Tölvumál - 01.01.2019, Page 9
9
Við lifum á tímum mikilla tækniframfara. Fjórða iðnbyltingin með
róbotatækni og gervigreind mun hafa mikil áhrif á líf og störf fólks á næstu
árum. Umræður hafa þó mikið snúist um hræðslu, ótta við atvinnuleysi
og ójöfnuð. Hins vegar, í sögulegu samhengi er þessi bylting í raun
framhald af öllum þeim miklu tækniframförum sem heimurinn hefur
upplifað um langan tíma og hefur fært okkur ómælda velmegun. Fjórða
iðnbyltingin felur í sér fjölmörg tækifæri á mörgum sviðum og ætti að
veita mönnum von og bjartsýni.
Þeir sem fæddir voru á síðari hluta 20. aldar hafa eflaust ekki áttað sig
á því að þeir voru í þriðju iðnbyltingunni sem þá var kölluð
upplýsingatæknibylting. Iðnbyltingin sem hefst um 1760 og stendur til
1840, var tímabil vélvæðingar með vatnsaflsvirkjunum og síðar gufuorku
ásamt eimreiðum. Rafmagn, olía og bílar voru einkenni annarrar byltinga
á síðari hluta 19. aldar. Á eftirstríðsárunum er svo þriðja, upplýsinga-
tæknibyltingin áðurnefnda.
Ef einhver tækni getur markað upphaf þeirra framfara sem við upplifum
núna má nefna áhrifaríkan fyrirlestur í San Francisco þann 9. janúar árið
2007. Þá fór Steve Jobs á svið og kynnti nýjan farsíma frá Apple. Sá
sími breytti ekki aðeins farsímabransanum á örfáum árum, hann breytti
heiminum.
Snjallsíminn er nú stór hluti af okkar lífi. Að meðaltali snertir fólk símann
sinn 2.617 sinnum á dag. Hann gefur okkur aðgang að fréttum,
samskiptum, afþreyingu, tónlist, hljóðbókum, mat, leigubílum, strætó
og svo framvegis. Þetta tæki er myndavél, vasaljós og hallamál. Telja
má upp tugi tækja sem snjallsíminn leysti af hólmi. Önnur eins af-
efnisvæðing hefur ekki sést. Við erum að fara frá heimi þar sem fólk átti
alls konar hluti í heim þar sem fólk hefur aðgang að þjónustum. Eignalaus
lífsstíll.
Það sem gerir snjallsímann öflugan er hugbúnaður. Bæði hugbúnaður
sem við keyrum á tækjunum okkar sem og skýjaþjónustur. Með þeim
fáum við forrit eins og Snapchat, Whatspp eða Google Maps.
Skýjaþjónustur eru eitt skýrasta einkenni þess að fjórða iðnbyltingin
byggir á hugbúnaði. Hlutir eins og tónlist, bækur, tímarit, reikningar,
fundarboð og umsóknir eru stafræn og allt sem er stafrænt verður að
gögnum fyrir hugbúnað. Þetta mun halda áfram og samskipti við stofnanir,
banka og verslanir verða meira stafræn og byggja á gervigreind.
Gervigreindin hefur lengi verið í þróun. Undanfarin ár hafa orðið miklar
framfarir í ákveðinni tegund gervigreinar, svokölluðum tauganetum og
sérstaklega djúpnámi. Með djúpnámi, tugum þúsunda af öflugum
netþjónum í gagnaverum og miklu magni af gögnum (big data) er hægt
að þjálfa þessi kerfi til að leysa ýmis verkefni. Slík gervigreind hentar vel
til að greina munstur eins og þekkja hluti sem eru á mynd, þýða texta
frá einu tungumáli á annað, skilja mælt mál eins og Siri, Alexa og Assistant
gera.
