Tölvumál - 01.01.2019, Qupperneq 16

Tölvumál - 01.01.2019, Qupperneq 16
16 TÖLVUVÆÐING Í HÁLFA ÖLD - UPPLÝSINGATÆKNI Á ÍSLANDI 1964-2014 Í tilefni þess að árið 2014 voru 50 ár frá því að fyrsta alvöru tölvan kom til Íslands árið 1964 var ákveðið að ráðast í það verkefni að taka saman sögu tölvuvæðingar á Íslandi. Sagan var birt í vefútgáfu vorið 2016 en ákveðið var að halda verkefninu áfram og gefa söguna út í prentformi og kom hún út þann 6. apríl 2018. Bókin ber heitið: „Tölvuvæðing í hálfa öld - Upplýsingatækni á Íslandi 1964-2014“ og er skrifuð af Önnu Ólafsdóttur Björnsson en í ritnefnd voru Arnlaugur Guðmundsson (formaður ritnefndar), Sigurður Bergsveinsson, Þorsteinn Hallgrímsson, Frosti Bergsson, Gísli Már Gíslason, Gunnar Ingimundarson, Vilhjálmur Þorsteinsson og Sigríður Olgeirsdóttir. Ritsjóri var Arnheiður Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Ský. Það er skemmst frá því að segja að bókin er skemmtileg aflestrar og full af skemmtilegum sögum og staðreyndum um tölvuvæðingu á Íslandi en rétt að taka strax fram að þetta er ekki bók með upptalningu á fyrirtækjum, tækjum eða hugbúnaði á Íslandi. Hægt að nálgast söguna eins og hún ANNA ÓLAFSDÓTTIR BJÖRNSSON Upplýsingatækni á Íslandi 1964–2014 Tölvuvæðing í hálfa öldTölvuvæ ðing í hálfa öld fór á vefinn www.sky.is en í bókinni er búið að umorða texta og kafla á mörgum stöðum og myndskreyta. Stefnan er svo að halda áfram að halda utan um þessa merkilegu sögu á vefnum og því tekið við nýju efni til birtingar þar í framtíðinni. Bókin er seld í völdum verslunum hjá Penninn/Eymundsson og einnig í Bóksölu stúdenta á Háskólatorgi ásamt Bókabúð Forlagins. Við í Menntaskólanum á Tröllaskaga höfum verið að þróa nám og spreyta okkur á annarri nálgun en hefðbundið er. Þannig hafa greinar verið samþættar og inn í þær tvinnað nám erlendis. Til dæmis spænska og íþróttir þar sem nemendur stunduðu að hluta til nám sitt á Spáni. Mat, menningu og tungumál stundum í samstarfi við íbúa landsins er fæddust í öðrum löndum. Við notum yfir 150 smáforrit, forrit og fleira í námi við skólann. Þróum fjarvinnu og fjarsamstarf bæði meðal starfsmanna og nemenda. Leggjum áherslu á frumkvæði, sköpun og áræði, við teljum að eiginleikinn að læra að læra sé mikilvægastur því breytingar samfélagsins og tækninnar sé og verði það miklar að hver nemandi okkar verði námsmaður fyrir lífstíð. Við sjáum símann, spjaldtölvuna og tölvuna sem námstæki og við sjáum nemendur okkar nýta þessi tæki sem slík af því að námið er þannig uppbyggt. Þau þurfa að vinna með þessi tæki í viku hverri til að leysa fjölbreytt viðfangsefni af ýmsu tagi með þeim verkfærum sem við bendum á en einnig að finna sér verkfæri í ýmsum hugbúnaði sem við starfsmenn þekkjum ekkert endilega en lærum þá á hann um leið og þau. Skólinn er námssamfélag nemenda og starfsmanna í heimi sem breytist hratt og við erum að undirbúa ungt fólk fyrir þannig samfélag en ekki samfélag fortíðarinnar. Þær breytingar sem nú standa yfir í samfélaginu varðandi notkun verkfæra upplýsingatækninnar eru í sjálfu sér ekkert nýtt. Þegar ég var í framhaldsskóla voru engar tölvur, nýbreytnin í Samvinnuskólanum á Bifröst var að kaupa sér rándýra reiknivél og láta sig dreyma um rafmagnsritvél um leið og maður barði inn 4 síður fyrir hver skil á ritvélina sína. Þessi þekking gagnast sannarlega í dag því ég er fljót að pikka inn texta, stundum kannski allt of fljót því ég er ekki búin að hugsa. En það breytir því ekki að þegar ég horfi á starf mitt í dag í skóla sem er með kennara sem mæta til vinnu í nærverum (Beam) frá Gautaborg, Reykjavík eða Borgarnesi, starfsmannafundi sem eru bara á netinu, nemendur sem vinna sjálfstætt við tækin sín, þá er það geimferð frá því námi sem ég þekkti í framhaldsskóla. Líklegt má telja að nemendur mínir horfi á nám sitt í dag og hristi hausinn yfir því hversu fornfáleg verkfærin voru þegar þau eru komin á minn aldur. En hafi þau lært að læra, hafi frumkvæði, séu skapandi og búi yfir áræði til að takast á við þær breytingar þá trúi ég því að þeim farnist vel og hafi lært hæfni í námi sínu sem gerir þeim kleift að fást við líf sitt í sátt við miklar breytingar.

x

Tölvumál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.