Morgunblaðið - 11.12.2020, Page 40
Allt fyrir góðan svefn
og betri heilsu
JÓLA-
BÆKLINGURINN
ER KOMINNÚT
FRÁBÆR
JÓLATILBOÐ
Skoðaðu bæklinginn
á svefnogheilsa.is
SÍM, Samband ís-
lenskra myndlist-
armanna, opnaði í
gær jólalistamessu
í Gamla kirkjuhús-
inu á Laugavegi 31
með þátttöku yfir
hundrað lista-
manna. „Kanill“
heitir jólalista-
messan og verður
opin til jóla fram að
Þorláksmessu frá
kl. 14 til 20 alla
daga. Yfir hundrað
listamenn taka
þátt með úrvali
verka sem verða til
sýnis og sölu og eiga þeir það sameiginlegt að vera
meðlimir í Sambandi íslenskra myndlistarmanna og
vinna verk í fjölbreytta miðla.
Yfir hundrað listamenn sýna og
selja verk sín á jólalistamessu
FÖSTUDAGUR 11. DESEMBER 346. DAGUR ÁRSINS 2020
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 697 kr.
Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr.
PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr.
Ísland mætir Frakklandi, Danmörku og Rússlandi í úr-
slitakeppni Evrópumóts 21-árs landsliða karla í fótbolta
í lok marsmánaðar. Arnar Þór Viðarsson þjálfari liðsins
segir að þrátt fyrir að Ísland sé í erfiðum riðli ætli liðið
sér áfram í útsláttarkeppnina. „Við þurfum að eiga okk-
ar besta leik til að ná í úrslit gegn þessum þjóðum,“
sagði Arnar Þór í samtali við Morgunblaðið. „Við þurf-
um að halda fast í þá hugmyndafræði sem við höfum
verið að vinna með undanfarið ár. Þetta verður erfitt en
möguleikinn er svo sannarlega fyrir hendi.“ »35
Ísland dróst í erfiðan riðil í úrslita-
keppni Evrópumóts 21-árs landsliða
ÍÞRÓTTIR MENNING
þætti og geng frá fyrir prentun.“ Í
því sambandi nefnir Víðir að hann
hafi lokað nýjustu bókinni með um-
fjöllun um kvennalandsleik Ung-
verjalands og Íslands, þar sem ís-
lenska landsliðið tryggði sér
þátttöku í úrslitakeppni Evrópu-
mótsins í fjórða sinn í röð.
Kórónuveirufaraldurinn setti
stórt strik í allt mótahald í ár og
Víðir segist aldrei hafa lent í öðru
eins í sambandi við ritun bókarinnar.
Snemma árs hafi hann farið að huga
að ýmsu aukaefni og þegar stefnt
hafi verið að því að ljúka Íslands-
mótinu ekki fyrr en 30. nóvember
hafi útlitið með útkomu bókarinnar
fyrir jól ekki verið bjart, en allt hafi
gengið upp að lokum.
Íslensk knattspyrna 2020 er með
hefðbundnu sniði, en þó eru ýmsar
viðbætur. Til dæmis er saga Litlu
bikarkeppninnar 1961 til 1995 rakin.
„Hún hefur ekki verið birt í heilu
lagi fyrr,“ upplýsir Víðir. Auk þess
sé ítarlegri tölfræði en áður, til
dæmis upplýsingar um flesta leiki og
mörk Íslendinga í flestum deildum
Evrópu.
Synir Víðis hafa um árabil að-
stoðað hann við ýmislegt í tengslum
við bókina auk þess sem fleiri í fjöl-
skyldunni hafa lagt hönd á plóg og
Óskar Ófeigur Jónsson hefur haldið
utan um umfjöllun um stoðsend-
ingar. „Eftir að ég tók við þessu
verkefni fyrir nær 40 árum nýtti ég
mér erlendar fyrirmyndir í sam-
bandi við uppbygginguna og hún
hefur reynst vel,“ segir Víðir.
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Upplýsingar um íslenska knatt-
spyrnu ár hvert hafa verið aðgengi-
legar á einum stað í samnefndum
bókum, þökk sé Víði Sigurðssyni,
blaðamanni á Morgunblaðinu, en 40.
útgáfan í flokknum er væntanleg til
landsins í næstu viku. Í tilefni tíma-
mótanna er boðið upp á að kaupa
bókina í forsölu (islenskknatt-
spyrna.is) og fá
um leið rafrænan
aðgang að öllum
fyrri bókunum
frá 1981 auk
frírrar heim-
sendingar eftir
útkomu nýju
bókarinnar.
„Bókin hefur
ekki áður verið í
forsölu og nú er bókaflokkurinn
fáanlegur á rafrænu formi í fyrsta
sinn,“ segir Víðir, en Sögur útgáfa
gefur bókina út. Hann bætir við að
margar bækur í flokknum séu upp-
seldar og því sé þetta kærkomið
tækifæri til þess að eignast allt safn-
ið.
Í bókaflokknum er ekki aðeins
sagan í 40 ár heldur fótboltasaga
landsins í hnotskurn, því viðburðum
fyrri ára voru gerð skil í sérstökum
söguköflum bókanna 1985 til 1999.
„Í raun er öll sagan í þessum bók-
um.“
Víðir á vaktinni
Tilviljun réð því að Víðir tók við
ritun og umsjón bókanna. Sigurður
Sverrisson, fyrrverandi vinnufélagi
hans á Dagblaðinu, sá um fyrstu
bókina fyrir Eyjólf Sigurðsson í
Bókhlöðunni og þegar leið að útgáfu
næstu bókar fékk hann Víði til að
aðstoða sig. „Við skrifuðum hana á
þremur vikum og í framhaldinu bað
hann mig um að taka alfarið við kefl-
inu.“
Síðan þá hefur Víðir unnið skipu-
lega að samantekt efnis í bókina.
„Ég skrifa um allt jafnóðum og það
gerist og þegar líður á haustið púsla
ég efninu saman, tek viðtöl, fæ fasta
Íslensk knattspyrna
á netinu í fyrsta sinn
Allur bókaflokkurinn rafrænn í tilefni 40. útgáfunnar
Morgunblaðið/Eggert
Tímamót Víðir Sigurðsson fagnar útgáfu 40. bókarinnar í flokknum.