Morgunblaðið - 29.12.2020, Síða 2
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Aðeins munaði 0,05 á lokaeinkunn
sem tvíburarnir Anton Proppé og
Brynjar Proppé Hjaltasynir frá
Þingeyri fengu við brautskráningu
frá Tækniskólanum nú skömmu fyr-
ir jól. Bræðurnir brautskráðust af
vélstjórnarbraut véltækniskólans,
sem er ein af námsleiðum Tækni-
skólans, og mega nú stýra vélum
stórskipa, virkjana, verksmiðja og
margs annars.
Fóru heim á Þingeyri
flestar helgar
„Við bræðurnir höfum alltaf
haft gaman af vélum, viðgerðum og
járnsmíði. Því kom eiginlega af
sjálfu sér að við færum í vélstjórnar-
nám, en fyrstu tvo vetur þess gátum
við tekið í framhaldsskólanum á Ísa-
firði og aflað okkur réttinda til að
stýra vélum sem eru allt að 750 Kw.
Haustið 2017 fórum við svo í Tækni-
skólann fyrir sunnan. Annirnar í
skólanum í Reykjavík voru fimm og
því er ekkert að leyna að námið er
ansi stíft á köflum. Rafmagns- og
vélfræði, stillingar, rökrásir og kæli-
tæki – svo ég nefni dæmi – eru fög
sem þarf að leggja sig fram við til að
ná árangri,“ segir Anton og heldur
áfram:
„Við bræðurnir veittum hvor
öðrum aðhald meðan á náminu stóð,
settum kraft í þetta á virkum dögum
til þess að komast heim um helgar.
Við fórum heim flestar helgar og
auðvitað er drjúgur spotti frá
Reykjavík vestur á Þingeyri, eða um
500 kílómetrar. Samt var alveg þess
virði að komast heim, þótt ferðalagið
taki um sex klukkustundir hvora leið
og lengri tíma sé eitthvað að færð. Á
góðum jeppa var þetta þó yfirleitt
vandræðalaust.“
Lokaeinkunn Antons og Brynj-
ars við brautskráningu úr véltækni-
skólanum var um átta og sem fyrr
segir var munurinn milli þeirra í ein-
kunnagjöf aðeins brotabrot.
„Bræðurnir hafa sinnt námi
sínu afskaplega vel og ljúka því ung-
ir. Því var viðurkenning til þeirra
fyrir ástundun og elju við hæfi,“ seg-
ir Hildur Ingvarsdóttir skólameist-
ari Tækniskólans.
Svara fyrir báða
Hjalti Proppé Andrason og
Erna Höskuldsdóttir eru foreldrar
tvíburanna, sem eru elstir sex barna
þeirra. Þau yngri eru 15, 12, sjö og
eins árs. „Já, við bræðurnir erum
eineggja tvíburar, höfum alltaf
fylgst að og verið nánir. Mig hendir
oft aðspurður að segja við en ekki
ég. Ósjálfrátt svara ég fyrir okkur
báða,“ segir Brynjar og bætir við að
þeir Anton hafi snemma farið að
vinna. Fjórtán ára unnið við að salta
grásleppu og svo starfað við fisk-
eldið á Dýrafirði. Þeir hafi ánægju af
veiðiskap og útiveru upp um fjöll og
dali. Einnig fást bræðurnir við skóg-
rækt og hafa gróðursett þúsundir
plantna í Dýrafirði, meðal annars í
Haukadal við utanverðan fjörðinn.
Einnig gróðursettu þeir í Sandafell
ofan við Þingeyrarkauptún beyki,
hlyn og linditré sem dafna vel og
bera bræðrunum gott vitni.
Brotabroti munaði á
einkunnum tvíbura
Ljósmynd/Aðsend
Tvíburarnir Brynjar, til vinstri, og Anton Proppé Hjaltasynir á heimaslóð, hér með Þingeyri og Sandafell í baksýn.
Eineggja vélstjórar að vestan Ástundun og elja
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. DESEMBER 2020
Í baráttu við COVID-19
býður Donnamaska, grímur
og andlitshlífar sem eru
gæða vara frá DACH og
notuð um allan heim.
Vefverslun: www.donna.is
Erum nú á Facebook: donna ehf
Öryggið í fyrirrúmi fyrir lærða sem leika
Sími 555 3100 www.donna.is
Heildsöludreifing
Type II 3ja laga
medical andlitsgríma
FFP3 Respirator Comfort
andlitsgríma með ventli
FFP3 High-Risk
andlitsgríma
Andlitshlíf
móðufrí
C-gríma Pandemic
Respirator andlitsgríma
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson
menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Faraldur kórónuveirunnar hefur
sett allt úr skorðum á Íslandi eins
og alls staðar í heiminum. Nú er
bólusetning að hefjast og þá vakn-
ar sú spurning hvort hægt verði að
bjarga þorrablótunum á næsta ári?
