Morgunblaðið - 22.12.2020, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 22.12.2020, Qupperneq 19
19 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. DESEMBER 2020 Skriður Fundur var haldinn fyrir Seyðfirðinga í gær vegna stöðunnar sem þar hefur skapast í kjölfar aurskriðna. Jens Hilmarsson vettvangsstjóri á Seyðisfirði ræðir hér við viðstadda. Eggert Jólin eru hátíð barnanna og þegar ég var barn hlakkaði ég mikið til jóla. Á aldr- inum 6-12 ára bjó fjöl- skylda mín í 40 m² íbúð, mamma ásamt fjórum börnum sín- um. Tilhlökkun til jólanna var fölskva- laus því á þessum ár- um voru vissulega þrengsli og oft lítið á borðum en það ríkti öryggi á heimilinu og enginn þurfti að vera kvíðinn eða hræddur. Ég hlakkaði til að fá epli, jólamat og konfekt. En gjafir voru aðalatriðið svo það sé nú sagt. Ég fékk nýjan kjól sem mamma saum- aði og þegar jólin gengu í garð var maður aldeilis hreinn og fínn. Nú styttist í jólin. Í þakklæti mínu fyrir að hafa átt áfengis- og ofbeldislaust skjól á heimili mínu góðan hluta bernskuáranna verður mér hugsað til barna sem nú kvíða jólunum vegna heimilisaðstæðna. Ástæður geta verið fjölmargar. Fátækt ber fyrst að nefna því fá- tækt er raunverulegt vandamál á Íslandi. Enda þótt við sjáum ekki grátandi börn á götunni að betla er talað um að um 5.000 börn búi við fátækt, og sum hver sára fátækt, í Reykjavík. Á heim- ilum þar sem fátækt ríkir er oft lítið um jólaglaðninga, kannski eru kertaljós en engin klæði rauð. Fátækt á sér marg- ar birtingarmyndir. Hér áður fyrr voru margar fjölskyldur bláfátækar og þurftu að sníða sér stakk eft- ir vexti. Sá stakkur var stundum níð- þröngur. Til að ná endum saman var unnið myrkr- anna á milli. Á þessum árum bjuggu stórar fjölskyldur í litlu rými og þótti ekki tiltökumál. Þetta hefur mikið breyst og eru mælikvarðar, viðmið, væntingar og viðhorf nú öll önnur. Rými eru stærri, meira úrval af öllu og fleiri sóknarfæri. Samt sem áður er góð- ur hópur fólks hér á landi sem hef- ur það skítt því það býr við fátækt í allri merkingu þess orðs. Þetta eru einstaklingar, einstæðir for- eldrar, öryrkjar á sínum lágu bót- um og allt of margir eldri borgarar sem horfa þurfa í hverja krónu þegar velja á jólagjöf handa barna- börnunum. Neysla og ofbeldi Það er ekki eingöngu fátækt ein og sér sem er erfið börnunum og fjölskyldum þeirra. Sum börn búa stundum bæði við fátækt og neysluvanda foreldra. Á sumum heimilum er einnig heimilisofbeldi sem stundum beinist ekki aðeins að maka heldur einnig börnunum sjálfum. Á heimilum þar sem fjöl- þættur vandi ríkir (fátækt, neysla og ofbeldi) eru kannski hvorki kertaljós né klæðin rauð. Við get- um öll sett okkur í spor barnanna og fundið hversu stór kvíðahnút- urinn er í maga þeirra. Þau hugsa hvernig aðfangadagskvöld og jólin öll verði hjá þeim að þessu sinni. Verður þetta eins og venjulega, kannski betra eða verður þetta verra? Það gæti nefnilega orðið verra núna því við lifum á ótrúlegum tímum. Í kjölfar Covid-19 hefur komið í ljós að tilkynningum til barnaverndarnefnda hefur fjölgað. Um er að ræða aukningu tilkynn- inga þar sem börn eru beitt lík- amlegu og andlegu ofbeldi á heim- ili sínu. Af þessu hljótum við öll að hafa miklar áhyggjur. Börnin sjálf ræða oft ekki um þessi erfiðu mál út á við. Sum fela þjáningar sínar og halda niðri í sér óttanum. Mörg eru einnig að verja heimilisfólkið, vilja ekki koma því í vandræði og óttast einnig að ef þau segja frá verði þau skömmuð. Barn í aðstæðum sem þessum verður að vita að það er leið út. Það má aldrei missa vonina. Minn- ingar um jól þar sem neysla með tilheyrandi fylgikvillum réð ríkjum eru minningar sem seint hverfa í gleymsku. Við sem hluti af sam- félagi þurfum hvert og eitt okkar að vera á vaktinni, tilbúin að stíga inn og koma til aðstoðar vitum við af barni sem er í einhverjum ofan- greindum aðstæðum. Við eigum að láta okkur varða málefni allra barna sem verða á vegi okkar eða eru í umhverfi okkar. Við eigum að vera almennt forvitin um að- stæður barna, jafnvel afskiptasöm, þora að spyrja óþægilegra spurn- inga og ávallt taka slaginn fyrir börn. Börn eiga alltaf að njóta vaf- ans. Ef við höfum minnsta grun um að barn búi við óviðunandi að- stæður, s.s. sára fátækt, neyslu- vanda umönnunaraðila og/eða of- beldi, ber okkur samkvæmt íslenskum lögum að tilkynna málið til barnaverndarnefndar. „Til- kynning“ er ein tryggasta leiðin til að hjálpa barni við þessar að- stæður, ekki eingöngu til skemmri tíma heldur til lengri tíma. Til- kynning af þessu tagi gæti verið besta jólagjöfin sem barnið fær þetta árið. Almennur tilkynnandi getur tilkynnt undir nafnleynd. Sum sveitarfélög eru með sér- stakan tilkynningarhnapp fyrir börn á heimasíðu sinni þar sem þau geta tilkynnt sjálf ef eitthvað er ekki í lagi, hvort sem þau hafa orðið vitni að ofbeldi eða það bein- ist að þeim sjálfum eða vinum þeirra. Reykjavík er eitt þeirra sveitarfélaga. Með þessu fyrir- komulagi er verið að gefa röddum barna meira vægi. Mikilvægt er að hnappurinn höfði til barnanna og sé á sem flestum tungumálum. Umfram allt þurfa börn að vita af tilkynningarhnappnum. Það er til- laga undirritaðrar að sveitarfélög sem ekki hafa nú þegar slíkan hnapp ætlaðan börnum komi hon- um upp. Einnig er lagt til að sveit- arfélög fari í sérstakt átak að aug- lýsa tilkynningarhnappinn og átakið feli í sér fjölbreyttar að- ferðir til að ná tilætluðum árangri. Eftir Kolbrúnu Baldursdóttur » Við eigum að vera al- mennt forvitin um aðstæður barna, jafnvel afskiptasöm, þora að spyrja óþægilegra spurninga og ávallt að taka slaginn fyrir börn Kolbrún Baldursdóttir Höfundur er sálfræðingur og oddviti Flokks fólksins í borgarstjórn. kolbrun.baldursdottir@reykjavik.is Kertaljós og klæðin rauð

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.