Morgunblaðið - 22.12.2020, Blaðsíða 19
19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. DESEMBER 2020
Skriður Fundur var haldinn fyrir Seyðfirðinga í gær vegna stöðunnar sem þar hefur skapast í kjölfar aurskriðna. Jens Hilmarsson vettvangsstjóri á Seyðisfirði ræðir hér við viðstadda.
Eggert
Jólin eru hátíð
barnanna og þegar ég
var barn hlakkaði ég
mikið til jóla. Á aldr-
inum 6-12 ára bjó fjöl-
skylda mín í 40 m²
íbúð, mamma ásamt
fjórum börnum sín-
um. Tilhlökkun til
jólanna var fölskva-
laus því á þessum ár-
um voru vissulega
þrengsli og oft lítið á borðum en
það ríkti öryggi á heimilinu og
enginn þurfti að vera kvíðinn eða
hræddur. Ég hlakkaði til að fá epli,
jólamat og konfekt. En gjafir voru
aðalatriðið svo það sé nú sagt. Ég
fékk nýjan kjól sem mamma saum-
aði og þegar jólin gengu í garð var
maður aldeilis hreinn og fínn.
Nú styttist í jólin. Í þakklæti
mínu fyrir að hafa átt áfengis- og
ofbeldislaust skjól á heimili mínu
góðan hluta bernskuáranna verður
mér hugsað til barna sem nú kvíða
jólunum vegna heimilisaðstæðna.
Ástæður geta verið fjölmargar.
Fátækt ber fyrst að nefna því fá-
tækt er raunverulegt vandamál á
Íslandi. Enda þótt við sjáum ekki
grátandi börn á götunni að betla er
talað um að um 5.000 börn búi við
fátækt, og sum hver sára fátækt, í
Reykjavík. Á heim-
ilum þar sem fátækt
ríkir er oft lítið um
jólaglaðninga, kannski
eru kertaljós en engin
klæði rauð.
Fátækt á sér marg-
ar birtingarmyndir.
Hér áður fyrr voru
margar fjölskyldur
bláfátækar og þurftu
að sníða sér stakk eft-
ir vexti. Sá stakkur
var stundum níð-
þröngur. Til að ná
endum saman var unnið myrkr-
anna á milli. Á þessum árum
bjuggu stórar fjölskyldur í litlu
rými og þótti ekki tiltökumál.
Þetta hefur mikið breyst og eru
mælikvarðar, viðmið, væntingar og
viðhorf nú öll önnur. Rými eru
stærri, meira úrval af öllu og fleiri
sóknarfæri. Samt sem áður er góð-
ur hópur fólks hér á landi sem hef-
ur það skítt því það býr við fátækt
í allri merkingu þess orðs. Þetta
eru einstaklingar, einstæðir for-
eldrar, öryrkjar á sínum lágu bót-
um og allt of margir eldri borgarar
sem horfa þurfa í hverja krónu
þegar velja á jólagjöf handa barna-
börnunum.
Neysla og ofbeldi
Það er ekki eingöngu fátækt ein
og sér sem er erfið börnunum og
fjölskyldum þeirra. Sum börn búa
stundum bæði við fátækt og
neysluvanda foreldra. Á sumum
heimilum er einnig heimilisofbeldi
sem stundum beinist ekki aðeins
að maka heldur einnig börnunum
sjálfum. Á heimilum þar sem fjöl-
þættur vandi ríkir (fátækt, neysla
og ofbeldi) eru kannski hvorki
kertaljós né klæðin rauð. Við get-
um öll sett okkur í spor barnanna
og fundið hversu stór kvíðahnút-
urinn er í maga þeirra. Þau hugsa
hvernig aðfangadagskvöld og jólin
öll verði hjá þeim að þessu sinni.
Verður þetta eins og venjulega,
kannski betra eða verður þetta
verra?
Það gæti nefnilega orðið verra
núna því við lifum á ótrúlegum
tímum. Í kjölfar Covid-19 hefur
komið í ljós að tilkynningum til
barnaverndarnefnda hefur fjölgað.
Um er að ræða aukningu tilkynn-
inga þar sem börn eru beitt lík-
amlegu og andlegu ofbeldi á heim-
ili sínu. Af þessu hljótum við öll að
hafa miklar áhyggjur. Börnin sjálf
ræða oft ekki um þessi erfiðu mál
út á við. Sum fela þjáningar sínar
og halda niðri í sér óttanum. Mörg
eru einnig að verja heimilisfólkið,
vilja ekki koma því í vandræði og
óttast einnig að ef þau segja frá
verði þau skömmuð.
Barn í aðstæðum sem þessum
verður að vita að það er leið út.
Það má aldrei missa vonina. Minn-
ingar um jól þar sem neysla með
tilheyrandi fylgikvillum réð ríkjum
eru minningar sem seint hverfa í
gleymsku. Við sem hluti af sam-
félagi þurfum hvert og eitt okkar
að vera á vaktinni, tilbúin að stíga
inn og koma til aðstoðar vitum við
af barni sem er í einhverjum ofan-
greindum aðstæðum. Við eigum að
láta okkur varða málefni allra
barna sem verða á vegi okkar eða
eru í umhverfi okkar. Við eigum
að vera almennt forvitin um að-
stæður barna, jafnvel afskiptasöm,
þora að spyrja óþægilegra spurn-
inga og ávallt taka slaginn fyrir
börn. Börn eiga alltaf að njóta vaf-
ans.
Ef við höfum minnsta grun um
að barn búi við óviðunandi að-
stæður, s.s. sára fátækt, neyslu-
vanda umönnunaraðila og/eða of-
beldi, ber okkur samkvæmt
íslenskum lögum að tilkynna málið
til barnaverndarnefndar. „Til-
kynning“ er ein tryggasta leiðin til
að hjálpa barni við þessar að-
stæður, ekki eingöngu til skemmri
tíma heldur til lengri tíma. Til-
kynning af þessu tagi gæti verið
besta jólagjöfin sem barnið fær
þetta árið. Almennur tilkynnandi
getur tilkynnt undir nafnleynd.
Sum sveitarfélög eru með sér-
stakan tilkynningarhnapp fyrir
börn á heimasíðu sinni þar sem
þau geta tilkynnt sjálf ef eitthvað
er ekki í lagi, hvort sem þau hafa
orðið vitni að ofbeldi eða það bein-
ist að þeim sjálfum eða vinum
þeirra. Reykjavík er eitt þeirra
sveitarfélaga. Með þessu fyrir-
komulagi er verið að gefa röddum
barna meira vægi. Mikilvægt er að
hnappurinn höfði til barnanna og
sé á sem flestum tungumálum.
Umfram allt þurfa börn að vita af
tilkynningarhnappnum. Það er til-
laga undirritaðrar að sveitarfélög
sem ekki hafa nú þegar slíkan
hnapp ætlaðan börnum komi hon-
um upp. Einnig er lagt til að sveit-
arfélög fari í sérstakt átak að aug-
lýsa tilkynningarhnappinn og
átakið feli í sér fjölbreyttar að-
ferðir til að ná tilætluðum árangri.
Eftir Kolbrúnu
Baldursdóttur » Við eigum að vera al-
mennt forvitin um
aðstæður barna, jafnvel
afskiptasöm, þora að
spyrja óþægilegra
spurninga og ávallt að
taka slaginn fyrir börn
Kolbrún Baldursdóttir
Höfundur er sálfræðingur og oddviti
Flokks fólksins í borgarstjórn.
kolbrun.baldursdottir@reykjavik.is
Kertaljós og klæðin rauð