Morgunblaðið - 29.12.2020, Page 6

Morgunblaðið - 29.12.2020, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. DESEMBER 2020 Volkswagen ID.3 Family að verðmæti 5.890.000 kr. 48141 Greiðsla upp í bifreið eða íbúð að verðmæti 1.000.000 kr. 85810 106744 123495 Úttekt hjá ferðaskrifstofu eða verslun að verðmæti 100.000 kr. 1895 2947 3287 4747 6081 6122 8068 8629 9815 10470 12132 12910 13438 15219 15844 17447 18257 19432 21718 22809 25411 27823 30134 30966 31370 32777 34376 37448 37752 38538 38592 39995 41386 42455 44103 47144 48809 49822 51754 52095 52098 52670 52927 54695 55591 57839 59016 59814 60161 61689 61767 62396 64154 64681 67028 67193 69430 70931 72663 73416 74120 74470 74507 74941 75367 75442 76471 76922 78454 79121 79570 81033 81764 82788 84341 84394 85458 85698 85944 86913 87499 88419 89266 90577 90667 92006 94596 95076 96356 96903 97267 97416 100331 102361 102502 103091 103458 104374 106722 108745 109050 109333 109379 110676 110786 110876 111113 111145 111287 111980 112208 113147 113663 113843 114001 114880 117587 118165 118965 119848 121542 122942 123783 124739 124854 125150 125657 127070 128431 128488 130157 130254 133066 133800 137768 138098 138170 139210 140538 141757 145057 145820 147894 148098 148934 149282 149540 150992 151247 152699 157040 157305 157408 Bi rt án áb yr g› ar Úttekt hjá ferðaskrifstofu eða verslun að verðmæti 200.000 kr. 676 940 2656 4352 8831 16143 17713 17829 23624 23677 25218 26105 26842 29407 30579 31001 31979 32291 32640 32927 33960 36022 36459 38450 40396 41049 42072 42226 42699 43319 47078 49754 50623 52468 53600 57071 59437 59601 59692 59711 61785 61929 64432 65727 66167 67608 67730 69881 72304 72628 72653 73314 74638 77699 78970 78989 84727 85910 86007 86320 88632 88732 89379 90576 92993 94402 96738 97861 98408 98582 99502 99677 99811 99967 101179 101411 102966 103343 103572 107944 108390 108673 108777 108976 110733 111124 111579 112066 114077 115572 115986 116397 117015 119467 121435 122924 123689 126445 127606 129095 131010 132222 133826 138070 141445 149362 149676 151105 153897 155599 Krabbameinsfélagi› þakkar landsmönnum veittan stu›ning. Krabbameinsfélagsins VINNINGAR Handhafar vinningsmi›a framvísi þeim á skrifstofu Krabbameinsfélagsins a› Skógarhlí› 8, sími 540 1900. Byrja› ver›ur a› grei›a út vinninga þann 8. janúar nk. útdráttur 24. desember 2020 Jólahappdrætti Alexander Kristjánsson alexander@mbl.is Fyrsta sending af bóluefni lyfjafyr- irtækjanna Pfizer og BioNTech kom til landsins í gær. Svandís Svav- arsdóttir heilbrigðisráðherra og þríeyki almannavarna voru viðstödd ásamt fjölmiðlum þegar bóluefnið kom á áfangastað í vöruskemmu dreifingarfyrirtækisins Distica í Garðabæ. Efnið lætur ekki mikið yfir sér, tíu þúsund skammtar í tveimur litlum kössum. En þeir eru sögulegir, sagði Svandís þegar hún ávarpaði samkomuna. Þeir væru til marks um að bjartari tímar eru fram undan. Fimm þúsund bólusettir „Það er alveg rétt að kassarnir láta ekki mikið yfir sér, en innihaldið er þeim mun merkilegra og áhrifa- ríkara,“ segir Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir. Nú sé hægt að hefj- ast handa við að bólusetja viðkvæm- ustu hópa samfélagsins. Bólusetningarnar hefjast í dag. Sá fyrsti til að fá bólusetningu verður ríflega sextugur íbúi á hjúkr- unarheimilinu Seljahlíð klukkan 10. Því næst verður hafist handa við að bólusetja ríflega þúsund heilbrigð- isstarfsmenn og á fjórða þúsund íbúa hjúkrunarheimila, en skammturinn dugar fyrir 5.000 manns enda þarf hver tvo skammta. Vonandi tilslakanir í janúar Spurður hve marga þarf að bólu- setja áður en hægt er að slaka á sótt- varnaaðgerðum segir Þórólfur: „Það er erfitt að segja nákvæmlega til um það, en það er eitt af því sem við höf- um mikinn áhuga á að rannsaka og svara: hvað þarf að bólusetja marga til að ná þessu svokallaða hjarð- ónæmi?