Morgunblaðið - 29.12.2020, Page 18

Morgunblaðið - 29.12.2020, Page 18
18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. DESEMBER 2020 ✝ Jórunn FanneyÓskarsdóttir fæddist 2. mars 1938 á Seyðisfirði. Hún lést á dval- arheimilinu Hrafn- istu í Hafnarfirði 19. desember 2020. Foreldar hennar voru Sigrún Guð- jónsdóttir frá Heið- arseli á Jökuldals- heiði, f. 24. maí 1907, d. 12. október 1997, og Óskar Finnsson ættaður frá Ak- ureyri, f. 22. maí 1902, d. 4. október 1951. Fanney var þriðja í röðinni af sjö systkinum. Eldri eru Þórdís Jóna og Guðrún en yngri eru Hrafnhildur, Guðjón (látinn), Finnur (látinn) og Elín. Hinn 30. desember 1958 gift- ist Fanney Guðmundi Björgvins- lín Finnssyni, f. 22. janúar 1934, en hann fórst með togaranum Júlí 8. febrúar 1959. Maki Sig- urðar Péturs er Valgerður Heimisdóttir. Afkomendur Fanneyjar eru 52 talsins. Fanney ólst upp á Seyðisfirði til 15 ára aldurs en þá fór hún til Akureyrar í leit að atvinnu og eftir nokkurra mánaða dvöl þar hélt hún til Reykjavíkur. Þar vann hún á ýmsum stöðum eins og á Kleppi, Álafossi, kaffihúsi á Laugavegi 11 og í vist hjá Birni Hallgrímssyni og konu hans. Eftir að hún eignaðist Sigurð Pétur réð hún sig sem ráðskonu að Hörgslandi á Síðu og flutti þangað í lok apríl 1957. Þar bjó Fanney ásamt Guðmundi eig- inmanni sínum og börnum þar til þau fluttu til Hafnarfjarðar í lok nóvember 1969 þar sem þau bjuggu alla tíð síðan. Útför Jórunnar Fanneyjar fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju í dag, 29. desember 2020, klukk- an 13. Í ljósi aðstæðna verða ein- ungis nánustu ættingjar við- staddir. syni, f. 30. desem- ber 1933, d. 16. apríl 2018. Þau eignuðust sjö börn sem eru: 1) Einar Páll, f. 30. júní 1958. Maki: Lára Halldórsdóttir. 2) Óskar Hrafn, f. 29. október 1959. Maki: Berglind Hallmars- dóttir. 3) Björgvin Smári, f. 15. febr- úar 1962. Maki: Þóra Hallgríms- dóttir. 4) Sigrún Birgitta, f. 26. júní 1963. 5) Elín Þuríður, f. 2. nóvember 1965. 6) Guðmundur Finnur, f. 15. október 1969. Maki: Kolbrún Magnúsdóttir. 6) Klara Guðrún, f. 14. ágúst 1972. Maki: Miles Boarder. Fyrir átti Fanney Sigurð Pétur, f. 28. febr- úar 1957, með Sigmundi Haga- Elskuleg móðir mín var sann- kölluð hvunndagshetja. Ól upp átta börn, oft við erfiðar aðstæð- ur. Mikið eldað, bakað, skúrað og þvegið. Við systkinin vorum fjör- mikil. Man að það voru oft mikil ærsl í gangi – stofan á Hring- braut 65 notuð sem handbolta- leikvangur og margir aðrir leikir í gangi og stundum slagsmál. Mamma hélt ró sinni og tókst að halda öllu í gangi svo vel væri. Eftir að börnin fluttu að heiman var Hringbrautin eftir sem áður eins konar félagsmiðstöð. Börn og barnabörn vöndu komur sínar svo og gestir. Það var því í nógu að snúast hjá mömmu enda lagði hún mikið upp úr því að fylgjast með gangi mála hjá öllum. Hún hafði á sumum málum sterkar skoðanir og gat átt það til að vera hvöss í tilsvörum. Það risti þó ekki djúpt enda hjartalagið gott. Var alltaf að kaupa eitthvað, oft í Kolaportinu, til að gefa öðrum. Sankaði að sér alls konar dóti en glysgjörn var hún. Seinni árin tók heilsunni að hraka en það var seigla í henni. Þannig héldum við systkinin að hún færi í febrúar á