Morgunblaðið - 29.12.2020, Síða 1
Þ R I Ð J U D A G U R 2 9. D E S E M B E R 2 0 2 0
Stofnað 1913 305. tölublað 108. árgangur
GÓMSÆTT Á VEISLUBORÐIÐ
Lægra verð - léttari innkaup Tilboðin gilda 29.—31. desember
Rauð vínber
599KR/KG
ÁÐUR: 1.198 KR/KG
0%GOTT
VERÐ!Franskur kalkúnnHeill
1.198KR/KG
Nauta rib-eye
Í heilu
2.759KR/KG
ÁÐUR: 4.599 KR/KG
-40% -5
Á SÝNINGUNNI
ER FJÁRSJÓÐUR
ÚR FJÖRU EINEGGJA VÉLSTJÓRAR
SKOÐAR
MANNINN
SEM SKEPNU
MUNAÐI 0,05 Í LOKAEINKUNN, 2 BESTU BÆKUR ÁRSINS 29HRAFN JÖKULSSON 10
Davíð Lúther Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri auglýsingastofunnar
Sahara, telur að Íslendingar hafi
stokkið fjögur ár fram í tímann
stafrænt séð á árinu 2020. Þar vísar
hann t.d. til þess að fyrirtæki sem
litu á það sem þriggja til fjögurra
ára verkefni að koma sér upp net-
verslun og laga sig að stafrænni
tækni, hafi tekið stökkið núna. Þá
hafi almenningur orðið óhræddari
við netverslun í faraldrinum.
Ragnar Gunnarsson fram-
kvæmdastjóri Brandenburg segir
mælingar sýna að Íslendingar hafi
lagt sig fram um að kaupa vöru og
þjónustu innanlands á árinu. Heilt
yfir segir Ragnar að ræst hafi ótrú-
lega vel úr árinu þrátt fyrir allt.
„Til dæmis höfum við sjaldan gert
jafn margar leiknar auglýsingar.“
Hjá Datera hefur veltan tvöfald-
ast á árinu en fyrirtækið sérhæfir
sig í stafrænum birtingum. »12
Viðskipti Netverslun hefur verið mikið
notuð á árinu. Fyrirtækin tóku við sér.
Stukku fjögur ár
fram í tímann
Ýmis gjöld
hjá hinu op-
inbera hækka
um áramótin. Í
flestum til-
vikum er um
gjöld að ræða
sem hækka í
takt við vísitölu
neysluverðs.
Þannig hækka
gjöld á áfengi,
tóbaki og eldsneyti um 2,5%.
Gjaldskrá Sorpu mun að jafnaði
hækka um 24% um áramótin og
Pósturinn hækkar póstburðar-
gjöldin um 15%, á bréfum upp að
tveimur kílóum. Reykjavíkurborg
hækkar aðgangseyri að sundlaug-
um, söfnum og skíðasvæðum. Þá
hækkar útvarpsgjaldið um 2,5%
og fer upp í 18.350 kr. Einnig
hækka leikskólagjöld og mat-
aráskriftir. »4
Dýrara að drekka,
reykja og hlusta
Útvarpsgjaldið
hækkar um 2,5%.
Aron Þórður Albertsson
Andrés Magnússon
Hugmyndir um að hingað til lands
komi nokkur hundruð þúsund
skammtar af bóluefni Pfizer er nú á
viðræðustigi. Málið er mjög við-
kvæmt sem stendur, að því er heim-
ildir Morgunblaðsins herma.
Sömuleiðis herma heimildir
blaðsins að verið sé að falast eftir
allt að 600 þúsund skömmtum. Ef af
verður eru það nægilega margir
skammtar til að bólusetja um 82%
þjóðarinnar.
Fram til þessa hefur verið miðað
við að bólusetja um 60% fullorðinna
til að ná hjarðónæmi hér á landi.
Hins vegar er viðbúið að spurn eftir
bóluefninu verði umfram það. Sam-
kvæmt upplýsingum Morgunblaðs-
ins áttu Þórólfur Guðnason sótt-
varnalæknir og Kári Stefánsson,
forstjóri Íslenskrar erfðagreining-
ar, fund með aðilum frá Pfizer í
gær.
Gera má ráð fyrir að annar fund-
ur verði haldinn í vikunni. Hvorki
náðist í Kára né Þórólf við vinnslu
fréttarinnar. Eins og fyrr segir er
málið á mjög viðkvæmu stigi, en
óljóst er hvenær draga mun til tíð-
inda. Ef af verður er um tilrauna-
verkefni að ræða þar sem kannað er
hvort hægt er að skapa nægilegt
hjarðónæmi til þess að kveða niður
kórónuveiruna hjá heilli þjóð á
skömmum tíma. Aðspurð segir Júlía
Rós Atladóttir, framkvæmdastjóri
Distica, að ekki verði vandamál að
koma skömmtunum á rétta staði
þrátt fyrir stóra sendingu. Hins
vegar hafi enginn rætt við fyrir-
tækið um hvernig haga eigi dreif-
ingu ef samningar um tilraunaverk-
efnið nást við Pfizer. Bandaríska
lyfjafyrirtækið Pfizer var sem
kunnugt er fyrst lyfjafyrirtækja til
þess að fá bráðaleyfi til notkunar á
bóluefninu, sem það þróaði í sam-
starfi við hið þýska BioNTech.
Framlínufólk bólusett fyrst
Bólusetning gegn kórónuveirunni
hefst í dag. Klukkan 9:00 verða
fyrstu skammtarnir veittir í húsa-
kynnum landlæknis, sóttvarnalækn-
is og almannavarnadeildar ríkislög-
reglustjóra. Í hópi þeirra sem
bólusettir verða eru fjórir heilbrigð-
isstarfsmenn úr fyrsta forgangs-
hópi. Skammtarnir í fyrstu send-
ingu eru 12 þúsund talsins og duga
því fyrir sex þúsund manns.
Ríflega sextugur íbúi á hjúkrun-
arheimilinu Seljahlíð verður fyrstur
utan heilbrigðisstéttarinnar til að
verða sprautaður með bóluefni Pfi-
zer. Maðurinn heitir Þorleifur
Hauksson, en hann kvaðst í gær
vera spenntur fyrir deginum. Í dag
verður jafnframt farið á milli hjúkr-
unarheimila og heimilismenn bólu-
settir.
BÓLUSETNING HEFST Í DAG
Viðræður við lyfjarisann
Pfizer á afar viðkvæmu stigi
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Sögulegt Alma Möller landlæknir tók mynd af fyrsta skammti bóluefnisins. Til vinstri er Ásta Valdimarsdóttir, ráðuneytisstjóri heilbrigðisráðuneytisins.
MBóluefni »6, 13, 14
Verið er að falast eftir allt
að 600 þúsund skömmtum
Fyrstu bólusetningarnar
verða veittar klukkan 9:00