Morgunblaðið - 29.12.2020, Blaðsíða 32
Allt fyrir góðan svefn
og betri heilsu
Óskum
viðskiptavinum
gleðilegra jóla
og þökkum
öll viðskiptin
á árinu
- starfsfólk Svefns og heilsu
Við tökum vel á móti þér
bæði í verslunum okkar
og á vefnum
Söngvasveigurinn
„Stjarnan í austri –
Mæja mey á norð-
urslóðum“ verður
fluttur í Fríkirkjunni í
Reykjavík í kvöld,
þriðjudag, klukkan 20.
Verkið er eftir Geirr
Lystrup og Aðalsteinn
Ásberg Sigurðsson ís-
lenskaði. Flytjendur
eru Aðalsteinn Ás-
berg, Þorgerður Ása,
Ásgeir Ágeirsson,
Gunnar Gunnarsson,
Tómas R. Einarsson
og Sönghópurinn við Tjörnina. Verkið er „frumleg og
falleg saga sem tekur í senn mið af jólaguðpjallinu og
gömlum helgisögnum“ og er þetta fjölskylduvænn við-
burður. Vegna samkomutakmarkana eru fáir miðar í
boði.
Söngvasveigurinn „Stjarnan í
austri“ fluttur í Fríkirkjunni
ÞRIÐJUDAGUR 29. DESEMBER 364. DAGUR ÁRSINS 2020
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 697 kr.
Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr.
PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr.
Sveindís Jane Jónsdóttir, landsliðskona í knattspyrnu,
hefur gert þriggja og hálfs árs samning við Þýskalands-
meistara Wolfsburg. Wolfsburg er eitt allra sterkasta
lið Evrópu og því um stærðarinnar félagsskipti að
ræða. Sveindís, sem er 19 ára gömul, verður lánuð til
Kristianstad í sænsku úrvalsdeildinni í eitt ár, þar sem
Elísabet Gunnarsdóttir mun þjálfa hana. Sveindís
kveðst hæstánægð með vistaskiptin og telur að lánið
muni koma til með að hjálpa henni að vera reiðubúin
þegar kallið kemur frá Wolfsburg. »26
Samdi við eitt sterkasta lið Evrópu
ÍÞRÓTTIR MENNING
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Margar skemmtilegar sögur eru til í
tengslum við íslenska flugsögu og
Atli Unnsteinsson, fyrrverandi flug-
stjóri, sem er efstur á starfsaldurs-
lista flugmanna Icelandair, minnist
ýmissa liðinna atvika í bókinni Sem
minnir mig á það. „Ég ætlaði ekki að
skrifa bók heldur bjarga sögunum
frá því að glatast,“ segir hann um
útgáfuna, sem Sökkólfur gefur út.
Þegar Atli var fjögurra ára var
hann sendur í sveit í fyrsta sinn og
flugið til Húsavíkur markaði hann til
lífstíðar. „Ég man þennan dag 1960
eins og hann hefði verið í gær,“ rifj-
ar hann upp. „Ég var uppábúinn í
matrósarfötum og upplifunin í vél-
inni og fluginu var ást við fyrstu
sýn. Ég fékk þennan ólæknandi vír-
us.“
Eftir að hafa lært að fljúga og
starfað við flugkennslu varð Atli
flugmaður hjá Flugleiðum, síðar
Icelandair, og vann þar næstu 39 ár-
in fyrir utan eitt ár hjá Arnarflugi
og þrjú ár hjá þýska félaginu Ger-
man Cargo Services. Samhliða flug-
inu kenndi hann bóklegt nám í Flug-
skóla Íslands í 18 ár. Hann flaug
nánast öllum tegundum flugvéla
nema herflugvélum og þyrlum og
segir að flug fyrir Landgræðslu Ís-
lands, sem hann hafi sinnt í sjálf-
boðavinnu í 18 sumur, og innan-
landsflugið standi upp úr.
Landgræðslan eftirminnileg
Fyrsta flugferð Atla var í Douglas
DC-3-vél og Flugfélag Íslands gaf
Landgræðslunni Gljáfaxa, annan
„þrist“ sinn, 1973 og fékk hann þá
nafnið Páll Sveinsson. „Þetta var
frægasta flugvélategund heims og
það var engu líkt að fljúga ekki
hærra en í 200 feta hæð í góðu sum-
arveðri með fínum mannskap,“ segir
Atli. Sérstaklega eftirminnilegt hafi
verið að byrja að dreifa fræi og
áburði í grennd við Húsavík, þar
sem hann hafi verið í sveit og þekkt
hverja þúfu og hvern stein.
Innanlandsflugið er stutt og engin
dauð stund. Atli segir það helsta
kostinn, að vera alltaf að gera eitt-
hvað, fljúga niður í dali og firði og
hugsa stöðugt um veðrið, ekki síst á
veturna. „Þetta er mjög lifandi starf
og síbreytilegt, meira við mitt hæfi
en utanlandsflugið, en kannski er ég
bara sveitamaður,“ segir hann. Tek-
ur samt fram að hann hafi ekkert á
móti utanlandsfluginu sem slíku.
„Stórir strákar vilja fljúga langt og
ég skil það vel, en eftir að hafa próf-
að margt komst ég yfir það vegna
þess að flugið, fyrir utan kennslu-
flugið, snýst um starfsskilyrði frek-
ar en stærð á flugvélum.“
Ýmislegt hefur komið upp á í flug-
inu, en Atli segist aldrei hafa lent í
alvarlegum áföllum, þótt vissulega
hafi stundum verið teflt á tæpasta
vað. Veturinn í Nígeríu hafi verið
tóm vitleysa og ekki alltaf farið að
settum reglum. „Ég myndi ekki
taka svona áhættu núna,“ staðhæfir
hann.
Skondnu atvikin eru mörg og Atli
segist aldrei hafa upplifað annað
eins og fyrir um 22 árum þegar
hann þurfti að hætta við lendingu á
Akureyrarflugvelli vegna óverulegr-
ar bilunar. Vængbörðin voru föst
uppi. Ákveðið hafi verið að lenda í
Keflavík í staðinn og á leiðinni hafi
komið fyrirspurn frá flugstjórn um
fjölda farþega og eldsneytismagn. Í
Keflavík hafi verið mikill viðbúnaður
slökkviliðs og sjúkrabíla við flug-
brautina. „Öll þjóðin „vissi“ að við
værum að farast nema við, en mis-
skilningurinn var vegna þess að
flugumferðarstjóri hafði óvart ýtt á
rauða takkann án þess að láta okkur
vita, en hættan var engin.“
Með ólæknandi vírus
Douglas DC-3 Atli Unnsteinsson glaður í landgræðsluvélinni.
Flugið snýst um starfsskilyrði frekar en stærð flugvéla
Stoltir Ingþór Ingólfsson teiknari, Atli og Kjartan Jónsson útgefandi.