þessu ári þegar hún fékk slæma lungnabólgu og þurfti að vera á gjörgæslu í nokkra sólarhringa. Lét það ekki á sig fá frekar en krabbameinið sem hún fékk í annað augað fyrir nokkrum ár- um. Því tengt er saga sem lýsir dálítið persónu mömmu. Þannig var að skömmu eftir að hún fékk gerviaugað sat hún í matarboði heima hjá mér ásamt fleira fólki. Ég þurfti að bregða mér fram í eldhús og er ég kom til baka varð mér litið á hana og við blasti tóm augntóftin. Mér brá en aðspurð sagði hún að sig hefði klæjað und- an auganu og tekið það úr og sett í jakkavasann. Ekki vandamálið – gera það sem þarf að gera og ekki hræðast álit annarra. Elsku mamma, takk fyrir þitt mikla framlag. Sigurður Pétur. Mig langar að minnast móður minnar í fáeinum orðum er lést 19. desember síðastliðinn. Margs er að minnast og ótal minningar koma í hugann. Það sem mér er efst í huga eru þau kaflaskil sem urðu í mínu lífi þegar ég eignaðist mitt fyrsta barn. Það vildi svo til að sonur minn fæddist á afmæl- isdegi móður minnar, 2. mars, 1983. Hann fékk nafnið Birgir Fannar á skírnardegi og afmæl- isdegi mínum, 26. júní. Birgir Fannar mætti ómældri gleði for- eldra minna á margan hátt. Mamma var stór partur af bernskuárum sonar míns og það vildi til að hún var einstaklega þolinmóð þegar ung börn áttu í hlut. Mitt lán var að hún gat gætt hans á meðan ég fór að vinna, þar stóðum við saman og sýndum hvor annarri mikla samvinnu. Þegar heim var komið á kvöldin var oft spjallað yfir góðum kaffi- bolla og farið yfir erfiði dagsins. Mamma kenndi mér ýmislegt. Ég man eftir að þegar ég var 16 ára bökuðum við saman á hverj- um laugardegi. Þá lærði ég góð ráð hvað varðaði eldamennsku og voru það lærdómsríkar samveru- stundir. Mamma var ætíð gjafmild og vildi gleðja sem flesta, þá sér- staklega börn og barnabörn. Þess ber að minnast að hún hafði alltaf auga fyrir glitrandi skartgripum, fatnaði, fallegum munum og stof- ustássi. Að lokum dvaldi mamma síð- astliðna mánuði á Hrafnistu í Hafnarfirði, þar sem hún naut hjúkrunar og aðhlynningar. Elsku mamma, nú ert þú farin, söknuður og minningar um þig munu alltaf dvelja í huga mér og huga þinna nánustu. Megi Drott- inn Guð taka á móti þér og um- vefja þig hlýju í himnaríki og megi Guðs englar syngja yfir þér elsku mamma mín. Þín dóttir, Sigrún Birgitta Guðmundsdóttir. Elsku mamma kvaddi rétt fyr- ir jól, mikið hefði nú verið gott að hafa hana lengur, en hún var orð- in þreytt og líkaminn og lífsvilj- inn gaf sig. Mamma var litríkur persónu- leiki, mikið fyrir glys og glingur, sterka liti og fallega hluti. Það var gaman að gefa henni gjafir sem ég keypti fyrir hana úti um allan heim, það fannst henni ein- staklega spennandi. Ég lét smíða fyrir hana stóran hring með stórum bleikum steini sem hún bar alltaf og hélt mikið upp á því hann var táknrænn fyrir móður og börn. Heimilli mömmu var einstaklega vel skreytt og var ekki mikið pláss á milli hluta og svo auðvitað myndir af öllum börnum, eigin barnabörnum og langömmubörnum sem voru orð- in ansi mörg. Mamma safnaði alls kyns stofustássi sem ekki þurfti endilega að vera keypt í verslun því við vildum líka gera góð kaup. Við fórum margar ferðir saman í