Tölvumál - 01.01.2019, Síða 4
4
Ragnheiður hefur verið í farabroddi í upplýsingatæknigeiranum og lagt
áherslu á fjölbreytileika í þeim geira. Hún er forstöðumaður Framkvæmda
hjá Veitum en var áður m.a. framkvæmdastjóri Hugsmiðjunnar í tæp 6
ár og vann síðan við breytingarstjórnunarverkefni hjá Marel auk þess
sem hún hefur setið í stjórnum Samtaka vefiðnaðarins og Ský. Einnig
hefur hún verið formaður tækninefndar Vísinda- og tækniráðs, formaður
Samtaka upplýsingatæknifyrirtækja, SUT hjá SI. Árið 2019 hlaut hún
UT-verðlaun Ský sem eru heiðursverðlaun fyrir framúrskarandi framlag
til upplýsingatækni á Íslandi. Tölvumálum langaði að heyra í Ragnheiði,
bæði um hana sjálfa og hennar sýn á fjórðu iðnbyltinguna.
HVAÐ VAR ÞAÐ SEM LEIDDI ÞIG ÚT
UPPLÝSINGA TÆKNI GEIRANN?
Þegar ég var enn að klára masterinn í vélaverkfræði í Álaborgarháskóla
bauðst mér starf hjá Símanum í vöruþróun og verkefnastjórnun og ég
sló til. Þar með var ég komin á bólakaf í vöruþróun í fjarskiptabransanum
sem var þá (árið 2000) í þvílíkum blóma. Þessi verkefni innihéldu oft líka
töluverða upplýsingatækni og hef ég alla tíð fílað nördaskapinn þannig
að þetta gerðist bara svona „náttúrulega“ út frá þessu.
HVERNIG LÍST ÞÉR Á FJÓRÐU
IÐNBYLTINGUNA?
Fyrir tækninörda eins og mig er fjórða iðnbyltingin mjög spennandi
fyrirbæri enda svo rosalega mikil þróun í notkun gervigreindar,
sýndarveruleika, viðbótarveruleika (augmented reality), þrívíddarprentun,
nanotækni, vélmennavæðingu, CRISPR, hlutanetsins (IoT), Blockchain,
gagnagnótt (big data) o.s.frv. En það sem ekki síst áhugavert er hvernig
öll þessi nýja tækni mun hafa áhrif á menntun og samsetningu starfa.
Aldrei er mikilvægara að fólk sé skapandi og hafi tilfinningagreind, beiti
gagnrýnni hugsun og leggi áherslu á samvinnu í leik og starfi og þessir
þættir hreinlega verða að koma sterkar inn í störfin okkar og menntun.
Það eru líka alveg fullt af siðferðilegum spurningum sem koma upp hvað
FRAMTÍÐIN ER OKKAR!
Viðtal við Ragnheiði H. Magnúsdóttur, forstöðumann Framkvæmda hjá
Veitum og handhafi UTverðlauna Ský
varðar notkun tækninnar og mjög mikilvægt að hugsa hlutina vel bæði
tæknilega og siðferðilega svo ekki fari illa.
HVAÐ MEÐ LITLA ÍSLAND, HVERNIG
STÖNDUM VIÐ OKKUR Í HRAÐRI ÞRÓUN
DAGSINS Í DAG?
Þjóðir heims eru mis vel undirbúnar hvað varðar fjórðu iðnbyltinguna.
Það er almennt talið að vestrænar þjóðir og þá sérstaklega norðurlöndin
og þar með talið Ísland séu vel í stakk búin að takast á við þessa tæknilegu
og menningarlegu breytingu sem eru að fara að eiga sér stað. Enn í dag
eru þó lönd í heiminum sem hafa ekki náð að rafvæðast og eru því enn
stödd í fyrri iðnbyltingum og munu því eiga töluvert erfitt uppdráttar.
Það mun líka vinna með okkur hvað við hérlendis erum almennt fljót til
að tileinka okkur nýja tækni og getum verið fljót að gera breytingar þar
sem við erum svo fá og auðvelt að ná til allra í einu.
HVERNIG SÉÐU FYRIR ÞÉR ÞRÓUNINA HÉR
Á LANDI NÆSTU 5-10 ÁRIN? HVAÐA
ÁHERSLU VILT ÞÚ SJÁ?
Það er alltaf svolítið erfitt að sjá fyrir sér framtíðina en ég vil sjá hér
hugrakkar og stórar breytingar í menntakerfinu til að takast á við þetta.
Mig langar að sjá atvinnulífið taka stærri skref hvað varðar sí- og
endurmenntun til að sjá til þess að fólk geti þróast í starfi í takt við þær
breytingar sem munu eiga sér stað. Svo er ég handviss um að við munum
blómstra í að nota nýja tækni á þeim sérsviðum sem við erum góð í eins
og innan orkugeirans, heilbrigðistækni, upplýsingatækni, tölvuleikja-
iðnaðarins og sjávarútvegstækni.