Morgunblaðið - 22.12.2020, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. DESEMBER 2020
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
„Hjartað í manni er ekki á réttum
stað þessa dagana. Þetta er hreint út
sagt skelfilegt. Við þökkum Guði
fyrir að enginn skyldi hafa farist í
þessum hrikalegu hamförum,“ sagði
Þorvaldur Jóhannsson, fyrrverandi
bæjarstjóri og skólastjóri á Seyðis-
firði. Hann hefur búið þar í 60 ár.
„Það er sögulegur atburður að
íbúar heils byggðarlags, 700 manns,
skuli hafa vera fluttir burt á þremur
klukkutímum. Það gekk alveg ótrú-
lega vel,“ sagði Þorvaldur. Hann
fékk að skjótast heim til sín eftir há-
degið í gær og sækja það sem hann
vanhagaði um.
Þorvaldur segir að eyðileggingin á
Seyðisfirði sé þyngri en tárum taki.
„Kaupstaðarmyndun bæjarins og
saga byrjaði fyrir aldamótin 1900
einmitt þar sem flóðin fóru yfir.
Norðmennirnir byggðu athafna-
svæði sín akkúrat á þeim stað. Við
töldum þetta svæði vera öruggara
en mörg önnur,“ sagði Þorvaldur.
„Gríðarlega mikil menningar-
verðmæti fóru þarna forgörðum.
Það var búið að setja verulega mikla
peninga í að byggja þessi hús upp og
halda þeim við. Það var hvergi ann-
ars staðar til jafn samstæð byggð
svona húsa. Þau tengdust Norð-
mönnum, svonefnd schweizer-hús,
smíðuð í Noregi og einingarnar
merktar þar. Svo var þeim raðað
saman hér,“ sagði Þorvaldur.
Hann segir að Seyðfirðingum hafi
alltaf verið sagt að hreinsa vel úr
giljum og lækjarfarvegum svo vatn
og aur ætti greiða leið til sjávar. Það
hafi verið gert reglulega. „Þetta var
alltaf í lækjarfarvegunum áður fyrr.
Ég man flóðin 1974 og 1989 og þau
fóru um farvegina. Nú gerðist eitt-
hvað alveg nýtt. Heilu jarðvegsfyll-
urnar á milli lækjarfarveganna fóru
af stað mettaðar af bleytu! Flóðið
sem tók Tækniminjasafnið, Silfur-
höllina, Slippinn og allt þetta var
svakalegt. Menn standa svolítið ráð-
þrota og vita varla hvernig á að
bregðast við,“ sagði Þorvaldur.
Hann segir að flestir séu sammála
um að minnka þurfi vatnsþrýsting-
inn í Botnum ofan við bæinn. Þar
sitji vatnið í 30-40 metra þykkum
jarðvegi ofan á klöppunum. Ræsa
þurfi bleytuna fram og um það hafi
verið rætt í nokkur ár.
„Áður en ég fór upp á Hérað
heyrði ég að vatnssúlan í mæliholum
uppi í Botnum hefði verið orðin sex-
tán metra há. Það er ekkert smá-
ræði. Þarna safnast gríðarlegt vatn
og þrýstir á jarðveginn. Nú lét hann
undan og fór af stað. Menn standa
hér frammi fyrir nýrri áskorun, þótt
við höfum þekkt þetta í öll þessi ár.“
Þorvaldur sagði alveg einstakt
hvernig samfélagið hefur haldið ut-
an um Seyðfirðinga í hörmungunum.
„Það streyma að hlý orð og gjafir,
jafnvel utan úr heimi. Það er jákvætt
að menn standi saman þegar svona
atburðir gerast.
En ég veit ekkert hvar ég held jól.
Við fjölskyldan ætlum að setja upp
B-plan ef við fáum ekki að fara heim.
Það er búið að bjóða öllum Seyðfirð-
ingum að fljúga suður á 75% af-
slætti. Svo er hægt að fá herbergi á
hóteli sem stendur tómt í Reykjavík
með 60 herbergjum og vera þar yfir
jól og áramót,“ sagði Þorvaldur.
Morgunblaðið/Eggert
Seyðfirðingur Þorvaldur Jóhannsson, fyrrverandi bæjarstjóri í bænum, segir eyðilegginguna meiri en tárum taki.
Hjartað í manni er ekki á
réttum stað þessa dagana
Ræsa þarf fram vatn sem safnast upp ofan við bæinn
Viðar Guðjónsson
Lilja Hrund Ava Lúðvíksdóttir
Enn hafa íbúar hættusvæða á Seyð-
isfirði ekki fengið að snúa heim til
sín að fullu vegna skriðuhættu. Þess
er vænst að næsta tilkynning um
rýmingu verði send út í hádeginu í
dag en fyrstu skriðurnar féllu fyrir
viku.
Sveinn Óskarsson, björgunar-
sveitarmaður í björgunarsveitinni
Ísólfi, stóð í ströngu í gær við að
fylgja fólki inn á hættusvæðið en
þangað máttu íbúar fara í skamma
stund til að sækja brýnustu nauð-
synjar.
„Þetta eru um það bil 60 heimili og
það voru svona einn til tveir sem
fengu að fara inn á hvert heimili að
sækja brýnustu nauðsynjar,“ sagði
Sveinn í samtali við blaðamann í
gær.
„Við vorum að reyna að klára
þetta þannig að allir fengju að fara
fyrir myrkur svo við báðum fólk um
að gera þetta eins hratt og hægt var.
Það voru allir glaðir að fá að fara,
það er mikill skilningur á þessu
hérna í bænum. Fólk sótti lyf og ég
er til dæmis með veski í vasanum
sem einn greip hjá nágranna sínum
og þarf að koma til skila,“ sagði
Sveinn.