Gervigreindin getur afgreitt lánaumsóknir, farið yfir nemendaverkefni og
borið kennsl á starfsmann sem mætir til vinnu. Í matvælaiðnaði getur
gervigreind ákveðið hvaða fiskflök, kjötsneiðar eða ávextir eru ekki í lagi
og þarf að fjarlægja. Í heilsugæslu má nota gervigreind til að greina
HEIMURINN FORRITAÐUR
MEÐ FJÓRÐU
IÐNBYLTINGUNNI
Ólafur Andri Ragnarsson, aðjúnkt við Háskólann í Reykjavík
sjúkdóma, skoða röntgenmyndir og fylgjast með sjúklingi í eftirmeðferð.
Sjúklingar eru mældir í rauntíma og gervigreind fylgist með og lætur lækni
vita ef þurfa þykir.
Tölvur fylgja lögmáli Moores um tvöföldun afkastagetu þeirra á um átján
mánaða fresti. Það heldur áfram en fyrir nokkrum árum fór lögmálið á
haus og í stað þess að tvöfalda afkastagetu þá minnkar kostnaður um
helming á átján mánaða fresti sem þýðir að verð á örgjörva er óverulegur.
Það leiðir af sér að öflugir og smáir örgjörvar munu verða hluti af
áþreifanlegum vörum á næstu árum. Slíkt er kallað hlutanetið eða „Internet
of Things“ og felst í að setja lítil tæki með skynjara og örgjörva ásamt
netbúnaði á hluti og tengja þá þannig við netið. Þegar bílar, hús, ljósaperur,
hátalarar, sjónvörp, gleraugu, stólar og aðrir hlutir eru með örgjörva þá
verða þessi tæki grunnur sem hægt er að forrita lausnir ofan á. Þannig
er hægt að forrita hús, bíla og allt sem okkur dettur í hug.
Róbotar 21. aldarinnar skynja umhverfi sitt. Þeir hafa sjón og bera kennsl
á hluti. Þeir hafa heyrn og því er hægt að tala við þá. Róbotar geta verið
færanlegir eða ófæranlegir. Þá síðarnefndu má koma við færiband og
þeim falið ákveðið verkefni. Róbotar sem geta fært sig eru til dæmis
spítalaróbotar sem fara um spítalann með aðföng fyrir starfsfólk og
sjúklinga. Róbotar eru líka komnir inn á heimili fólks og geta átt við þau
samræður, leiðbeint og aðstoðað.
Ómönnuð flugför hafa lengi verið til. Núna er komin kynslóð dróna sem
notaðir er í iðnaði. Dæmi um notkun eru björgunarsveitir sem senda
dróna með hitamyndavél til að leita að fólki, drónar sem taka myndir og
kvikmyndir, og drónar við öryggiseftirlit. Einnig eru drónar notaðir í
Reykjavik við flutning á vörum milli borgarhluta. Slíkt mun aukast og
flugbílar munu ferja fólk milli staða. Flugvöllum í Reykjavík ætti að fjölga
verulega.
Þegar rætt er um fjórðu iðnbyltinguna er spurningin um áhrif á störf ekki
langt undan. Ef róbotar og gervigreind verða allsráðandi verður maðurinn
ekki óþarfur? Ráðgjafar, læknar, kennarar verða settir af þar sem
gervigreind getur unnið þeirra störf betur en þeir. Róbotar vinna í
verksmiðjum í stað verkamanna.
Það væri ótrúlegt ef gervigreind og sjálfvirknivæðing myndi ekki hafa
áhrifa á meirihluta stafa. Læknir sem notar gervigreind til að greina
sjúkdóma, klippari notar rafrænt bókunarkerfi og kennari notar gervigreind
til að fara yfir verkefni.
Hins vegar er ekkert sem bendir til þess að stórkostlegt atvinnuleysi sé
framundan. Breytingar taka tíma, viðhorf breytast hægt og innleiðing
nýrra lausna er tímafrek. Líklega má gera ráð fyrir að fyrirtæki mun
hagræða og reyna að aðlaga starfsemi sína. Óhjákvæmilega munu störf
hverfa, önnur breytast verulega og slíkt verður áskorun fyrir marga. En
ný störf, hugsanlega verðmætari verða til. Það sem meira er, með fjórðu
iðnbyltingunni getum við leyst mörg vandamál sem áður voru of erfið,
gert lífið einfaldara og betra. Það er til mikils að hlakka til. Framtíðin er
björt.