Tölvumál - 01.01.2019, Síða 35

Tölvumál - 01.01.2019, Síða 35
35 Ragnheiður var framkvæmdastjóri Hugsmiðjunnar í tæp 6 ár, sinnti breytingarstjórnunarverkefni hjá Marel og er í dag forstöðumaður Framkvæmda hjá Veitum. Ragnheiður hefur setið í stjórn Samtaka vefiðnaðarins, stjórn Ský, verið formaður tækninefndar Vísinda- og tækniráðs, formaður Samtaka upplýsingatæknifyrirtækja hjá SUT og hefur svo sannarlega verið fyrirmynd fyrir konur í tækni. Segir valnefnd í rökstuðningi sínum að Ragnheiður hafi, að öðrum ólöstuðum, verið í fararbroddi þegar komi að því að halda mikilvægi upplýsingatæknigeirans á lofti og mikilvægi fjölbreytileika í þeim geira. Í rökstuðningi sínum sagði valnefnd ennfremur: „Ragnheiður er sterkur leiðtogi og hefur gefið rausnarlega af sér í þennan mikilvæga málaflokk, í gegnum störf sín í tæknigeiranum, ráð, nefndir, stjórn og félagsstarf. Þá hefur hún verið óþreytandi við að breiða út boðskapinn í frítíma sínum, enda með skýra hugsjón og sterka sannfæringu þegar kemur að vægi upplýsingatækni í íslensku samfélagi.“ ÞRÍR NÝIR VERÐLAUNA FLOKKAR Jafnframt veitti forseti Íslands þrenn önnur verðlaun við þetta tækifæri; UT-stafræna þjónustan, UT-sprotinn og UT-fyrirtæki ársins. Um er að ræða nýja flokka þar sem afrek ársins 2018 eru verðlaunuð sérstaklega. UT-FYRIRTÆKI ÁRSINS Flokkurinn er fyrir fyrirtæki sem hafa unnið sérstaklega gott starf á árinu 2018 og hafa náð góðum árangri á einn eða annan hátt. Fyrirtæki sem hafa verið að gera góða hluti á innlendum sem erlendum vettvangi með upplýsingatækni að leiðaljósi. Tilnefnd voru NOX MEDICAL, MENIGA og MAREL og vann NOX MEDICAL UT-fyrirtækið 2018. NOX MEDICAL Fá íslensk tæknifyrirtæki hafa fengið jafn mikla umfjöllun fyrir góðan árangur á UT sviðinu en Nox Medical. Nox medical hefur skapað sér sérstöðu á sviði svefnrannsókna í heiminum. Nox medical hefur unnið til fjölda verðlauna fyrir rannsóknir sínar og verkefni. UT-SPROTI ÁRSINS Flokkurinn er hugsaður fyrir fyrirtæki sem hafa verið starfandi síðastliðin 5-6 ár og eru að bjóða lausnir sem hafa vakið athygli. Tilnefnd voru fyrirtækin SYNDIS, SIDEKICK HEALTH OG MEDILYNC og vann SYNDIS verðlaunin vegna 2018. SYNDIS Fá fyrirtæki á Íslandi hafa verið jafn áberandi á sviði öryggismála og Syndis. Segja má að Syndis sé orðið að ímynd upplýsingaöryggis á Íslands. Hjá Syndis starfa miklir sérfræðingar sem þekktir eru um heim allan fyrir störf sín í upplýsingaöryggi. Starfsmenn Syndis eru að vinna um allan heim að öryggismálum og hafa haldið fjölda erinda á alþjóðlegum ráðstefnum. Starfsmenn Syndis hafa fundið stóra öryggisgalla í vörum og þjónustu frá stórum og þekktum framleiðendum. UT-STAFRÆN ÞJÓNUSTA ÁRSINS Flokkurinn er ætlaður lausnum sem skara fram úr og einfalda daglegt líf fólks. Vefsíður, öpp og rafrænar þjónustur hvers konar falla undir þennan flokk. Tilnefnd voru LEGGJA.IS, MENTOR.IS og DOHOP.COM og vann LEGGJA.IS UT-stafræna þjónustan 2018. LEGGJA.IS Með appinu leggja.is er ekki lengur þörf á að vera með smápeninga til að leggja bílnum sínum í gjaldskyld bílastæði. Þægindin sem þetta app hefur skilað til notenda sinna er óumdeilanlegt. Það má segja að með leggja.is hafi íslensk app þróun farið á flug. RAGNHEIÐUR H. MAGNÚSDÓTTIR FÉKK TÍUNDU UPPLÝSINGA- TÆKNIVERÐLAUN SKÝ 2019 VERÐLAUNIN VORU AFHENT AF FORSETA ÍSLANDS HR. GUÐNA TH. JÓHANNESSYNI Á UTMESSUNNI 8. FEBRÚAR 2019

x

Tölvumál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.