Morgunblaðið - 22.12.2020, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 22.12.2020, Blaðsíða 37
MENNING 37 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. DESEMBER 2020 jólagjafa hjálparinn 3.429 manns sögðu okkur hvað þau langar að fá í jólagjöf. Skoðaðu niðurstöðurnar á: aha.is/jol ENGIN UMFERÐ, ENGIN RÖÐ, ENGIN GRÍMUSKYLDA Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Við bókarskrifin kynntist ég góð- um manni; farsælum og dáðum lækni sem lét raunar til sín taka á fleiri sviðum samfélagsins og mark- aði hvarvetna spor,“ segir Lýður Pálsson, sagnfræðingur og safn- stjóri Byggðasafns Árnesinga. Út er komin bókin Lúðvík Norðdal Davíðsson (1895-1955) læknir á Eyrarbakka og Selfossi – æviágrip. Titillinn segir flest um efni bók- arinnar sem Lýður tók saman fyrir nokkrum árum. Þá var hún gefin út í einfaldri gerð og fengin fólki í ættboga Lúðvíks. Fyrr á þessu ári var hins vegar ákveðið að gefa þetta efni út sem snotra bók með myndum og ýmsum öðrum fróðleik og standa afkomendur Lúðvíks að því. Útgáfa ævisögu Lúðvíks Norð- dals á sér langan aðdraganda, en það var í byrjun árs 2009 sem Anna Sigríður, dóttir hans, hafði sam- band við Lýð og bað hann um að skrá þessa sögu. Lýður svaraði því kalli og hófst handa nokkru síðar. Ritaðar heimildir um manninn og störf hans mátti líka víða finna, svo sem í ritinu Heilbrigðisskýrslur þar sem læknar landsins greindu frá verkefnum sínum og aðstæðum í héraði. Margt var sömuleiðis til- tækt í dagblöðum og á vefnum timarit.is auk þess sem margir Sunnlendingar mundu Lúðvík og gátu sagt frá honum. Heimild um samfélag „Lúðvík varð öllum minnisstæður og saga hans er áhugaverð. Hún er ekki síður merkileg heimild um samfélag hans tíma þegar sinna þurfti læknisverkum við erfiðar að- stæður, að minnsta kosti á mæli- kvarða dagsins í dag. Stundum kom Lúðvík á sveitabæi og framkvæmdi þar meira að segja aðgerðir eftir að hurðir höfðu verið teknar af hjör- um, lagðar á bríkur og notaðar þannig sem skurðarbekkur,“ segir Lýður. Lúðvík Norðdal var fæddur í júlí 1895 á bænum Eyjakoti á Skaga- strönd í Austur-Húnavatnssýslu, sonur hjónanna Davíðs Jónatans- sonar og Sigríðar Jónsdóttur. Þau voru fátækt alþýðufólk. Þrátt fyrir þær aðstæður braust Lúðvík til mennta; fór í Menntaskólann í Reykjavík og eftir stúdentspróf innritaðist hann til náms við Læknadeild Háskóla Íslands og lauk þaðan prófi árið 1922. Það sama ár fluttust þau Ásta Jóns- dóttir, sem gefin höfðu verið saman árið 1916, austur á Eyrarbakka þar sem Lúðvík hóf læknisstörf. Hann starfaði þar sjálfstætt lengi framan af, auk þess að sinna þjónustu við berklahælið á Reykjum í Ölfusi, vinnuhælið á Litla-Hrauni og fleira slíkt. Árið 1937 var hann svo skip- aður héraðslæknir á Eyrarbakka. Sinnti fæðingarhjálp og dró jaxla „Lúðvík fór í vitjanir út um sveit- ir gjarnan á hestum og við mis- jafnar aðstæður. Svo þegar bílaöld- in gekk í garð þurfti Lúðvík oft að sinna og gera að fólki sem lent hafði í bílslysum. Hann var sömu- leiðis oft kallaður til þegar konur áttu í erfiðleikum við barnsburð og á Eyrarbakka man sumt eldra fólk eftir honum fyrir að hafa dregið úr því á barnsaldri endajaxla með öll- um þeim sársauka sem því fylgdi,“ segir Lýður. Þegar leið fram á 20. öld fór að fjara undan Eyrarbakka sem höf- uðstað á Suðurlandi. Því fylgdi að árið 1945 var Eyrarbakkalæknis- héraði skipt upp, stofnað var til annars embættis á Selfossi sem Lúðvík fékk. Þar hafði þá nýlega verið reistur læknisbústaður, þang- að sem Lúðvík flutti með fjölskyldu sinni og bjó þar uns hann lét af embætti og flutti á brott árið 1954. „Þegar Lúðvík ákvað að taka við embætti á Selfossi voru margir af vinum hans frá Eyrarbakka fluttir á Selfoss sem réð sjálfsagt nokkru um ákvörðun hans. Einnig kann að hafa haft áhrif að hann var maður sem lifði og hrærðist