“ Þórólfur segir að í upphafi verði áhersla lögð á þá sem viðkvæmastir eru fyrir Covid-sýkingu og að von- andi verði hægt að slaka á aðgerðum þegar sá hópur hefur verið bólusett- ur. Núgildandi reglugerð um sam- komutakmarkanir fellur úr gildi 12. janúar og bindur Þórólfur vonir við að þá verði hægt að slaka nokkuð á takmörkunum. Ísland hefur þegar tryggt sér 250.000 skammta af bóluefni Pfizer eftir að samið var um kaup á 80.000 skömmtum í gær. Næstu þrjá mán- uði munu 3-4.000 skammtar af efninu berast vikulega eða alls 50.000 skammtar út mars. Ekkert liggur fyrir um tímaáætlun afhendingar eft- ir það. Viðræður við Pfizer í vikunni Þórólfur og Kári Stefánsson, for- stjóri Íslenskrar erfðagreiningar, hafa hins vegar gefið út að þeir muni ræða við stjórnendur Pfizer með það fyrir augum að fá þá til að flýta af- hendingaráætluninni fyrir Ísland. Þannig mætti bólusetja allt sam- félagið á stuttum tíma og ná hér hjarðónæmi sem nýta mætti til rann- sókna. Aðspurður segir Þórólfur að með því fengjust verðmæt svör við ýms- um spurningum sem brenna á fyrir- tækinu sem öðrum, svo sem hvað þurfi til að ná hjarðónæmi, hversu vel bóluefnið virki gegn mismunandi veirustofnum og hvað myndi gerast ef aðgerðum á landamærum væri af- létt eftir að hjarðónæmi er náð. Telur Þórólfur að Íslendingar séu í sterkri stöðu til að rannsaka þessa þætti. „Við erum með mjög sterka innviði, við fylgjumst með öllum hlut- um í tengslum við þessa bólusetn- ingu, erum með mjög góða skráningu og höldum utan um allar nauðsyn- legar upplýsingar. Þá er engin þjóð sem raðgreinir jafnmikið og við. Við höfum alla burði til að gera þessa rannsókn og svara þessum mik- ilvægu spurningum,“ segir Þórólfur. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Bóluefni Tekið var á móti bóluefninu í vörumóttöku Distica í Garðabæ í gærmorgun. Bólusetningar hefjast um landið allt í dag  10.000 skammtar komu til landsins með flugi í gær Guðni Einarsson gudni@mbl.is „Enn er ákveðinn hluti húsa á Seyð- isfirði rýmdur,“ sagði Björn Ingi- marsson sveitarstjóri Múlaþings en Seyðisfjörður er í sveitarfélaginu. Hann sagði að rýmingar ættu t.d. við um öll húsin við Botnahlíð, næst fjallinu nálægt þar sem fyrstu skriðurnar féllu. Einnig er hluti húsa við Austurveg og öll Fossgata rýmd. „Þetta verður áfram til skoðunar. Ég geri mér vonir um að það verði fleiri rýmingum aflétt fyrir áramót- in,“ sagði Björn. Það verður skoðað frekar í dag og á morgun. Rýmingu húsa á Seyðisfirði var aflétt að hluta á fundi almanna- varnanefndar, viðbragðsaðila og Veðurstofu í gær. Áfram var í gildi hættustig almannavarna á Seyðis- firði. Veðurstofan og samstarfs- menn mátu aðstæður í gær og mældu hugsanlegar hreyfingar á upptakasvæðum skriðufalla. Stöð- ugleiki virtist vera að vaxa og hafði úrkoma síðustu sólarhringa ekki haft neikvæð áhrif á hann, sam- kvæmt tilkynningu. Engin hreyfing hafði verið á svæðinu síðasta sólar- hring samkvæmt mælingum. Vatns- hæð í borholum var stöðug og ekki varð vart aukinna hreyfinga í hlý- indum á aðfangadag og jóladag. Ákveðið var að aflétta rýmingu á Austurvegi 32, 47, 49, 51 og 53, Brekkuvegi 3, 5 og 7, Baugsvegi 1 og 4, Bröttuhlíð 1, 2, 3, 4 og 5, í öll- um húsum ofan Múlavegar, það er númer 1-41, 53, 57 og 59 og hús- unum á Hafnargötu 2, 4 og 4A. Íbúar í húsum þar sem rýmingu hafði ekki verið aflétt máttu fara í hús sín og ná þar í nauðsynjar. Þeir eiga að gefa sig fram við fulltrúa vettvangsstjórnar og fá fylgd. Gæta skal að því að fara í slíkar heim- sóknir í björtu og er miðað við að það sé gert milli klukkan 11 og 17. Birta átti ítarlegri upplýsingar um afléttingu rýminga á vef al- mannvarnanefndar og fésbókarsíðu Sveitarfélagsins Múlaþings. Óvissustigi á Austurlandi aflétt Almannavarnadeild ríkislögreglu- stjóra og lögreglustjórinn á Austur- landi aflýstu í gær óvissustigi vegna skriðuhættu á Austurlandi. Í til- kynningu segir að eftir umhleyp- inga hafi vetraraðstæður tekið við og því ekki lengur talin vera víðtæk hætta á skriðuföllum á Austurlandi. Áfram verður fylgst vel með að- stæðum á Eskifirði. Hættustig enn í gildi á Seyðisfirði  Rýming gilti enn í nokkrum húsum í gær næst skriðunum sem féllu fyrir jól  Sveitarstjóri Múlaþings vonast eftir frekari afléttingu fyrir áramót  Fólk fær fylgd vilji það fara í rýmd hús Morgunblaðið/Eggert Seyðisfjörður Enn eru nokkur hús rýmd í bænum. Veðurstofan mun meta stöðuna á núgildandi rýmingarsvæði í dag og á morgun. Tilkynning um niðurstöður þess mats verður send út um leið og hún liggur fyrir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.