Morgunblaðið - 22.12.2020, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 22.12.2020, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. DESEMBER 2020 Sigurður Már Jónsson blaða-maður gerði loðnuleit og kvik- myndastyrki að umfjöllunarefni í pistli á mbl.is. Sigurður benti á að síðustu 10 ár hefðu samtals verið greiddar 9.540 milljónir í kvik- myndastyrki vegna endurgreiðslna á framleiðslukostn- aði. Hann sagði að þetta væri gert „til þess að draga að verkefni. Nokkuð sem allir græða á, er okkur sagt. Nú er því reyndar haldið fram að þessir styrkir séu of lágir, það þurfi að hækka end- urgreiðsluna verulega vegna þess að aðrar þjóðir veita enn meiri styrki og endurgreiðslur. Eða eig- um við að kalla þetta skatta- afslátt? Svona til að fá réttu stemninguna en þetta er oft stór- auðugt fólk úr henni Hollywood sem stendur að þessum verk- efnum. Tom Cruise og fleiri. Þess má geta að á síðasta ár greiddi út- gerðin á Íslandi 6.629 milljónir í veiðigjöld og þótti mörgum of lít- ið. Það kemur ofan á allar aðrar skattgreiðslur sem útgerðin borg- ar eins og önnur fyrirtæki.    Þannig er nú það. Kvikmynda-iðnaðurinn eins og mörg önn- ur starfsemi hér á landi fær feiki- legan stuðning frá skattgreiðendum til að afla sér verkefna á meðan útgerðin þarf sjálf að kosta leitina að loðnunni. Og greiðir svo sérstakt auðlinda- gjald fyrir að veiða þann fisk sem hún finnur sjálf. Kæmi til greina að setja auðlindagjald á kvik- myndaiðnaðinn, nú eða aðra sem nota þá auðlind sem felst í náttúru landsins? Það er ekki verið að mælast til þess hér, aðeins að benda á samanburðinn.“    Ætli það megi benda á þennansamanburð? Það er ekki víst. En það er þarft. Sigurður Már Jónsson Um loðnuleit og kvikmyndastyrki STAKSTEINAR Starfsmenn skattsins vinna nú að því að hægt verði að opna fyrir móttöku umsókna um tekjufallsstyrki fyrir jól en ekki er þó öruggt að þær fyrirætl- anir gangi eftir. Undirbúningurinn hefur reynst flóknari en ætlað var á Alþingi þegar þingið samþykkti lögin um tekjufallsstyrki 5. nóvember en þá var því haldið fram að hægt yrði að sækja um tekjufallsstyrki um mán- aðamótin nóvember og desember. Í svari sem fékkst hjá skattinum í gær segir að unnið sé hörðum hönd- um að því að hægt verði að hefja mót- töku umsókna um tekjufallsstyrki sem allra fyrst og það verði vonandi fyrir jól. „Þetta verkefni er margþætt og orðin fleiri atriði sem þarf að gera ráð fyrir og stemma saman en í öðrum úrræðum hingað til. Sem dæmi má nefna að nú er heimilt að líta til nið- urstöðu úr rekstri á síðasta ári en ekki eingöngu yfirstandandi tekju- árs. Það flækir málið nokkuð. Reynt er að búa svo um hnútana að sem mest sé gert vélrænt í umsókninni, þ.e. samanburður er gerður við fyr- irliggjandi gögn og niðurstöður árit- aðar eins og hægt er. Þetta leiðir m.a. til þess að útfylling á umsókninni verður einfaldari fyrir umsækjand- ann, auk þess sem í þessu felst ákveð- ið samtímaeftirlit,“ segir Kristín Gunnarsdóttir, sérfræðingur hjá skattinum, í svari við fyrirspurn blaðsins. omfr@mbl.is Reynt að opna fyrir umsóknir fyrir jól  Undirbúningur tekjufallsstyrkja hjá skattinum er flókinn og tímafrekur Morgunblaðið/sisi Skatturinn Styrkirnir verða veittir vegna tekjufalls í kórónukreppunni. Ekkert verður af fyrirhuguðum samruna sænsku hljóðbókaveit- unnar Storytel AB og bókaútgáf- unnar Forlagsins sem greint hafði verið frá í sumar. Þess í stað verður gengið til samstarfs um verulega innspýtingu í hljóð- og rafbóka- framleiðslu Forlagsins. Stefán Hjörleifsson, landsstjóri Storytel á Íslandi, segir í samtali við Morgunblaðið að ein af ástæðum þess að samrunaaðilar hafi ákveðið að hætta við samrunann sé að Sam- keppniseftirlitið og Storytel á Ís- landi hafi ekki verið sammála um skilgreiningu á markaðnum í megin- atriðum. Storytel á Íslandi skilgreinir sig ekki sem bókaútgáfu og lítur á sig í annarri og meiri samkeppni eins og Stefán útskýrir. Keppt er um tím- ann sem fólk notar í afþreyingu og keppinautarnir eru aðrar streymis- veitur eins og myndveitan Netflix og tónlistarveitan Spotify. Stefán segir að umræðurnar hafi ekki verið komnar á það stig að eft- irlitið hafi verið búið að skilgreina Storytel á annan hátt. „Við höfum átt í góðum viðræðum við eftirlitið en eftir að andmælaskjal með frum- niðurstöðum barst fyrir fáeinum vikum þótti okkur sýnt að þær myndu ekki klárast með þeim skil- yrðum sem við lögðum til. Þar með voru teikn á lofti um að þeir myndu ekki samþykkja samrunann,“ segir Stefán. Því hafi verið ákveðið að falla frá málinu. Spurður hvort niðurstaðan sé vonbrigði segir Stefán að vissulega séu það vonbrigði þegar hætt er við eftir að búið er að leggja mikla vinnu í hlutina. Niðurstaðan sem slík sé þó ekki vonbrigði að því leyti að markmiði Storytel á Íslandi sé náð með samstarfssamningi. Storytel og Forlagið renna ekki saman  Ósammála um skilgreiningu Ljósmynd/Storytel.com Samstarf Efla hljóðbókagerð. Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.