Morgunblaðið - 11.12.2020, Blaðsíða 33
DÆGRADVÖL 33
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. DESEMBER 2020
Órjúfanlegur hluti af
jólunum
„ÉG ER BÚINN AÐ TÝNA LYKLINUM!”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
... það sem bjargar
öllum mánudögum.
ÉG KANN GÓÐAN
BRANDARA!
ÓKEI! GOTT AÐ
VITA!
ÞEIR ERU BARA GÓÐIR
ÞAR TIL JÓN SEGIR ÞÁ
EIGINMENN OKKAR
ERU GÓÐIR Í
AÐ SJÁ FYRIR
OKKUR!
MIKIÐ
RÉTT!
ÞEIR SJÁ OKKUR FYRIR ENDALAUSUM
HLUTUM TIL AÐ GAGNRÝNA!
„ÞETTA ER EINMITT ÁSTÆÐA
ÞESS AÐ ÉG VILDI EKKI BYRJA Í
SAMTALSMEÐFERÐ. ÉG HAFÐI ÁHYGGJUR
AF ÞVÍ AÐ HÚN YRÐI ENDALAUS.”
ROOP
á hverjum degi. Míó, sem fæddist
í febrúar 2020 í Berlín, hefur frá
því í sumar búið hjá okkur með
foreldrum sínum. Hún er sól-
argeislinn okkar í Covid-ástand-
inu.“
Fjölskylda
Eiginmaður Ólafar er Gunnar
Guðbjörnsson, f. 5.7. 1965, skóla-
stjóri Söngskóla Sigurðar Demetz
og óperusöngvari. Foreldrar hans
eru hjónin Viktoría Skúladóttir, f.
3.6. 1927, garðyrkjufræðingur og
Guðbjörn Jensson, f. 18.4. 1927, d.
19.2. 1981, skipstjóri og síðar
hænsnabóndi. Börn Ólafar og
Gunnars eru 1) Ívar Glói Gunn-
arsson Breiðfjörð, f. 15.8. 1992,
myndlistarmaður í Berlín, maki
Álfrún Pálmadóttir, f. 29.8. 1992,
þjóðfræðinemi og textílisti. Þau
eiga Míó Álfrúnardóttur Breið-
fjörð, f. 13.2. 2020; 2) Jökull Sindri
Gunnarsson Breiðfjörð, f. 4.2.
1998, læknanemi í Reykjavík; 3)
Ragnar Númi Gunnarsson Breið-
fjörð, f. 5.1. 2000, tónsmíðanemi í
LHÍ í Reykjavík.
Systkini Ólafar eru 1) Sigfús
Ágúst Breiðfjörð, f. 14.12. 1975,
arkitekt í New York, maki Flo-
rencia Vetcher, arkitekt og þau
eiga dótturina Önnu Breiðfjörð. 2)
Kristín Vala Breiðfjörð, f. 4.5.
1982, þjóðbúningakona á Akur-
eyri, maki Bragi Már Matthíasson
flugmaður. Börn þeirra eru Hekla
Himinbjörg og Katla Bergþóra.
Foreldrar Ólafar eru hjónin
Jóna Sigríður Kristinsdóttir, f.
19.10. 1951, húsmóðir og Ragnar
Breiðfjörð, f. 5.1. 1947, sjómaður.
Þau búa í Reykjavík.