antikverslanir, nytjamarkaði, Góða hirðinn og Kolaportið þar sem henni fannst mannlífið skemmtilegt og forvitnilegt og þekkti hún þar vel til. Gjafmildi mömmu var einstök og gaf hún börnum, barnabörn- um og langömmubörnum afmæl- is- og jólagjafir lengi vel, það kom sér vel að mamma hafði gott lag á að muna tölur því hópurinn var stór. Til gamans má nefna að hún mundi alltaf öll símanúmer. Mamma var mikill húmoristi og fannst gaman að hlæja og gera grín, það var líka stutt í kald- hæðni sem var oft mjög fyndin hjá henni. Hún talaði oft undir rós en gat líka verið mjög bein- skeytt þegar þannig lá á henni. Það sem ég sakna mest er Hringbrautin, æskuheimilli mitt, þar sem mamma bjó í 50 ár. Þetta var miðpunkturinn, þarna kom maður á hverjum degi í kaffisopa, þarna voru málin rædd, stundum rifist en þarna var hjartað í fjöl- skyldunni. Elsku mamma er komin til pabba og vona ég að þar fáir þú frið og ró og óska ég þess að allir þínir draumar rætist. Vertu guð faðir, faðir minn í frelsarans Jesú nafni. Hönd þín leiði mig út og inn svo allri synd ég hafni. (HP) Þín dóttir, Klara og fjölskylda. Móðurkveðja Að sitja við dánarbeð móður sinnar reyna að ná til hennar hvíslandi uppörvandi orðum kveðja þig í hinsta sinn. Líkaminn svo fíngerður og smár visinn getur ekki meir. Hugsa til þess er snauð þú fórst svo ung úr borg í gamla sveit. Komst til baka ríkust allra af börnum og nú formóðir svo margra. Í stórum systkinahóp ærslagang miklum var allt svo sjálfsagt þó var hönd að baki sem öllu stýrði. Sit við rúmið hennar varir og augu bærast ekki. Innra með mér heyrist þó glaðvær ómur bernsku fullur af ást og hlýju „ertu kominn ljósið mitt“ „blómadrengurinn minn“ „hnoðri litli“. Í gegnum súrt og sætt ég þig kveð með söknuði þig sem vaktir og nærðir huggaðir og svæfðir – elsku mamma. Björgvin Smári. Elsku mamma mín. Móðir mín kæra er farin á braut, til mætari ljósheima kynna. Hún þurfti að losna við sjúkdóm og þraut, og föður minn þekka að finna. Vönduð er sálin, velvildin mest, vinkona, móðir og amma. Minningin mæta í hjartanu fest, ég elska þig, ástkæra mamma. Þakka þér kærleikann, hjartalag hlýtt, af gæsku þú gafst yl og hlýju. í heimi guðsenglanna hafðu það blítt, uns hittumst við aftur að nýju. (Höf. ók.) Þinn sonur, Óskar Hrafn. Fanney systir mín er dáin. Hún er þriðja systkinið af okkur sjö sem hverfur yfir móðuna. Við systkinin fæddumst öll á Seyðisfirði á árunum 1934-1949. Það eru svo breyttir tímar síðan það var, það er hreint með ólík- indum. Fanney fór ung að heiman, alltof ung, aðeins 15 ára. Hún fór til þess að vinna fyrir sér og sjá um sig sjálf. Þetta þótti eðlilegt, því enga vinnu var að fá á Seyð- isfirði á þessum tíma. Mamma var ein með okkur frá 1951 en þá lést pabbi okkar snögglega. Fanney eignaðist son þegar hún var á nítjánda ári, með þáverandi kærasta sínum, Sig- mundi. Hún fór með soninn fjög- urra mánaða gamlan sem ráðs- kona að Hörgslandi á Síðu, til að vinna fyrir sér og framfleyta syn- inum. Var þetta algengt í þá daga, þegar aðstæður voru með þessum hætti. Á Hörgslandi kynntist hún Guðmundi Björgvinssyni, ungum og myndarlegum bónda þar á bæ, og fljótlega felldu þau hugi sam- an. Bjuggu þau um árabil eystra