Málfríður - 15.09.2002, Blaðsíða 15

Málfríður - 15.09.2002, Blaðsíða 15
tilheyrir fjölbreyttri menningu sem stend- ur á traustum grunni, eins og rakið var hér að framan. Frönskunám er góður grunnur að námi í öðrum rómönskum tungumál- um. Franskan er tungumál hsta og lífsástar. Hún er fagmál matreiðslumeistara, póst- þjónustunnar og hún er nauðsynleg þeim er vilja starfa fyrir alþjóðastofnanir. Allt nám er þroskaferli og með ástundun og aukinni þekkingu finna nemendur fram- farir og læra að takast á við krefjandi verk- efni. Það gerist einmitt þegar nýtt tungu- mál er lært hvort sem það nefnist franska, þýska eða spænska. Það er einnig umhugsunarefni að á meðal nemenda sem velja frönsku eru stúlkur í miklum meirihluta. Hvað veldur því er ekki auðvelt að sjá, en leita má skýr- inga í því að tungumálin eru almennt tal- in vera „stelpufög", og sagt sem svo að stelpur séu duglegar að læra tungumál og lélegar í stærðfræði og að strákar geti ekki lært tungumál, en geti lært stærðfræði. Slíkum goðsögnum verðum við að eyða. Leið til þess gæti verið að skoða betur námsefni tungumálanna almennt. Er eitt- hvað þar sem hvorki dregur stráka að náminu, né vekur hjá þeim áhuga? Þetta er verðugt rannsóknarefni fyrir kennslu- og félagsfræðinga. Mikilvægt í þessari umræðu um stöðu- ga fjölgun nemenda í einu tungumáli um- fram önnur er að kennarar leggist á eitt um að efla kennslu í tungumálum al- mennt. Ráð til þess gæti verið að hefja tungumálakennslu fyrr í skólum landsins. Það eru gömul sannindi að börn eru sér- staklega móttækileg fýrir erlendum tungumálum, en hér á landi hefst tungu- málakennsla því miður of seint. Það er ekki óalgegnt í nágrannalöndum okkar að nemendur byrji 7 ára að læra sitt fyrsta er- lenda tungumál (t.d í Finnlandi og Eystra- saltslöndunum). Byija mætti að kenna 7 ára nemendum sitt fyrsta erlenda tungu- mál og síðan bæta við öðru tungumáli tveimur til þremur árum síðar og í ung- lingadeildum væri síðan sjálfsagt að bjóða upp á kennslu í frönsku, spænsku og þýsku. Sýnist höfundum þessarar greinar að það gæti verið vænlegur kostur ef stytta á framhaldsskólanám um eitt ár, en umræð- ur hafa verið um slíkt undanfarið. Slík til- högun gæfi nemendum kost á að afla sér nokkuð góðrar þekkingar í a.m.k. þremur erlendum tungumálum áður en í framhaldsskóla er komið. Þetta kallar að sjálfsögðu á breytta menntun grunnskóla- kennara sem þyrftu að geta lagt stund á þessi tungumál í kennaranámi sínu, og að framhaldsskólakennarar tileinki sér kennslu í tungumálum fyrir yngri nemendur. Einnig væri eðlilegt að gera erlend tungu- mál að skyldugrein á háskólastigi eins og víða tíðkast í Evrópu. Þannig gætu há- skólanemar haldið tungumálakunnáttu sinni við og/eða spreytt sig á nýju tungu- máh. A mörgum sviðum í háskólanámi eru flestar kennslubækur á erlendum tungumálum og því er eðlilegt að nem- endur fái þjálfun í þeim. Eins væri slíkt tungumálanám nauðsynlegur undirbún- ingur fyrir framhaldsnám erlendis. Háskóli Islands hefur raunar brugðist við þessari þörf með því að bjóða upp á sjálfsnám í tungumálum og byrj endanámskeið í ítöl- sku, frönsku og spænsku. Að lokum ... Niðurstaða þessarar greinar okkar er því sú að til þess að efla veg frönskunnar í ís- lenska skólakerfinu verði að begast fyrir aukinni tungumálakennslu almennt. Það þarf að mennta þýsku-, spænsku- og frönskukennara fyrir grunnskólana, fjölga tímum, byija fyrr og auka tungumála- kennslu á háskólastigi.Til þess að franskan öðhst þann sess sem hún verðskuldar í fjölbreyttri flóru tungumála er nauðsyn- legt að auka það rýnú sem tungumálin hafa í skólakerfinu og leggja áherslu á mikilvægi tungumálakunnáttu almennt. Eyjólfur Már Sigurðsson, Tungumálamiðstöð HÍ Guðrán H. Tulinius, Menntaskólanum við Hamrahlíð Heimildir: „L’Atlas géopolitique et culturel du Petit Robert des noms propres", Dictionnaires Le Robert 1999. Calvet, Louis-Jean: „La guerre des langues et les politiques linguistiques”, Hachette Littératures 1999. De Robillard, Didier: „Histoire de la diffusion du fran^ais dans les pays non-francophones, faits et éclairages” in: Gérarld Antoine et Bernard Cerquiglini (dir): „Histoire de la langue fran^aise 1945-2000” CNRS éditions 2000. Byqa mætti að kenna 7 ára nemendum sitt fyrsta erlenda tungumál og síðan bæta við öðru tungumáli tveimur til þremur árum síðar 15

x

Málfríður

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Málfríður
https://timarit.is/publication/1081

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.