Morgunblaðið - 22.12.2020, Page 40

Morgunblaðið - 22.12.2020, Page 40
Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Fyrir um 40 árum geystist Einar Már Guðmundsson fram á ritvöllinn og þá komu út þrjár fyrstu ljóðabæk- ur hans, Er nokkur í kórónafötum hér inni?, Sendisveinninn er einmana og Róbinson Krúsó snýr aftur, en Mál og menning hefur nú gefið þær út saman í einni bók. Þótt Einar Már hafi komið víða við frá 1980 er ljóðið alltaf ofarlega í huga rithöfundarins. „Ljóðin eru yfir og allt um kring,“ segir Einar Már. Bendir meðal ann- ars á að ljóðatímabil hafi komið á um tíu ára fresti hjá sér. Ljóðin séu stundum ákveðin leið inn í skrif í sagnaskáldskap, eins og að finna andann í skrifunum. „Þau eru líka ákveðinn heimur út af fyrir sig og mikilvæg fyrir tungumálið. Beint samband við hlustandann og lesand- ann.“ Einar Már segist hafa verið búinn að semja ljóð í sjö til átta ár þegar hann áttaði sig á því að hann átti efni í þrjár bækur. Hann hafi þá verið í framhaldsnámi í bókmenntum við Kaupmannahafnarháskóla og enginn viljað gefa út ljóðin. „Ég gaf því út tvær fyrstu bækurnar sjálfur, upp- lagið var 600 eintök af hvorri,“ rifjar hann upp. Hann seldi þær sjálfur, byrjaði á vinnustöðum á morgnana, seldi þær á götuhornum og endaði á börum á kvöldin. „Sumir sögðu að ég væri góður sölumaður en ljóðin hittu einhvern nagla sem þurfti að hitta.“ Þau hafi þótt stórkarlaleg og kjaft- for, uppreisnargjörn. „Menn byrja í uppreisn og banka síðan á dyr hefð- arinnar, en taka uppreisnina oft með sér inn,“ útskýrir hann. „Þetta eru þessar samræður á milli þess nýja og þess sem fyrir er.“ Samfara náminu vann Einar Már sem hreingerningamaður hjá sjó- hernum. „Lífið var svolítil keppni á milli ljóðsins og gólftuskunnar,“ rifj- ar hann upp. Á uppleið Eftir um hálft ár í vinnunni hafi hann verið með reyndari starfs- mönnum, því mannaskipti hafi verið ör. „Ég átti nokkra framavon sem hreingerningamaður.“ Gæti hafa unnið sig frá gólfinu upp í fjórhjóla hreinsivélina og jafnvel bónvélina enda sá hann þá ekki fyrir Engla al- heimsins og fleiri merkileg verk, Bókmenntaverðlaun Norðurlanda- ráðs og Íslensku bókmenntaverð- launin auk annarra viðurkenninga. „Ljóðið sigraði gólftuskuna, ég gat borgað prentkostnaðinn og haldið áfram að skrifa.“ Líðandi ár hefur vægast sagt verið öðruvísi en önnur í manna minnum. Einar Már segist vera vanur því að vera á ferðinni og tala um skáldskap, hitta mann og annan, vera í upplestr- arferðum, kynna verkin á sviðinu, en kórónuveirufaraldurinn hafi sett stórt strik í reikninginn. „Hvert skáld er eiginlega eins og hljómsveit og ef ég væri hljómsveit væru nokkr- ir hittarar í þessum bókum.“ En sam- komutakmarkanir komi í veg fyrir að menn stígi á svið. Hann vinnur nú að skáldsögu og segist vera langt kominn með hana. „Það er ekkert annað í stöðunni en að láta allt sem minnst á sig fá og halda sínu striki. Ég verð bara áfram í mín- um helli að vinna.“ Morgunblaðið/Árni Sæberg Rithöfundur Einar Már Guðmundsson upplifði ýmislegt fyrir 40 árum en svo fór að ljóðið sigraði gólftuskuna. Gólftuskan og ljóðið  Einar Már átti framtíð fyrir sér sem hreingerningamaður Allt fyrir góðan svefn og betri heilsu JÓLA- BÆKLINGURINN ER KOMINNÚT FRÁBÆR JÓLATILBOÐ Skoðaðu bæklinginn á svefnogheilsa.is ÞRIÐJUDAGUR 22. DESEMBER 357. DAGUR ÁRSINS 2020 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 697 kr. Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr. PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr. Keppni í bandarísku NBA-deildinni í körfuknattleik hefst á nýjan leik í kvöld, aðeins tveimur og hálfum mánuði eftir að síðasta tímabili lauk loksins í október. Meistararnir í Los Angeles Lakers eru taldir sigur- stranglegastir en talsverðar breytingar hafa orðið á mörgum liðum og þá er mismunandi eftir ríkjum hvar verða áhorfendur á leikjunum og hvar ekki. Gunnar Val- geirsson fer yfir stöðuna í blaðinu í dag. »32 Lakers með sigurstranglegt lið ÍÞRÓTTIR MENNING Í 28 ár hefur kamm- erhópurinn Camer- arctica haldið tón- leikana „Mozart við kertaljós“ í fjórum kirkjum á höfuðborg- arsvæðinu dagana fyr- ir jól og hafa þeir notið mikilla vinsælda. Vegna samkomutak- markana er nú aðeins unnt að bjóða upp á tónleika á netinu. Hall- fríður Ólafsdóttir flautuleikari hóf tónleikaröðina á sínum tíma og hélt henni gangandi öll þessi ár ásamt samstarfsfólki sínu. Ármann Helgason, klarínettuleikari og eiginmaður Hall- fríðar, lék ásamt Camerarctica í Garðakirkju í gær- kvöldi og voru tónleikarnir teknir upp og verður streymt á faceboooksíðu Garðabæjar klukkan 21 í kvöld, þriðjudagskvöld, í minningu Hallfríðar. Tónleikar Camerarctica „Mozart við kertaljós“ sýndir í streymi í kvöld

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.