Tölvumál - 01.01.2019, Blaðsíða 38

Tölvumál - 01.01.2019, Blaðsíða 38
38 „Við erum á barmi byltingar sem mun breyta hvernig við lifum. Þessi bylting verður ólík öllu sem mannkynið hefur áður kynnst“. Las ég. Grein skrifuð af ungum bjartsýnismanni. Bla bla bla. Ég kaupi ekki. Enda ekki fæddur í gær. Hraðinn er vissulega að aukast - er það byltingin? Ég er búinn að missa einbeitinguna sem ég hafði, það er ekki í boði lengur að skilja hlutina til hlítar. „You can’t shoot from your hips on this one“ var yfirmaður minn í Bandaríkjunum vanur að segja þegar við áttum að vanda okkur en nú skjóta flestir án þess að miða. Kannski tuða ég núna. Það er svo hröð aukning í tölvufaginu að þeir sem kunna það mega ekki vera að því að kenna nýliðunum. Svolítið eins og túrisminn var í hitteðfyrra þegar menntaskólakennarar eru komnir upp um fjöll að elda ofaní túrista á hálendinu. BYLTING ER OF MIKILL HRAÐI Hraðinn varð svo mikill að gömlu mennirnir í faginu bjuggu til scrum og agile stefnur til að kenna ungu kjúklingunum að vinna skipulega, eins og macdonalds gerði, þegar þeir stofnuðu háskóla til að kenna fólki að steikja hamborgara. Útkoman er ekki gæði, heldur betri einsleitni. BYLTING HVERRA? Stærsta bylting 20. aldar á Íslandi var gúmmískórnir, sagði gamall bóndi þegar hann var spurður. Bill Gates hefur veðjað á klósett, kjarnorku og lækningu á lömunarveiki, hann er ekki að hugsa um flatskerma á ísskápum og snjallúr núna. Þetta er ekki hans bylting. AF HVERJU BYRJUÐUM VIÐ AÐ TALA UM BYLTINGU ANNARS? Klaus Schwab hagfræðingur og stofnandi World Economic Fund sem er eitthvað fyrirtæki í Genf gaf út bókina „4. iðnbyltingin“ árið 2016 og kynnti á fundi í Davos sama ár. Æ síðan hafa greinar verið gefnar út um þessa spá. Hinar byltingarnar voru skilgreindar af sagnfræðingum. Ætlum við að leyfa Klaus að skilgreina þessa? Hann gefur sér að við séum á barmi byltingar, en í sjálfu sér er engin ný tækni á leiðinni. Í bókinni nefnir hann gervigreind, internet hlutanna, sjálfkeyrandi bíla, andlitsgreiningu og tölvuheilsugæslu. Ég get týnt til sitthvað í viðbót: flatskjáir; drónar; snjalltúr; DNA lestur; 3D prentun; nanóþræðir; Bitcoin; Uber; gervigreind og vélmenni sem geta labbað eins og fólk. HVENÆR TELST ÞETTA BYLTING? Gervigreind sá ég fyrst 1981, þegar japanska iðnaðarráðuneytið ætlaði að setja byltingu af stað með forritunarmálinu Prolog og stórri fjárinnspýtingu. Bækur voru gefnar út. Svo var byltingin sett á pásu því menn sáu ekki næstu skrefin. „Þegar tölvur geta teflt, það er gervigreind“ sögðu menn. Svo lærðu tölvur að tefla en þá voru markalínurnar bara færðar. Gervigreind í dag er mér vitanlega engin bylting, bara meiri og meiri gagnavinnsla af því tölvur eru orðnar hraðari. Úrið mitt segir mér hjartsláttinn en heilsugæslan er ekki að fylgjast með honum ennþá. Mig grunar að ég muni áfram hitta lækninn í eigin persónu enn um sinn. Þegar netið kom ætlaði fólk að vinna heima og það átti að vera bylting en svo mætir fólk samt því það er svo gott að eiga vinnufélaga. Vefmyndavélin er lítið notuð heima. Ef eitthvað veldur byltingu er það nýtt hugarfar nýrra kynslóða. Í iðnbyltingunni tók vísindahyggja við skilyrðislausri trú á valdið gilt. Menn fóru að trúa að allt væri hægt með vísindum. Fólk er að læra að nota hluti sem hafa verið í boði í nokkurn tíma. Hugarfarsbreytingar gerast samt hægt. EYÐUR FJÓRÐA IÐNBYLTINGIN

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.