Morgunblaðið - 29.12.2020, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 29.12.2020, Qupperneq 27
HANDBOLTI Gunnar Egill Daníelsson gunnaregill@mbl.is Örvhenta skyttan Ragnar Jóhanns- son hefur samið við uppeldisfélag sitt Selfoss um að leika með liðinu í Olísdeildinni í handknattleik næstu fjögur leiktímabil, að meðtöldu nú- verandi tímabili. Ragnar kemur frá þýska fyrstudeildarliðinu Berg- ischer, þar sem hann samdi um starfslok sem gerði honum kleift að semja við Selfoss frá og með jan- úar á næsta ári. En af hverju ákvað hinn þrítugi Ragnar að snúa aftur heim núna? „Það bara þróaðist þannig að ég var ekki með stórt hlutverk í Berg- ischer og hafði spilað lítið. Svo í desember fóru Selfyssingar að hafa samband við mig og spurðu mig hvort ég væri ekki til í að koma heim. Mér fannst bara tilvalið að reyna að láta það ganga upp,“ sagði Ragnar í samtali við Morg- unblaðið. Samningur hans átti að renna út í vor en Ragnar og forsvarsmenn liðsins náðu að finna farsæla lausn fyrir báða aðila. „Ég átti fund með þeim og spurði þá hvort það væri ekki hægt að finna sameiginlega lausn um að rifta samningnum núna í janúar. Þeir tóku vel í það og við skildum í góðu.“ Ragnari líst vel á Selfossliðið. „Þetta er vel samsett lið og flottir strákar þarna. Mikið af ungum strákum í bland við stráka sem hafa mikla reynslu. Þannig að þetta lítur vel út.“ Ragnar sagði að ekki væri búið að fara formlega yfir markmið liðs- ins með honum en segir þó að liðið og hann sjálfur vilji halda áfram að gera vel. „Þeir urðu Íslandsmeist- arar [árið 2019] og eru það ennþá og vilja náttúrlega halda áfram að vera á toppnum. Ég er bara nýbú- inn að skrifa undir en mitt mark- mið er sömuleiðis að vera áfram á toppnum og halda áfram að gera vel.“ Uppgangur Selfoss á meðan Ragnar hefur verið í atvinnu- mennsku í Þýskalandi frá árinu 2015, fyrst með Hüttenberg og svo Bergischer, hefur verið magnaður. Hann segist hafa notið þess að fylgjast með liðinu ná þessum árangri. „Ég fylgdist með og var mjög stoltur þegar þeir urðu loksins Ís- landsmeistarar. Það var bara frá- bært fyrir klúbbinn. Ég er rosa- lega stoltur af því hvernig Selfoss hefur haldið utan um þetta síðast- liðin ár og byggt félagið upp.“ Ragnar telur Olísdeildina sterk- ari í dag en þegar hann spilaði síð- ast í henni. „Ég held að hún sé töluvert sterkari en hún var þá, ár- ið 2015. Svo er umgjörðin líka orð- in flottari og orðið skemmtilegra að spila. Það er fullt af ungum og efnilegum strákum sem spila á Ís- landi og ég myndi segja að hún væri orðin sterkari,“ sagði Ragnar að lokum í samtali við Morg- unblaðið. Vill halda Selfossi á toppnum  Ragnar kominn aftur í heimahagana Ljósmynd/Selfoss Heimkoma Ragnar Jóhannsson í búningi uppeldisfélagsins. ÍÞRÓTTIR 27 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. DESEMBER 2020 Í sumar varð ég var við umræðu um að karlalið Gróttu í knatt- spyrnunni ætti að fá til sín fleiri leikmenn. Liðið tefldi að megn- inu til leikmönnum sem höfðu komið liðinu upp um tvær deildir og upp í þá efstu. Leikmennirnir fengu að njóta þess en voru ekki nógu góðir þetta árið til að halda sætinu í deildinni. Þetta þótti einhverjum, alla vega nokkrum, ekki vera góðar tvíbökur. Ég man ekki hverjir það voru sem viðruðu skoðanir sínar á þessu opinberlega enda skiptir