Þar sem ekki er rafmagn á mörg-
um húsum fá sumir ekki að fara inn á
heimili sín. „Það er eitthvað í útbæn-
um þar sem fólk fer ekki inn. Við fór-
um hérna á svæðið þar sem fyrri
skriðan fór og að henni en ekkert á
svæðið fyrir utan,“ sagði Sveinn.
Fjórir ráðherrar ríkisstjórnarinn-
ar fara til Seyðisfjarðar í dag. Áður
höfðu ráðherrarnir ætlað sér að fara
til Seyðisfjarðar á mánudag en sú
ákvörðun var endurskoðuð í samráði
við heimamenn, að sögn aðstoðar-
manns ráðherra. Þeir hafi í nægu að
snúast í kjölfar skriðnanna. Ráð-
herrarnir sem heimsækja fjörðinn
eru Katrín Jakobsdóttir forsætis-
ráðherra, Bjarni Benediktsson fjár-
málaráðherra, Sigurður Ingi Jó-
hannsson samgöngu- og sveitar-
stjórnarráðherra og Áslaug Arna
Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráð-
herra.
Varðskipið Týr við Seyðisfjörð
Áhöfnin á varðskipinu Tý flutti 18
kör af fiski frá bryggjunni við frysti-
húsið á Seyðisfirði yfir á ferju-
bryggjuna í gær til að bjarga verð-
mætum. Þetta staðfestir Ásgeir
Erlendsson upplýsingafulltrúi
Landhelgisgæslunnar.
Varðskipið hefur verið við Seyðis-
fjörð til þess að geta boðið fram að-
stoð sína ef þörf er á vegna skriðu-
falla. Áhöfn Týs fór yfir fjörur og
kannaði hafnarsvæðið í gær. Þá fjar-
lægði hún meðal annars álplötur úr
sjó. Ekki liggur fyrir hversu lengi
Týr verður á staðnum.
„Sú ákvörðun er tekin í samráði
við almannavarnir og viðbragðsaðila
á Seyðisfirði,“ segir Ásgeir.
Hafa enn ekki fengið að snúa heim
Íbúar um 60 heimila sóttu brýnustu nauðsynjar á heimili sín í fylgd björgunarsveitarmanna Sumir
gátu ekki farið inn á heimili sín vegna rafmagnsleysis Ráðherrar heimsækja Seyðisfjörð í dag
Morgunblaðið/Eggert
Snjór Loftmynd af Seyðisfirði eins og fjörðurinn leit út í gær. Fönnin var mörgum Seyðfirðingum kærkomin sjón.
Aurskriður á Seyðisfirði
Það hefur sýnt sig að íslenska þjóðin stendur
saman, sýnir stuðning og samhug
eftir bestu getu.
Hægt er að leggja framlög inn á reikning
nr. 0101-26-35021, kt. 470269-1119
S. 551 4349, 897 0044, maedur@simnet.is
Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur
JÓLASÖFNUN
CR-2020-000072
IN THE HIGH COURT OF JUSTICE
BUSINESS AND PROPERTY COURTS OF ENGLAND ANDWALES
COMPANIES COURT (ChD)
IN THE MATTER OF
STEAMSHIP MUTUAL UNDERWRITING ASSOCIATION LIMITED
-and-
STEAMSHIP MUTUAL UNDERWRITING ASSOCIATION (EUROPE) LIMITED
-and-
IN THE MATTER OF
PART VII OF THE FINANCIAL SERVICES AND MARKETS ACT 2000
NOTICE
NOTICE IS HEREBY GIVEN that on 2 December 2020 the High Court of Justice made
an Order (“the Order”) under Part VII of the Financial Services and Markets Act 2000
(“FSMA”) in connection with the insurance business transfer scheme (“the Scheme”)
between (i) Steamship Mutual Underwriting Association Limited (“SMUAL”) and
(ii) Steamship Mutual Underwriting Association (Europe) Limited (“SMUAE” and,
together with SMUAL, the “Club”). The Order:
1. sanctions the Scheme pursuant to which certain insurance and reinsurance
business of SMUAL shall transfer to SMUAE and
2. makes ancillary provisions in connection with the Scheme pursuant to Section
112 of FSMA.
The transfer of the insurance business pursuant to the Scheme became effective at
noon London time on 20 December 2020. If you have any questions as to whether
your policy was included in the transfer please contact Graham Jones (contact details
below). Copies of the Order can be obtained free of charge by writing to Graham Jones
at graham.jones@simsl.com or Steamship Insurance Management Services Limited,
AquaticalHouse, 39 Bell Lane, London E1 7LU. Alternatively, copies can be downloaded
from the Club’s website at http://www.steamshipmutual.com/restructure.htm.
Policyholders whose policies are includedwithin the transfer may have a right under
the law of the relevant EEA state (being the EEA state in which the risk covered by
their policy is situated) to cancel their policy. The period for cancellation of such
policy shall be the period of 21 days starting from the date of this notice or such other
period as provided for by the laws of the relevant EEA state. Further details regarding
the rights of cancellation under the laws of the relevant EEA states can be found in
the Frequently Asked Questions document on the Club’s website at http://www.
steamshipmutual.com/restructure.htm.
If any policyholder intends to cancel their policy as outlined above they should contact
Graham Jones using the details above as soon as possible.
DATED this 22nd day of December 2020
Reed Smith LLP, The Broadgate Tower, 20 Primrose Street, London, EC2A 2RS
Tel: +44 (0)20 3116 3000 | Fax: +44 (0)20 3116 3999 | Ref: PMT/JH/755121.02689
Solicitors for SMUAL and SMUAE