Ólöf Hulda
Breiðfjörð
Jóna Sigríður Jónsdóttir
frá Þverlæk í Holtahreppi, húsfreyja í Reykjavík
Sigfús Guðnason
frá Skarði í Landsveit, bóndi í
Blönduhlíð í Reykjavík og síðar
verkstjóri hjá SÍS í Reykjavík
Ólöf Hulda Sigfúsdóttir (Olla)
f. á Háfi Rangárþingi, húsmóðir í Reykjavík
Kristinn Eyjólfsson
frá Lindargötu 22a, múrari í Reykjavík
Jóna Sigríður
Kristinsdóttir
húsmóðir í Reykjavík
Sigríður Magnúsdóttir
frá Hrauni í Ölfusi, húsfreyja í Reykjavík
Eyjólfur Guðmundsson
frá Móakoti í Ölfusi, verkstjóri í Reykjavík
Margrét Jónasína Sigurðardóttir
f. á Háfi í Rangárþingi, húsfreyja,Reykjavík
Guðmundur Einarsson
frá Háarima í Holtahreppi,
sjómaður í Reykjavík
Sigfríð Þorbjörg Breiðfjörð (Lillý),
f. í Vestmannaeyjum, húsmóðir í
Reykjavík
Kenneth Breiðfjörð
f. í Bexhill á Suður-Englandi, verkstjóri hjá Eimskip í Reykjavík
Dorothy Mary Breiðfjörð Baker
f. í Steyning, Suður-Englandi,
húsfreyja í Reykjavík
Pétur Breiðfjörð
frá Höllustöðum Reykhólasókn, hermaður í kanadíska
hernum í fyrri heimsstyrjöldinni, trésmiður í Reykjavík
Úr frændgarði Ólafar Huldu Breiðfjörð
Ragnar Breiðfjörð
sjómaður í Reykjavík
Áheimasíðu sinni birtir ÞórarinnEldjárn erindið „Til siðs og
friðar“:
Ég sé að er til siðs
sönn brýn þörf viss liðs
sem er án marks og miðs
en minnst til friðs.
Á miðvikudaginn fletti ég „Hlý-
vindi“, bók um og eftir Stephan G.
Stephansson, hér í Vísnahorni og
þykir rétt að fletta áfram. Vísan „Að
kveldlagi“ verður fyrir mér. Um
hana segir Baldur Hafstað: „Þessi
vísa er ort skömmu eftir komuna
með Gullfossi til Reykjavíkur árið
1917. Við sjáum Esjuna fyrir okkur
liggjandi á bæn andspænis hafinu í
vestri sem er persónugert.“
Falla Hlés í faðminn út
firðir nesja-grænir.
Náttklædd Esjan, ofanlút,
er að lesa bænir.
„Kristilegt smárit“. Áfir eru lög-
urinn sem verður eftir þegar rjómi
er strokkaður og búið til smjör og
gjarnan gefnar kálfunum. – „Við
sjáum klerkinn fyrir okkur eins og
hann sé að gefa „kálfunum sínum“
(sóknarbörnunum) áfirnar (sem
hann hefur fengið „að láni“) en ekki
rjómann eða smjörið.“
Úr kirkjunnar helgidóm háum
hann hellir út ræðum og bæklingagjörð –
á annarra strokkuðum áfum
hann elur upp volaða guðskálfa hjörð.
„Við Drangey.“ „Stephan minnist
hér sunds Grettis þegar hann þurfti
að sækja eldinn til lands eins og lýst
er í Grettis sögu.“
Mörg er sagt að sigling glæst
sjást frá Drangey mundi –
þó ber Grettis höfuð hæst
úr hafi á Reykjasundi.
Hólmfríður Bjartmarsdóttir yrkir
og kallar „Í rauðu lyngi“:
Það hrinast gárur um vatnið því hópur af
fuglum flaug.
Af fjöðrunum dropar hrukku en síðan
varð aftur slétt.
Dynkur af haglabyssu sem áðan eyru
mín smaug
er ómur á fjöllum sem bergmálið kastar
létt.
Í hvítan jökulinn manninn með byssuna
ber
í blíða logninu, handan við hverinn, að
reykja.
Í rauðu lyngi hann gengur í götu og sér
gæsina sem hann hitti og ætlar að
steikja.
Hér kemur gömul vísa um and-
lega næringu og geistlegt útálát:
Meinleg andans magapín
mæðir herrans gesti.
Ég held það vanti vítamín
í vatnsgrautinn hjá presti.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Hlývindi flett og jólagæsin