og voru börnin orðin sjö þegar þau fluttu í Hafnarfjörð, þar sem það áttunda bættist við hópinn. Það var ekki einfalt mál að ala upp átta börn og halda þeim heimili en þau voru hraust og Guðmundur vann mikið. Fanney hefur þurft að glíma við vanheilsu í langan tíma. Vegna Covid hefur sambandið verið lítið seinustu misserin en við systurnar þrjár fengum að koma að rúminu hennar daginn sem hún kvaddi. Við náðum því að kveðja og þakka henni allar góðu stundirnar sem höfðum átt saman í þessari svokölluðu jarð- vist, sem er um margt merkilegt ferðalag. Við munum glaðar stundir, prakkarastrik og hlátra- sköll í litla húsinu okkar á Seyð- isfirði, við minnumst atvika, sorg- ar- og ánægjustunda úr þessari löngu ferð sem nú er á enda kom- in. Ég votta öllum börnum henn- ar, mökum þeirra og barnahópn- um öllum mína dýpstu samúð. Hrafnhildur systir. Í dag er hún Fanney systir mín borin til hinstu hvílu. Hún flutti ung að heiman frá Seyðisfirði. Í Reykjavík vann hún við ýmis störf, þar til hún réð sig sem ráðskona í sveit á Hörgsland á Síðu. Þar kynnist hún Guð- mundi sem varð eiginmaður hennar. Á Hörgslandi bjuggu þau saman í 13 ár, en fluttu þá til Hafnarfjarðar þar sem þau kunnu mjög vel við sig. Það hefur verið mikið verk að flytja með stóran barnahóp, en allt tókst þetta með mikilli vinnu og Hring- braut 65 tók vel á móti þeim. Fanney var flutt að heiman þegar ég fór að muna eftir mér þannig að ég á engar minningar um okkar uppvöxt saman. Í nokk- ur skipti kom hún og gisti hjá mér á Seyðisfirði og náðum við vel saman og finnst mér gott að hugsa til þessara stunda. Í einni slíkri ferð fórum við út í Brimnes, en þar hafði hún dvalið oft sem stelpa hjá Sollu frænku okkar. Þessi ferð var svo skemmtileg og mikið hlegið og rifjað upp, en það verða víst ekki fleiri ferðir sem við förum saman. Hér læt ég inn vísu eftir Sollu en þarna er mikil speki: Heyrðum seiðmjúkan tón þegar lífið leið hjá, þetta líf með sinn sorgþunga nið. Svo leggjum við öll út á ljósvakans haf, gefðu frið, gefðu frið, gefðu frið. Í mörg ár átti Fanney við veik- indi að stríða og smám saman hafði hún lítinn kraft til að blanda sér saman við aðra eða fara á mannamót. En í áttræð- isafmæli hennar var vel mætt, enda afkomendur orðnir mjög margir, þrír ættliðir af myndar- legu fólki. Nú er hún komin í sumarland- ið og þar hefur verið vel tekið á móti henni. Það er gott að hugsa um það að nú eru allir verkir og veikindi að baki og við eigum góðar minningar um Fanneyju systur. Ég sendi öllum afkomendum hennar innilegar samúðarkveðj- ur. Elín Óskarsdóttir. Litrík, dökk, „frönsk“ og kvenleg. Þetta eru þau orð sem koma fyrst upp í hugann þegar ég hugsa um Fanneyju, mína fyrrverandi tengdamóður. Ég kynntist henni þegar ég var tæp- lega 18 ára og hún tók mér opn- um örmum og var alla tíð góð við mig. Hún lagði mikla áherslu á að maður liti vel út og sjálf passaði hún vel upp á línurnar. En per- sónuleikinn risti dýpra en bara það að líta vel út. Hún var næm á fólk og laus við dómhörku eða hroka. Hún vissi stundum meira en maður hélt og skildi meira. Ég man hún talaði stundum um að henni fyndist hún ekki passa hér á Íslandi – hefði frekar átt að eiga heima í