„Þetta er allt í mikilli óvissu, því
miður,“ segir þorrakóngurinn Jó-
hannes Stefánsson í Múlakaffi,
þegar blaðið leitaði álits hans.
Jóhannes hefur verið veitinga-
maður í meira en 40 ár og boðið
upp á þorramat öll árin.
Jóhannes og hans fólk hafa í ár-
anna rás þjónustað íþróttafélög og
félagasamtök sem haldið hafa fjöl-
menn þorrablót, og skipta þau þús-
undum. Það fjölmennasta var í
Kópavogi í fyrra, 2.600 manns, sem
er heimsmet að sögn Jóhannesar.
Hann hefur verið í sambandi við
stærstu félögin undanfarið.
„Það ætla allir að halda þorra-
blót, enda er þetta gífurlega mikil-
væg tekjulind,“ segir Jóhannes.
„Menn hafa verið að skoða það að
halda blótin jafnvel í apríl í þeirri
von að búið verði að bólusetja nógu
marga þá. Aðrir eru að hugsa um
fjarblót en þetta á allt eftir að
koma í ljós.“
Kokkarnir í Múlakaffi lögðu
matinn í súr í september, jafn-
mikið og venjulega, eða um 10
tonn.
Múlakaffi á 65 ára afmæli á
þessu ári og hefur selt þorramat í
62 ár, alltaf á veitingastaðnum
sjálfum. En nú verður breyting á.
„Í fyrsta skipti í sögunni fer ég
með hjónabakkana vinsælu út í
verslanir. Við gerðum samning við
Krónuna og bakkarnir verða á
boðstólum í verslunum þeirra frá
og með 8. janúar, hálfum mánuði
áður en þorrinn hefst,“ segir Jó-
hannes.
Hann segist á löngum ferli í
veitingamennsku aldrei áður hafa
kynnst jafn ömurlegu ári og 2020.
„Það eina jákvæða sem ég sé í
þessu er að næsta ár getur ekki
orðið ömurlegra. Og svo er þorrinn
handan við hornið og Íslendingar
geta farið að hlakka til,“ segir
þorrakóngurinn að lokum. Ekki
eru nema rétt rúmar þrjár vikur
þangað til þorrinn gengur í garð.
Verða þorrablótin haldin í apríl?
Þorrakóngurinn segir mikla óvissu
Selur matinn í búðum í fyrsta sinn
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Þorrakóngurinn Jóhannes Stefánsson og hans fólk lögðu 10 tonn í súr í haust.
Nú er allt að verða tilbúið og maturinn verður á boðstólum frá 8. janúar.
Það var mikið fjör og mikið gaman í
síðasta bingói K100, mbl.is og
Morgunblaðsins sem var í beinni út-
sendingu á mbl.is í gær.
„Manni er fyrst og fremst þakk-
læti efst í huga til þeirra tuga þús-
unda sem hafa spilað með okkur
bingó frá því að við hófum leik und-
ir lok október. Þetta er búinn að
vera mikill rússíbani en nú látum
við staðar numið, að minnsta kosti í
bili en hver veit nema við förum aft-
ur af stað á nýju ári,“ segir Sig-
urður Þorri Gunnarsson bingó-
stjóri.
„Áramótabingóið gekk gríð-
arlega vel. Við gáfum 65 tommu
sjónvarp frá Samsung í aðalvinning
ásamt því að gefa fullt af flugeldum
og öðru góssi,“ svarar hann spurð-
ur um hvernig hafi gengið. „El-
ísabet Ormslev hljóp í skarðið fyrir
Sölku Sól sem forfallaðist á síðustu
stundu og algerlega geislaði. Gam-
an að fá hana í heimsókn,“ bæti Sig-
urður Þorri við.
„Svo er vert að hvetja fólk til þess
að ganga hægt um gleðinnar dyr á
áramótunum og passa sig með flug-
eldana. Ég lenti í því að gölluð con-
fetti-sprengja sprakk í höndunum á
mér í beinni og mátti litlu muna að
illa færi. Svo í guðanna bænum far-
ið varlega á næstu dögum.“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Stuð Það var aldeilis fjör í gærkvöldi og fengu fjölmargir vinninga.
Flugeldar runnu út