki frá því að hún hafi komið í all- ar réttir nema kannski þrjú síð- ustu árin. Það var mikið sungið á báðum bæjum á Vatnsleysu, það voru dýrðartímar en margt hefur breyst og margir horfnir á braut. Það sem einu sinni var eru góð- ar minningar. Við þökkum Steinu fyrir samfylgdina og sendum fjöl- skyldu hennar innilegar samúðar- kveðjur. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf sem gleymist eigi og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér (Ingibjörg Sigurðardóttir) Sigurður, Jóna, María og Þóra Katrín (Þóra Kata). ✝ Þórdís IngaÞorsteinsdóttir fæddist 18. sept- ember 1924 í Götu í Ásahreppi, Rang- árvallasýslu. Hún lést á Hjúkr- unarheimilinu Mörk 30. nóv- ember 2020. For- eldrar hennar voru hjónin Guðrún Pálsdóttir (1891- 1988) húsfreyja og Þorsteinn Tyrfingsson (1891-1973) bóndi að Helli, Götu og Rifshalakoti í Ásahreppi til 34 ára, og bjuggu þau síðast á Hellu. Þórdís Inga var sjöunda í röð fimmtán systkina. Tólf þeirra komust til fullorðinsára. Eftirlifandi eru Anna og Þórhildur Svava. Þórdís Inga giftist 20.10. 1949 Jakobi Sveinbjörnssyni, fæddum á Hnausum í Húna- þingi 15. júní 1921, d. 13. maí 2002. Foreldrar hans voru Sveinbjörn Jak- obsson (1879-1958), bóndi á Hnausum, og Kristín Pálma- dóttir (1889-1985) húsfreyja. Börn Þórdísar Ingu og Jakobs eru Sigrún, f. 1.7. 1950, gift Guðmundi Ómari Friðleifssyni, f. 12.6. 1950. Þeirra börn: Þórdís (1976), Friðleifur Egill (1980) og Jakob (1990). Kristín Birna, f. 14.12. 1952, gift Finnboga Ingólfssyni, f. 15.12. 1952. Þeirra börn: Hrund (1976), Ing- ólfur (1982) og Pétur (1992). Sveinbjörn, f. 19.11. 1957, kvæntur Þórveigu K. Árnadótt- ur, f. 8.3. 1960. Börn hans af fyrra hjónabandi með Stefaníu B. Þorsteinsdóttur eru Daði Þorsteinn (1985) og Inga Mar- grét (1991). Guðrún, f 22.6. 1960, gift Júlíusi Kristjánssyni, Góð móðir er í dag kvödd hinstu kveðju. Það er mikil gæfa að hafa átt góða foreldra og það áttum við systkinin svo sann- arlega. Alltaf til staðar og um- hyggjan og hjálpsemin óendan- leg. Ég veiktist af alvarlegum sjúkdómi á fyrsta ári og tók það nokkur ár að finna orsökina. Mamma var óþreytandi að leita mér lækninga og unni sér ekki hvíldar fyrr en það tókst að lok- um. Hef ég ekki kennt mér meins síðan og stend ég í ævar- andi þakkarskuld við mömmu og læknavísindin. Mamma var hin fullkomna húsmóðir þeirra tíma, alltaf til staðar að sinna öllu og öllum, matur og næring á rétt- um tíma. Alltaf allt hreint og fínt svo við þekktum ekkert annað í uppvextinum og þótti sjálfsagt. Svo áttaði maður sig á því síðar á lífsleiðinni þegar kom að eigin heimilishaldi og barnauppeldi hvílík forréttindi það voru að eiga slíka móður. Svo þegar kom að ömmuhlutverki hennar þá tóku við dýrðardagar fyrir barnabörnin að fara með afa og ömmu í sumarbústaðinn í ótal ferðir. Renna fyrir fisk með afa og enginn eldaði eins góðan mat og amma, eða bakaði betri kök- ur. Það var mikið áfall að missa pabba fyrir átján árum, en mamma tók því af æðruleysi þó söknuðurinn væri sár. Hún átti nokkur góð ár í Kirkjulundi í Garðabæ nærri mínu heimili, en svo tók að halla undan fæti hjá henni og