Frakklandi – og ég held hún hafi haft rétt fyrir sér þar. Ég held a.m.k. að grám- inn og kuldinn hafi ekki átt vel við hana. Ég sé hana fyrir mér núna, labbandi um götur Parísar í flottum og litríkum kjól og á hælaskóm. Þegar maður er yngri hefur maður ekki þroska til að „sjá“ fólk. Maður skilur ekki alveg hvað mótar persónuleika þess. Það bara er þarna. Fanney fór ung að heiman eins og algengt var á þeim tíma. Hún eignaðist kærasta og þau eignuðust barn saman, en eins og gengur slitnaði upp úr því sambandi. Hún ákvað að ráða sig sem ráðskonu í sveit og hafði son sinn, kornungan, með sér. Hvað varð til þess að hún tók þá ákvörðun veit ég reyndar ekki en í þá daga voru úrræði fyrir einstæða útivinn- andi móður örugglega af skorn- um skammti. Það þarf a.m.k. kjark til að fara ein á ókunnar slóðir og byrja nýtt líf fyrir sig og barnið sitt. Tæplega tveimur ár- um seinna dó barnsfaðir hennar í sjóslysi og ég hugsa að það hafi kannski sett meira mark á hana en maður gerði sér grein fyrir. En í sveitinni kynntist hún Mumma sínum og bjó með hon- um þar. Börnin fæddust ört og þau fluttu seinna til Hafnarfjarð- ar. Lífið var svo sem ekki alltaf dans á rósum þótt á mölina væri komið og örugglega lítil fjárráð til að byrja með. En á hinn bóg- inn var líf og fjör á Hringbraut- inni – annað er ekki hægt að segja. Og ég man að Pétur, sonur hennar, sagði að á aðfangadag hefði alltaf verið borðað á slaginu klukkan 18. Geri aðrir betur með fullt hús af börnum. Eins og oft vill verða slitnuðu tengslin hjá okkur Fanneyju, fyrir utan jólakortaskrif og ein- stöku hitting. En ég minnist hennar með hlýhug og þakka fyr- ir góða og fallega viðkynningu. Hennar stóru fjölskyldu votta ég mína innilegustu samúð og þau geta verið stolt af ættmóð- urinni sem var litríkur karakter. Ágústa S. Þórðardóttir. Jórunn Fanney Óskarsdóttir Ástkær sonur minn, bróðir, mágur og frændi, SVERRIR ODDUR GUNNARSSON, Svöluási 40, Hafnarfirði, lést á heimili sínu laugardaginn 19. desember. Útför fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði miðvikudaginn 30. desember klukkan 13. Vegna takmarkana í þjóðfélaginu verða einungis nánustu ættingjar og vinir viðstaddir. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Ás styrktarfélag. Streymt verður frá athöfninni: https://youtu.be/JuByerO3YS4 Sigríður Oddný Oddsdóttir Guðrún Gunnarsdóttir Gústaf Adolf Björnsson Valgerður J. Gunnarsdóttir Stefán Snær Konráðsson Jakobína Cronin og fjölskyldur Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, GUÐBJÖRG SVAVA EYSTEINSDÓTTIR frá Broddadalsá, lést á Hrafnistu Hafnarfirði þriðjudaginn 22. desember. Útförin verður auglýst síðar. Gunnhildur Halldórsdóttir Sigurkarl Ásmundsson Ásdís Halldórsdóttir Guðrún Halldórsdóttir Már Sveinbjörnsson Torfi Halldórsson Unnur Þorgrímsdóttir Jón Halldórsson barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsam- lega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðs- lógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felli- glugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dög- um fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað get- ur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.