Morgunblaðið - 22.12.2020, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 22.12.2020, Blaðsíða 1
Þ R I Ð J U D A G U R 2 2. D E S E M B E R 2 0 2 0 Stofnað 1913  301. tölublað  108. árgangur  MARKAHÆSTUR HJÁ MAGDEBURG Í ÞÝSKALANDI METÁR AÐ BAKI VILL EKKI SETJA VERKIN Í EINA ÁKVEÐNA SKÚFFU 5,7 MILLJARÐA AFLAVERÐMÆTI 10 JÓNAS REYNIR 34ÓMAR INGI 33 Andrés Magnússon andres@mbl.is Katrín Jakobsdóttir forsætisráð- herra hefur tekið öflun og dreifingu bóluefnis inn á sitt borð og varði gær- deginum í fundahöld og símtöl í von um að tryggja Íslendingum nægt og tímanlegt bóluefni. Forsætisráðuneytið hefur varist allra frétta, en heimildir Morgun- blaðsins herma að Katrín hafi í gær meðal annars átt fjarfund með Ang- elu Hwang, framkvæmdastjóra hjá lyfjarisanum Pfizer, í þessu skyni. Fyrirhugaðir eru frekari fundir, m.a. með stjórnendum Moderna. Í gærmorgun átti Katrín jafnframt símafund með Ursulu von der Leyen, forseta framkvæmdastjórnar Evr- ópusambandsins (ESB), sem fullviss- aði forsætisráðherra um að fyrstu bóluefnisskammtar Íslands bærust í tæka tíð í samræmi við samninga. Síðar um daginn veitti Lyfjastofnun Evrópu leyfi fyrir bóluefni Pfizer. Í gærkvöldi tilkynnti Lyfjastofnun Ís- lands svo að hún hefði veitt bóluefn- inu skilyrt markaðsleyfi. Áhöld um bólusetningu Undanfarna daga hefur verið mikil umræða um ráðgerðar bólusetningar við kórónuveirunni á Íslandi, en sótt- varnalæknir og heilbrigðisráðherra hafa ekki verið á einu máli. Um helgina sagði Bloomberg svo frétt af því að Ísland stæði öðrum Evrópulöndum langt að baki hvað varðaði skammtafjölda miðað við höfðatölu. Heilbrigðisráðuneytið bar þær fréttir til baka og sagði Ísland hafa tryggt sér mikið magn bóluefnis frá bæði AstraZeneca og Pfizer, en hins vegar kom þar ekki fram neitt um hvenær bóluefnið kæmi. Vert er að hafa í huga að von der Leyen ræddi aðeins um fyrstu skammta, en ekki um framhaldið, svo þar liggur ekkert fyrir um tímalínuna heldur. Eftir því sem næst verður komist er ekkert fast í hendi annað en þeir 2.950 skammtar á viku sem hingað eiga að berast næstu 13 vikur. Hitnar undir ráðherra Aukinnar gagnrýni hefur gætt í garð Svandísar Svavarsdóttur heil- brigðisráðherra síðustu daga, ekki síst vegna misvísandi upplýsinga um bólusetningu, en þau mál voru rædd á Alþingi á föstudag. Þingmenn, bæði í stjórn og stjórnarandstöðu, sem Morgunblaðið ræddi við, telja að frumkvæði forsætisráðherra nú sé til marks um að þeirra efasemda gæti víðar. Katrín leitar að bóluefni  Forsætisráðherra tekur bóluefnismálin á sitt borð  Talaði við ESB, Pfizer og fleiri í gær  Pfizer komið með leyfi hérlendis  Gagnrýni á heilbrigðisráðherra eykst Íbúar hættusvæða á Seyðisfirði fengu í gær að fara heim í ör- skamma stund til að ná í eigur sínar. Það fólk sem blaðamaður ræddi við sagði það vissulega skrítið að hafa svo skamman tíma til að ná í eigur sínar og velta fyr- ir sér á hverju það þyrfti að halda næstu daga, því alls óvíst er hvort fólk fær leyfi til að fara heim fyrir jólin. Þá eru enn aðrir sem ekki vilja vera í húsum sínum vegna þess að þeir upplifa sig óörugga. Eins og sjá má sótti fólk jóla- pakka, leikföng og föt, en margir hafa verið í sömu spjörunum frá því fyrsta skriðan féll á þriðjudag. Ljósmyndari Morgunblaðsins fékk að fylgja þeim Ísleifi og Elvu Ásgeirsdóttur að heimili þeirra þar sem þau fengu nokkrar mín- útur til að safna saman helstu nauðsynjum fyrir sig og börnin sín. Björgunarsveitarmenn fylgdu íbúum um 60 heimila á heimili sín í gær að sækja brýnustu nauð- synjar. Sumir gátu ekki fengið að fara inn á heimili sín vegna raf- magnsleysis. »4Morgunblaðið/Eggert 669 manns eiga lögheimili        581          305          276          SEYÐISFJÖRÐUR Sóttu brýnustu nauðsynjar  Óvíst hvort íbúar komast heim fyrir jól Ketkrókur kemur í kvöld 2 dagartil jóla jolamjolk.is JÓLIN ERU KOMIN Í NETTÓ! Hamborgarhryggur 1.070KR/KG ÁÐUR: 1.784 KR/KG Lægra verð - léttari innkaup Tilboðin gilda 22.—24. desember -40% Græn vínber 625KR/KG ÁÐUR: 1.249 KR/KG -50%GOTT VERÐ! Franskur kalkúnn Heill 1399KR/KG

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.