síðustu tíu árin dvaldi hún á Mörk. Þar naut hún ein- stakrar hlýju og góðrar umönn- unar fyrrverandi og núverandi starfsfólks sem við viljum færa hjartans þakkir. Far í friði, móð- ir góð, og blessun Guðs þér fylgi. Sigrún. Þá hefur ástkær tengdamóðir mín kvatt þetta jarðlíf í hárri elli, 96 ára gömul, eftir rúmlega áratugar dvöl á Hjúkrunarheim- ilinu Mörk, en hún var meðal fyrstu íbúa sem þangað fluttu inn 2010. Aðhlynning við hana á Mörk hefur verið með eindæm- um falleg og góð og aðbúnaður allur eins og best verður á kosið. Fyrir það vill fjölskylda hennar þakka af alúð og einlægni. Þór- dís Inga, ávallt kölluð Inga, og Inga amma af 11 barnabörnum, fæddist 18. september 1924, sjö- unda í röð 15 systkina, ólst upp í Götu til 10 ára aldurs og síðan í Rifshalakoti í Ásahreppi. Eftir- lifandi af systkinunum eru nú einungis systurnar Anna og Svava. Ættboginn er fjölmennur og ánægjuleg ættarmótin á um- liðnum árum hafa því bæði þurft samkomuhús og stór tjaldsvæði. Til skamms tíma mætti elsta kynslóðin eldhress á ættarmótin sem haldin voru til heiðurs for- eldrum þeirra. Ekki að spyrja að því að Inga ólst upp við hefð- bundin sveitastörf þeirra tíma bæði úti við og inni og við barna- pössun yngri systkina eftir þörf- um. Um tvítugt hleypti hún heimdraganum, fór í Hús- mæðraskóla Reykjavíkur, fékkst við ýmis störf þarna í lok stríðs- áranna og kynntist fljótlega önd- vegismanninum Jakobi Svein- björnssyni, ættuðum fá Hnausum í Húnaþingi. Fum- burðurinn Sigrún fæddist um miðja síðustu öld, nákvæmlega, og síðan Kristín Birna, Svein- björn og Guðrún á áratugnum þar á eftir. Þegar tengdason- urinn undirritaður kom til sög- unnar var Inga komin á miðjan aldur, íhugul og elskuleg, með veislumat á borðum við hvert tækifæri. Fljótlega varð hún svo amma að fyrsta barnabarninu sínu, og síðan fjölgaði þeim öll- um. Inga amma varð frá fyrstu tíð máttarstólpi í uppeldi og um- hyggju barnabarna, boðin og bú- in að sinna öllu og öllum hvar og hvenær sem var. Í stuttu máli sagt þá var það með ólíkindum að þau tengdaforeldrarnir Inga og Jakob hafi tekið með sér fjögur barnabörn í frumbernsku mörgum sinnum til vikudvalar eða lengur norður í Þingi í 20 fermetra sumarhúsi í Skíða- staðaskriðu í landi Hnausa, án rafmagns, rennandi vatns og annarra nútímaþæginda. Um- hyggjan og elskan ávallt í fyr- irrúmi. Svo þarf nú vart að ræða all- an baksturinn, en fyrir utan allt þetta hefðbundna bakaði Inga þessa líka ótrúlega góðu og flottu tertu með öllu tilheyrandi, og höfðu ýmsir á orði að ef hún hefði markaðssett tertuna í Am- eríku hefði hún örugglega orðið forrík. Tertur þessar voru á borðum í öllum afmælum fjöl- skyldunnar árum saman, öllum til ánægju og ómissandi. Sum sé Inga mín bæði meistarakokkur og snilldarbakari. Inga og Jakob voru mikil sæmdarhjón og á góðum stund- um minntust þau gjarnan heima- haganna með hlýju og með nokkurri eftirsjá um marga hluti, þótt búshættir hafi þá ver- ið öllu frumstæðari en nú er. Skemmtilegast var að hlusta á þau með einhverjum af systk- inum þeirra, hvort heldur var fyrir norðan eða sunnan, og var þá löngum hlegið dátt. Og við áttum saman