Morgunblaðið - 29.12.2020, Page 13

Morgunblaðið - 29.12.2020, Page 13
FRÉTTIR 13Erlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. DESEMBER 2020 Óseyrarbraut 12, 220 Hafnarfirði | Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpigamar@stolpigamar.is Gámaleiga Er gámur lausnin fyrir þig? Við getum líka geymt gáminn fyrir þig 568 0100 stolpigamar.is HAFÐU SAMBAND Búslóðageymsla ❚ Árstíðabundinn lager ❚ Lager ❚ Sumar-/vetrarvörur Frystigeymsla ❚ Kæligeymsla ❚ Leiga til skemmri eða lengri tíma Andrés Magnússon andres@mbl.is Almenn bólusetning er nú hafin í um 20 ríkjum heims og er að komast á nokkurn skrið víða. Slík bólusetning krefst gríðarlegrar skipulagningar, bæði við flutning, forgangsröðun og sjálfa bólusetninguna. Bretar og Bandaríkjamenn voru fyrstir til þess að hefja bólusetningu og hafa náð nokkru forskoti að því leyti. Evrópusambandið (ESB) var mun seinna til, aðallega vegna þess að þar hefur leyfisveiting tekið lengri tíma, en í gær hófst bólusetning á þess vegum. Af þeim sökum koma ríki ESB varla við sögu í myndritun- um hér að ofan. Ungverjar þjófstört- uðu raunar í fyrradag, en í gær hófst bólusetning í Þýskalandi, Frakklandi, Belgíu, Lúxemborg, Austurríki, Spáni og Búlgaríu. Í dag á Írlandi og fleiri fylgja á eftir næstu daga, sum þó ekki fyrr en á nýju ári, sem hefur ekki vakið mikla gleði í viðkomandi ríkjum, eins og Ítalíu, Hollandi og Sviss. Reiði í Evrópu vegna seina- gangs við bólusetningu Víða um álfuna gætir mikillar gremju vegna þess hve seint er af stað farið og eins vegna seinagangs við bólusetninguna þegar hún loks er hafin. Þar kenna flestir Evrópusamstarf- inu á þessu sviði um. Hið þýska Der Spiegel, útbreiddasta og áhrifamesta tímarit Evrópu, birti um helgina harðorða ádrepu, þar sem fram- kvæmdastjórn Evrópusambandsins og þá ekki síður Lyfjastofnun Evrópu voru sökuð um vanhæfni og van- rækslu. Sem kunnugt er kusu íslensk stjórnvöld að fylgja Evrópusamband- inu í þessum efnum. Vestanhafs gengur bólusetningin betur. Bandaríkin hafa náð miklum árangri á aðeins viku. Þar hafa verið gefnar um tvær milljónir skammta, sem er ögn undir væntingum. Kan- ada byrjaði snemma en smátt og Mexíkó og Chile hafa nýlega bæst við. Enginn kemst þó með tærnar þar sem Ísraelar hafa hælana, en þeir hafa nú þegar bólusett um 4% þjóð- arinnar og vonast til að henni geti lok- ið í apríl. Bólusetning við kórónuveirunni Eftir löndum, miðað við höfðatölu og í heildina Heimild: OurWorldinData.org 0 1 2 3 4 5 Costa Rica Mexíkó Þýskaland Rússland Chile Heimurinn allur Kína Danmörk Kanada Bandaríkin Bretland Bahrein Ísrael 0 1 2 3 4 5 Costa Rica Danmörk Mexíkó Chile Þýskaland Rússland Kanada Bahrein Ísrael Bretland Kína Bandaríkin Heimurinn allur Skammtar á hverja 100 íbúa Milljónir skammta Sk a m m ta r á h ve rj a 10 0 íb ú a Bóluefnisskammtar á hverja 100 íbúa Eftir löndum, athugið að yfirleitt þarf tvo skammta á hvern Bóluefnisskammtar alls Eftir löndum, athugið að yfirleitt þarf tvo skammta á hvern Gefnir skammtar Uppsafnað á heimsvísu nú í desember 0 0,8 1,6 2,4 3,2 >4 Bandaríkin Kanada Bretland Þýskaland Danmörk Rússland Kína Bahrein Ísrael Costa Rica Mexíkó Chile 0 1 2 3 4 5 milljónir 27.21.14.Bóluefnisskammtar á hverja 100 íbúa Eftir löndum, athugið að yfirleitt þarf tvo skammta á hvern DESEMBER Látnir af kórónuveiru Uppsafnað á heimsvísu á árinu 2020 Athugið að tölur hér að baki eru flestar frá 27. desember, en sumar þó allt að viku eldri. 0 0,2 0,4 0,6 0,8 1,0 1,2 1,4 1,6 1,8 milljónir manna J F M A M J J Á S O N D H e im ild :J o h n s H o p ki n s U ,C SS E 4,32 milljón skammtar 1,77 milljón látinna Bólusetningar að komast á skrið  ESB hefur loks bólusetningu  Flestir skammtar gefnir í Bandaríkjunum  Ísraelar lengst komnir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.