Tölvumál - 01.01.2019, Side 42

Tölvumál - 01.01.2019, Side 42
42 heimsókn til tölvufyrirtækja og leysa skemmtileg verkefni. Dagurinn í ár tókst vel og var metfjöldi sem tók þátt. Vonandi tókst að koma tölvugeiranum á blað hjá stelpunum þegar að því kemur að þær velji sér framtíðarmenntun og starfsvettvang. Síðustu 4 ár höfum við tekið þátt í alþjóðlegu verkefni sem heitir BEBRAS „International Challenge on Informatics and Computational Thinking“ (bebras þýðir bifur, enska heitið beaver) en það felst í því að árlega keyra öll lönd í heiminum í eina viku verkefni þar sem krakkar á aldrinum 8-18 ára leysa þrautir á vef sem eru uppbyggðar eins og forritun, þ.e. þrautir sem fá krakka til að hugsa eins og þau væru að forrita en þrautirnar eru ekki forritun sem slík. BEBRAS vikan 2019 verður 11.-15. nóvember og geta allir skólar sem vilja skráð sig í gegnum www.bebras.is. Félagið vinnur náið með ráðuneytum og fyrirtækjum landsins og er Ský með fulltrúa í stjórn Persónuverndar skv. lögum en auk þess eru félagsmenn oft kallaðir til verkefna í ýmsum vinnuhópum tengdum tölvugeiranum. Það er mikilvægt að halda fagmennsku félagsins áfram enda er Ský óháð félag sem er rekið án hagnaðarmarkmiða og án utanaðkomandi styrkja. Ský hefur verið í fararbroddi frá árinu 1968 sem forsvari allra þeirra sem vinna að eða hafa áhuga á tölvumálum. Langar mig að þakka sérstaklega þeim sem taka þátt fyrir hönd félagsins í verkefnunum því oftar en ekki er um ólaunað starf að ræða. Að lokum er vert að nefna að stjórnir faghópa, orðanefnd og ritnefnd vinna ötult starf sem heldur félaginu gangandi og mikill hugur í fólki. Allt starf Ský er unnið undir dyggri stjórn félagsins en þar er úrvalslið sem er mjög vel tengt í tölvugeirann og stútfullt af skemmtilegum hugmyndum um félagsstarfið. Þetta eðalfólk skipar stjórn Ský 2019-2020. Ég hvet ykkur til að vera í sambandi ef eitthvað er og einnig að tengjast Ský á Instagram, Facebook, LinkedIn og Twitter í gegnum vef sky.is og taka þátt í umræðum þar. Sjáumst á viðburðum í vetur! Arnheiður Guðmundsdóttir, framkvæmdarstjóri Ský Vetrarstarfið er nú komið af stað af fullum krafti og eru mörg járn eru í eldinum að venju og nóg af verkefnum fram undan hjá Ský. Á skrifstofunni vinna Arnheiður Guðmundsdóttir og Linda Björk Bergsveinsdóttir og sjá um að halda félagsstarfinu gangandi. Helstu verkefni innanlands eru að halda fróðlega viðburði fyrir félagsmenn og aðra í tengslaneti Ský og eru 2-3 fræðsluviðburðir í hverjum mánuði yfir vetrartímann. Stærsti viðburðurinn er eins og áður UTmessan sem félagið setti af stað 2011 þar sem vöntun var á stórum óháðum tölvu- og tækniviðburði sem felur í sér metnaðarfulla ráðstefnu og sýningu á helstu tækni og nýjungum sem fyrirtæki landsins tengdum tölvugeiranum vinna við. Megintilgangur UTmessunnar er að vekja athygli á hve mikil gróska er í tölvu- og tæknigeiranum með það markmið að hvetja ungt fólk til að velja sér tölvu- og tæknigreinar sem framtíðarstarf. Fram undan er undirbúningur tíundu UTmessunar. Ekki grunaði okkur að þetta nýsköpunarverkefni sem fór af stað árið 2011 yrði að svo vinsælum viðburði og að UTmessan myndi festa sig svo vel í sessi. Nú er svo komið að flestallir landsmenn hafa heyrt um UTmessuna þó ekki viti eins margir sem að hún er á vegum Ský. Tilhlökkun fyrir næstu UTmessu er best lýst í þessari mynd af starfsmönnum Ský. Erfitt verður að toppa það að Tunglið hafi mætt á UTmessuna! Arnheiður og Linda á UTmessunni 2019 Ýmis önnur verkefni eru í gangi hjá Ský. Tímaritið Tölvumál hefur verið gefið út frá árinu 1976. Árlega veitir félagið Upplýsingatækniverðlaun Ský og á aðalfundum félagsins eru heiðursfélagar tilnefndir þegar tilefni er til. Einnig var Ský í samstarfi við Reboot Hack keppnina 2019. Ský er aðili að evrópsku samtökunum CEPIS sem flest öll tölvufélög í Evrópu eru aðilar að. Þar starfa nokkrir faghópar og höfum við verið virk innan Women in ICT, Education in ICT og Ethics in ICT. Forritun sem skyldufag í grunnskólum er t.d. eitt af því sem öll löndin eru að berjast fyrir og því ekki séríslenskt að pressa á menntayfirvöld með það. Ský var fulltrúi CEPIS í dómnefnd AdaAwards 2019. Eitt af þeim verkefnum sem við vinnum í samstarfi við Evrópu er að halda ár hvert „Girls in ICT Day“ og höfum við verið þátttakendur í því á Íslandi með Háskólanum í Reykjavík og fleiri aðilum síðustu ár. Dagurinn er haldin í lok apríl og felst í því að bjóða stelpum í ákveðnum árgangi að mæta á stutt námskeið tengd tölvu- og tæknigreinum og fara þær einnig í FRÉTTIR AF STARFSEMI SKÝ Arnheiður Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Ský Kristján Ólafsson Jón Ingi Sveinbjörnsson Dagbjartur Vilhjálmsson Theódór R. Gíslason Sólveig Hrönn Sigurðardóttir Snæbjörn Ingi Ingólfsson María Dís Gunnarsdóttir

x

Tölvumál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.