margar góðar stundir bæði innanlands og utan, og yljum okkur gjarnan við minningarnar. Í báðum ættum hafa foreldrar þeirra og hluti af systkinahópunum verið jarðsett með viðhöfn frá Odda á Rang- árvöllum eða öðrum kirkjum í héraði, og svo frá Þingeyra- kirkju í Húnaþingi. Í báðum sveitum er fjallahringurinn tign- arlegur og fagur. Fyrir sunnan skarta Hekla, Tindfjöll og Eyja- fjalljökull sínu fegursta á góð- viðrisdögum, fyrir norðan Vatnsdalsfjall og Víðidalsfjall. Athvarf á okkar fjölskylda á báðum stöðum og minnumst við þar því iðulega horfinna ætt- ingja með hlýhug og eftirsjá. Okkar er að miðla góðum minn- ingum til barna og barnabarna. Guðmundur Ómar Friðleifsson. Þórdís Inga Þorsteinsdóttir f. 6.1. 1957. Þeirra synir: Krist- ján (1992), Aron Snær (1996) og Þorsteinn Ingi (1998). Barnabarnabörnin eru þegar orðin sextán. Þórdís Inga ólst upp í for- eldrahúsum, fyrst í Götu í Ása- hreppi en síðan í Rifshalakoti í sama hreppi til fullorðinsára, ólst upp við hefðbundin sveita- störf þess tíma á mannmörgu heimili, lauk almennri grunn- menntun í heimahéraði og stundaði svo nám við Hús- mæðraskólann í Reykjavík. Flutti til Reykjavíkur um tví- tugt og starfaði þar við ýmis þjónustustörf framan af þar til hún giftist 1949, og síðar á æv- inni eftir að eigin barnauppeldi lauk. Þau Jakob og Inga bjuggu lengst af í Hlíðunum í Reykja- vík. Að eiginmanni látnum bjó hún í Kirkjulundi í Garðabæ þar til hún flutti á Hjúkr- unarheimilið Mörk og bjó þar frá opnun þess 2010 til dauð- dags. Útför Þórdísar Ingu fer fram frá Vídalínskirkju í dag, 11. desember 2020, og hefst at- höfnin kl. 13. Jarðsett verður í Gufuneskirkjugarði. ✝ Auðunn fædd-ist í Flatey á Breiðafirði 27. febrúar 1938. Auðunn lést eftir stutt veikindi hinn 18. nóvember 2020, 82 ára að aldri. Foreldrar hans voru Gestur Odd- finnur Gestsson, kennari og skóla- stjóri í Flatey, ættaður úr Dýrafirði, f. 2.1. 1895, d. 26.12. 1982, og Oddný Ingiríð- ur Sölvadóttir, ættuð úr Svína- dal í Austur-Húnavatnssýslu, f. 24.4. 1895, d. 13.5. 1945. Auð- unn var yngstur sjö systkina en hin voru Björn, f. 1919, d. 1992, Gerður, f. 1921, Þor- steinn Yngvi, f. 1922, d. 1985, Nanna, f. 1925, d. 1993, Heiður, f. 1930, og Karl Auð- unn, f. 1932, d. 1939. Oddný, móðir Auðuns, lést þegar hann var sjö ára gamall og eftir það átti hann heimili hjá Gerði systur sinni og Jóni manni hennar, fyrst í Sólheimum í Flatey en síðar á Hjallavegi og í Sólheimum í Reykjavík. Eftir að fjölskyldan fluttist til Reykjavíkur starfaði Auðunn lengst af sem blaðasali hjá Vísi, síðar DV, eða frá 1970 til 2003. Eftir að blaðasölunni var hætt hóf Auðunn störf í Lækj- arási og árið 2009 kvaddi hann Gerði systur sína og fluttist í sambýli á Vesturbrún. Síðasta árið var hann búsettur í Þórðarsveig í Reykjavík. Auk mikils íþróttaáhuga, einkum hvað varðaði fótbolta, hafði Auðunn unun af marg- víslegum listum, svo sem tón- list og myndlist. Hann gaf út ljóðabók á 75 ára afmæli sínu árið 2013, Ljóðin mín, þar sem fjallað var um fugla og nátt- úru, æskuna, áhugamál og samferðafólk. Útför hans fer fram frá Ás- kirkju í dag, 11. desember 2020, kl. 13 að