Málfríður - 15.09.2002, Blaðsíða 8

Málfríður - 15.09.2002, Blaðsíða 8
Starfsemi kennsluráðgjafa í Norræna húsinu Kristín Jóhannesdóttir. Arnbjörg Eiðsdóttir. 8 Kristín Jóhannesdóttir gegnir nú fullu starfi kennsluráðgjafa í Norræna húsinu ásamt Arnbjörgu Eiðsdóttur, sem gegnir þar hálfu starfi. Báðar hafa þær starfað sem grunnskóla- kennarar í Ölduselsskóla í mörg ár auk þess að hafa samið námsefni í dönsku á vegum Námsgagnastofnun- ar. Þær voru á dögunum teknar tali um starfsemi kennsluráðgjafans í Norræna húsinu. Hvert er hlutverk kennsluráðgjafa í Norræna húsinu? Starf kennsluráðgjafans í Norræna húsinu heyrir undir forstjóra Norræna hússins, en ráðgjafanefnd Norrænu ráðherranefndar- innar ber ábyrgð á starfslýsingu ráðgjafans og innihaldi starfsins. Hlutverk kennslu- ráðgjafa er einkum að styrkja stöðu nor- rænna tungumála á Islandi, miðla upplýs- ingum um íslenska tungu og menningu til hinna Norðurlandanna og upplýsingum um tungumál og menningu Norðurlanda til Islands. Einnig er hlutverk kennsluráð- gjafa að standa fyrir og leggja drög að námskeiðum, fyrirlestrum og ráðstefhum sem varða norræn tungumál, norræna tungumálakennslu og norræna samvinnu og hafa frumkvæði að og vinna að verk- efnum sem nýtast við kennslu í norrænum tungumálum. Hvaða verkefni eru helst á döfinni? Eitt af því sem tilheyrir starfi kennsluráð- gjafa er að taka á móti íslenskum og er- lendum nemendahópum á öllum aldri og veita fræðslu um Norðurlöndin, norræn tungumál og norrænt samstarf. A sl. ári höfum við verið að semja nýtt kynningar- námsefni og bjóðum nú upp á átta mis- munandi kynningar. Nemendur í 3. og 4. bekk fá kynningu á Norræna húsinu og vinna verkefnahefti þar sem þau fræðast um Norðurlöndin, fana Norðurlandanna og norrænu tungumálin í gegnum leiki og þrautir. Nemendum 5. bekkjar er boðið að koma og vinna verkefni í tengslum við Verkefnablað ætlað nemendum 3. og 4. bekkja. norrænar barnabókmenntir en nemendur 6. og 7. bekkja fá ffæðslu um Norðurlönd og norræna samvinnu. Þess má geta að einmitt í 6. bekk og 7. bekk eru nemend- ur að vinna með Norðurlönd í samfélags- fræði og er þeirri fræðslu sem við veitum hér ædað að styðja við þá umfjöllun. Nemendum 8. bekkjar er boðið að koma hingað og sjá myndbandið „Á sama báti“ en það var framleitt í tilefni af 50 ára af- mæli Norðurlandaráðs og fjallar um hóp norrænna ungmenna sem fóru í sigHngu á víkingaskipi. Að lokinni sýningu myndar- Norræn dagblöð: Frá heimsókn nemenda í Ar- bœjarskóla.

x

Málfríður

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Málfríður
https://timarit.is/publication/1081

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.