það engu máli. Heldur end- urspeglar þetta ákveðið viðhorf sem er aðalmálið. Í þessari umræðu varð ég aldrei var við að menn veltu því fyrir sér hvort félagið hefði efni á því að fá til sín fleiri leikmenn og betri en þá sem fyrir voru. Slíka leikmenn þyrfti væntanlega að kaupa og þeir myndu líklega vilja fá laun en leikmenn Gróttu fengu ekki greitt fyrir að spila. Við slíkar aðstæður virðist knattspyrnuáhugamönnum finn- ast það vera eðlilegasti hlutur í heimi að skuldsetja félagið til að freista þess að hanga uppi í efstu deild. Safna skuldum til að eyða fjármunum fyrir lítinn ávinning. Það sem myndi vinnast með þessu væri þá annað ár í efstu deild sem aftur kallar á meiri út- gjöld en tekjur enda er knatt- spyrnuheimurinn íslenski ekki sjálfbær bransi. Þar ná menn endum saman (þegar það tekst) með aðstoð fyrirtækja og nú síð- ast skattgreiðenda. Lýsir þetta viðhorfi sem er kannski of algengt. Þegar menn fara í Football Manager leik með alvöruknattspyrnudeildir þá sé í lagi að steypa þeim í skuldir. Þau sem setjast í næstu stjórn deild- arinnar geta svo séð um að vinda ofan af skuldunum. BAKVÖRÐUR Kristján Jónsson kris@mbl.is ÍÞRÓTTAMAÐUR ÁRSINS Kristján Jónsson kris@mbl.is Samtök íþróttafréttamanna hafa kosið íþróttamann ársins í 65. skipti og opinbera niðurstöðuna í kvöld. Um leið verða birt úrslit í kjöri sam- takanna á þjálfara ársins og liði árs- ins en kynnt var á Þorláksmessu- morgun hverjir hefðu orðið í efstu sætunum án þess að endanleg röð þeirra hefði verið birt. Undanfarin ár hefur verið haldið hóf samhliða verð- launaafhendingum hjá sér- samböndum ÍSÍ en vegna sótt- varnareglna verður hófið með öðru sniði í ár. Íþróttafólkið sem er í tíu efstu sætunum í ár er eftirtalið, í stafrófs- röð: Anton Sveinn McKee (sund), Ar- on Pálmarsson (handknattleikur), Bjarki Már Elísson (handknatt- leikur), Glódís Perla Viggósdóttir (knattspyrna), Guðni Valur Guðna- son (frjálsíþróttir), Gylfi Þór Sig- urðsson (knattspyrna), Ingibjörg Sigurðardóttir (knattspyrna), Mart- in Hermannsson (körfuknattleikur), Sara Björk Gunnarsdóttir (knatt- spyrna), Tryggvi Snær Hlinason (körfuknattleikur). Í kjörinu á þjálfara ársins eru eftirtaldir í efstu sætunum: Arnar Þór Viðarsson (knattspyrna), El- ísabet Gunnarsdóttir (knattspyrna), Heimir Guðjónsson (knattspyrna). Í kjörinu á liði ársins eru það kvennalið Breiðabliks í knattspyrnu, U21 árs lið karla í knattspyrnu og kvennalandsliðið í knattspyrnu sem eru í efstu sætunum. Í þau 63 skipti sem kjörið hefur farið fram hefur frjálsíþróttafólk oft- ast verið kosið, eða í 21 skipti. Hand- knattleikur og knattspyrna hafa fengið titilinn 12 sinnum hvor grein og sund 9 sinnum. Aðrar greinar sem hafa átt íþróttamann ársins eru kraftlyft- ingar (4), körfuknattleikur (3), júdó, hestaíþróttir, þolfimi og golf. Karlar hafa í 56 skipti orðið fyrir valinu en 7 konur hafa verið kjörnar íþróttamenn ársins. Þrjár þeirra á síðustu fjórum árum. Vilhjálmur Einarsson hefur oftast verið kjörinn íþróttamaður ársins, fimm sinnum, og Ólafur Stefánsson kemur næstur með fjögur skipti. Júlían J.K. Jóhannsson er núver- andi handhafi titilsins en hann var kjörinn íþróttamaður ársins 2019. Alls hafa 43 íþróttamenn hreppt titilinn á þessum 64 árum. Eftirtaldir hafa verið kjörnir oftar en einu sinni: 5 – Vilhjálmur Einarsson, frjáls- íþróttir (1956, 1957, 1958, 1960, 1961). 