í öllum helstu málum samtíðar sinnar og vildi vera þar sem fólkið var. Afskipti hans af stjórnmálum um hríð voru eðlileg í því ljósi. Á Eyrarbakkaár- um sínum var hann þrívegis upp úr 1930 í framboði til Alþingis fyrir Sjálfstæðisflokkinn í óhlutbundnum kosningum. Þar náði Lúðvík tals- verðu fylgi, þó atkvæðin dygðu hon- um ekki til að komast á þing. Eftir kosningar 1934 hætti hann svo af- skiptum af stjórnmálum, þó hann beitti sér sem fyrr að ýmsum fram- faramálum í héraði,“ segir Lýður. Meðal baráttumála Lúðvíks var að byggt yrði sjúkrahús á Suður- landi, sem reyndar gerðist ekki fyrr en eftir hans dag þegar eftirmaður hans, Bjarni Guðmundsson, lét breyta læknisbústaðnum á Selfossi í sjúkrahús. Á sextugsaldri kenndi Lúðvík sér vanheilsu vegna nýrnasjúkdóms, sem ekki reyndist gerlegt að lækna. Hann sagði sig því frá embættinu á Selfossi og flutti til Reykjavíkur ár- ið 1954; þar sem hann lést snemma árs 1955. Ljúfur maður og gott skáld „Hlýr og ljúfur maður, útsjónar- samur maður og gott skáld. Þetta og ótalmargt fleira er sú mynd sem ég fékk þegar ég leitaði heimilda og skrifaði sögu Lúðvíks. Þetta var skemmtilegt verkefni að sinna,“ segir Lýður sem í starfinu naut m.a. liðsinnis barnabarns Lúðvíks, Ólafs Barkar Þorvaldssonar hæsta- réttardómara. Hann var meðal þeirra sem lásu handritið yfir og komu með góð ráð en aðrir í þeim hópi voru dóttursynir Lúðvíks; Lúðvík Ólafsson, fyrrverandi hér- aðslæknir í Reykjavík, og Davíð Oddsson, nú ritstjóri Morgunblaðs- ins. Farsæll maður og dáður læknir  Ævisaga Lúðvíks Norðdals Davíðssonar komin út  Sveitapiltur braust til mennta  Læknir á Eyrarbakka og síðar á Selfossi  Fór í vitjanir á hestum og var í framboði  Hlýr og ljúfur maður Skrásetjari „Merkileg heimild um samfélag hans tíma þegar sinna þurfti læknisverkum við erfiðar aðstæður, að minnsta kosti á mælikvarða dagsins í dag,“ segir Lýður um bókina um Lúðvík lækni sem hann heldur hér á. Rithöfundurinn Lani Yamamoto, sem hefur um langt árabil búið og starfað hér á landi, er einn sex al- þjóðlegra rithöfunda sem eiga verk á stuttlista nýrra bókmenntaverð- launa sem verða veitt annað hvert ár, The Novel Prize. Lani er tilnefnd fyrir handrit nýrrar, óútgefinnar skáldsögu, Ours and Others’. The Novel Prize eru samstarfs- verkefni þriggja útgáfa, Fitzcarr- aldo Editions, Giramondo og New Directions. Verðlaunin verða veitt fyrir bókmenntaverk sem er skrifað á ensku, útgefið eða óútgefið. Nærri 1.500 verk voru lögð fram, eftir höf- unda víða að úr heiminum. Sigurveg- arinn fær 10 þúsund dala fyrirfram- greiðslu að útgáfusamningi og verður verðlaunabókin gefin út á Bretlandseyjum, í Ástralíu, á Nýja- Sjálandi og í Bandaríkjunum. Auk Lani eru tilnefnd á stuttlista verðlaunanna ástralski rithöfund- urinn Jessica Au, fyrir Cold Enough for Snow; Glenn Diaz frá Filipps- eyjum fyrir Yñiga; hin bandaríska Emily Hall fyrir The Longcut; kín- versk-kanadíski höfundurinn Christine Lai fyrir Landscapes; og hin bandaríska Nora Lange er til- nefnd fyrir söguna Us Fools. Lani hefur verið búsett á Íslandi í aldarfjórðung. Saga hennar, Ours and Others’, er sögð dularfull ráð- gáta í tveimur hlutum. Í þeim fyrri segir af barni fyrrverandi leiðtoga sértrúarhreyfingar sem leitar í endalausum skógi að systkini sem hefur flúið. Í seinni hlutanum vaknar sögumaðurinn minnislaus upp í undarlegu eyðilandi og reynir að átta sig á fortíðinni. Lani hefur skrifað og mynd- skreytt sex bækur fyrir börn og hafa þær komið út á 14 tungumálum. Hún hefur verið tilnefnd til Bókmennta- verðlauna Norðurlandaráðs og Ís- lensku bókmenntaverðlaunanna. Lani tilnefnd til nýrra verðlauna  Nær 1.500 handrit voru send inn Morgunblaðið/Ómar Rithöfundurinn Lani Yamamoto hefur skrifað og myndskreytt sex bækur á undanförnum árum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.