viðstöddum hans nánustu. Steymt verður frá útför: https://www.facebook.com/ groups/audunngestsson Virkan hlekk á streymi má nálgast á https://www.mbl.is/andlat Yndislegi vinur minn, hann Auðunn, er látinn. Við kynntumst á sambýlinu Vesturbrún þar sem hann bjó og ég starfaði. Við smullum strax sem góðir vinir og áttum okkar rútínu þegar ég var á vakt. Settum KR-rúmfötin á rúmið hans, skoðuðum myndir í albúminu hans þar sem hann sagði mér frá öllu fólkinu sínu og ósjaldan sögur af sér og Emil í Kattholti og hló sínum dásamlega hlátri, hann fékk handanudd þeg- ar ég bar á hann handáburð, spil- uðum og svo sat hann alltaf þétt upp við mig og hélt í höndina mína yfir kvöldfréttunum. Hann var ákveðinn og þrjóskur og við ákváðum í sameiningu að það væri bara best að hann hefði allt- af rétt fyrir sér - hitt væri svo mikið vesen. Hann gladdist yfir öllu og fannst voða notalegt að láta dekstra við sig, fá kaffibollann inn í stofu (smá súkkulaðimola með), heimabakað með kaffinu eða bara þegar maður gaf sér tíma og sat hjá honum og hlustaði á meðan hann sagði sögur. Alltaf beið opinn faðmurinn þegar ég kom í vinnuna og alltaf fékk ég rembingsknús að lokinni vakt. Samband hans við fjölskyldu sína var einstakt og augljóst að allta tíð hefur hann verið umvafinn ást og hlýju. Auðunn er einn af þeim sem settu mark sitt á mitt líf og á hann sinn sérstaka stað í mínu hjarta. Hvíl í friði elsku vinur minn. Það var heiður að fá að vera vinur þinn. Systrum Auðuns, fjölskyldu, vinum og starfsfólki í Þórðar- sveig 1 votta ég innilega samúð. Rakel Margrét Viggósdóttir. Auðunn Gestsson Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Minningargreinar Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, ÆGIS INGVARSSONAR bifvélavirkjameistara og vélstjóra, sem lést þriðjudaginn 13. október á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Jaðri í Ólafsvík. Ásta Dóra Valgeirsdóttir Ingvar Valgeir Ægisson Áslaug Olga Heiðarsdóttir Trausti Ægisson Lilja Ólafardóttir Valgerður M. Ægisdóttir Hafrún Elvan Vigfúsdóttir og barnabörn Ástkær móðir mín og tengdamóðir, RAGNHILDUR ÁRNADÓTTIR, Barónsstíg 33, Reykjavík, lést á Hrafnistu í Laugarási laugardaginn 5. desember. Útför fer fram frá Bústaðakirkju fimmtudaginn 17. desember klukkan 13. Vegna aðstæðna geta aðeins nánustu aðstandendur og vinir verið viðstaddir. Athöfninni verður streymt á slóðinni https://promynd.is/ragnhildur Oddur Garðarsson Racel Eiríksson Ástkær sambýlismaður minn, faðir okkar, stjúpfaðir, tengdafaðir og afi, GUÐJÓN ÞORBJÖRNSSON, Kársnesbraut 94, Kópavogi, varð bráðkvaddur á heimili sínu sunnudaginn 29. nóvember. Útför hans fer fram frá Kópavogskirkju þriðjudaginn 15. desember klukkan 13. Vegna aðstæðna verður athöfnin einungis fyrir fjölskyldu og nánustu vini. Útförinni verður streymt frá www.sonik.is/gudjon Lilja Guðlaugsdóttir Ragnar Karl Guðjónsson Dorte Winge Sólveig V. Guðjónsdóttir Þorbjörn J. Guðjónsson Guðlaugur Ísfeld Andreasen Karine Julie Paroux Magnús Ísfeld Andreasen Íris Emma Heiðarsdóttir Símon, Lea, Katla, Hannes Sunna og Eiríkur

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.