4 – Ólafur Stefánsson, handbolti (2002, 2003, 2008, 2009). 3 – Hreinn Halldórsson, frjáls- íþróttir (1976, 1977, 1979). 3 – Einar Vilhjálmsson, frjáls- íþróttir (1983, 1985, 1988). 3 – Örn Arnarson, sund (1998, 1999, 2001). 2 – Valbjörn Þorláksson, frjáls- íþróttir (1959, 1965). 2 – Guðmundur Gíslason, sund (1962, 1969). 2 – Ásgeir Sigurvinsson, knatt- spyrna (1974, 1984). 2 – Skúli Óskarsson, kraftlyftingar (1978, 1980). 2 – Jón Arnar Magnússon, frjáls- íþróttir (1995, 1996). 2 – Eiður Smári Guðjohnsen, knattspyrna (2004, 2005). 2 – Gylfi Þór Sigurðsson, knatt- spyrna (2013, 2016). Morgunblaðið/Arnaldur 2006 Vilhjálmur Einarsson óskar Guðjóni Vali Sigurðssyni til hamingju með útnefninguna árið 2006. Vilhjálmur lést sama dag og kjörið fór fram í fyrra og Guðjón lét staðar numið sem leikmaður á árinu sem er að líða. Kjöri SÍ lýst í 65. skipti í kvöld  43 íþróttamenn verið kjörnir á 64 árum  Vilhjálmur Einarsson oftast allra Arnór Þór Gunnarsson, landsliðsmaður í handknattleik, hefur gert nýj- an samning við Bergischer í þýsku 1. deild- inni. Er samn- ingurinn til tveggja ára, eða fram á sumar 2023, en Arnór getur þó sagt honum upp eftir fyrra árið. Frá þessu er greint á Akureyri.net. Þar kemur fram að Arnór hafi íhugað það alvarlega að snúa aftur heim vegna þrálátra meiðsla áður en hann hafi látið tilleiðast að semja að nýju. „Ég var nánast ákveðinn fyrir um það bil tveimur mánuðum að segja þetta gott næsta vor,“ sagði Arnór í samtali við Akureyri.net í gær. Breytt mataræði hefur þó gjör- breytt líðan Arnórs. Hann ráðfærði sig við crossfitsérfræðing sem gaf honum góð ráð. „Ég borðaði of lítið og hlutföllin í fæðunni voru ekki rétt að hans mati. Ég fór að hans ráðum og átta vikum seinna voru verkirnir nánast horfnir. Ég hafði verið í sjúkraþjálfun, sem breytti litlu, en nú er mjöðmin orðin miklu betri.“ gunnaregill@mbl.is Arnór gældi við flutninga til Íslands Arnór Þór Gunnarsson Knattspyrnumaðurinn Valgeir Lunddal Friðriksson er genginn í raðir Häcken í Svíþjóð frá Íslands- meisturum Vals. Valgeir gerir fjög- urra ára samning við sænska félag- ið, en liðið hafnaði í þriðja sæti sænsku úrvalsdeildarinnar á síðustu leiktíð og spilar því í Evrópu- deildinni á næstu leiktíð. Valgeir hefur leikið 27 leiki í efstu deild og skorað þrjú mörk. Þá hefur hann leikið sjö leiki með yngri landsliðum Íslands, en Valgeir er uppalinn hjá Fjölni og lék ellefu deildarleiki með liðinu áður en hann fór í Val. Valgeir kominn til Häcken í Svíþjóð Morgunblaðið/Arnþór Birkisson Svíþjóð Valgeir Lunddal Frið- riksson er orðinn atvinnumaður. Naomi Osaka frá Japan og LeBron James frá Bandaríkjunum voru besta íþróttafólk heims á árinu sem er að líða að mati AP-fréttastof- unnar sem staðið hefur fyrir valinu frá árinu 1931. Osaka sigraði í ein- liðaleiknum á Opna bandaríska meistaramótinu á árinu og er fyrsti Asíubúinn sem nær efsta sæti heimslistans í einliðaleik í tennis. Er þetta í fyrsta skipti sem hún verður fyrir valinu hjá AP. James varð hins vegar fyrir valinu hjá AP í fjórða sinn. James var lykilmaður í sigri LA Lakers í NBA-deildinni. Osaka og James heiðruð af AP AFP Best Osaka þótti skara fram úr með frammistöðu sinni á tennisvellinum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.