Málfríður - 15.09.2002, Síða 18
Greinarhöfundar á góðri stundu í
Cambridge. Standandi Þórhildur.
Sitjandi Þórey, Eva og Katrínfrá
Þýskalandi.
allt á tungumálið. Fótboltamenningu bar
einnig á góma. Þegar knattspyrna er ann-
ars vegar er breska heimsveldið ekki sam-
einað. I heimsmeistarakeppnum falla Irar
og Skotar oft íljótt út, og einn fyrirlesar-
inn tjáði okkur að það tíðkaðist í
Skotlandi að flagga fyrir andstæðingi Eng-
lendinga í hvert sinn sem þeir keppa.
Honum var reyndar ekki um allt þetta til-
stand gefið og forðaði sér út á eina
minnstu Hebrides-eyjuna daginn sem
Englendingar kepptu á móti Brasilíu-
mönnum í sumar. Þar kom hann í skóla
þar sem nemendurnir voru aðeins 14, og
viti menn - lítill brasilískur fáni var festur
við skólagirðinguna. Gaman var að rifja
upp þá sögu þegar Skotarnir voru í heim-
sókn um daginn. Nokkrir fyrirlesarar
fræddu okkur um mál eins og mennta-
kerfið. Það tekur örum breytingum en
ekki samfelldum, þar sem hver mennta-
málaráðherra er sagður vilja reisa sér
minnismerki. Sjálfstæður fjárhagur skóla
er dæmi um kunnugleg hugtök úr um-
ræðunni hér að heiman, en einnig hefur
borið á þeirri stefnu að borga skólum
ekki beint fyrir hvern nemanda, heldur
veita fénu til foreldra barnanna og leyfa
þeim að ráða hvaða skóla barnið fer í. Eins
bar oft á góma hvernig Bretar hta á stöðu
sína í heiminum í dag - en þar virðast þeir
eiga í einhvers konar viðvarandi sálar-
kreppu eins og áður er vikið að. Bretar
halda fast í pundið og Evrópumálin eru
viðkvæmur málaflokkur. Sumir hafa
áhyggjur af að vera taglhnýtingar Banda-
ríkjamanna en aðrir lofa hið sérstaka sam-
band sem á að vera milli Breta og stór-
veldisins í vestri. Aðstoðarkennari á nám-
skeiðinu var ung kona sem var einkar lag-
in við að kynna efni á skemmtilegan hátt.
Hún byrjaði t.d. oft tíma þannig að setja
upp hálfa málshætti á veggi stofunnar og
nemendur fengu límmiða með því sem
vantaði til að fullkomna þá. Hún játaði
fyrir okkur að vera háð sápuóperunni
„Coronation Street“, og að heyra athuga-
semdir eins og „get a life!“ vegna þess
arna. Hún kynnti svo hvernig hægt væri
að nota slíkt efni í kennslu. Þess má geta
til gamans að hún sagði okkur að þegar
bókin „Bridget Joness Diary“ kom út
hefði henni og vinkonum hennar fundist
að verið væri að skrifa um þær! Sú bók
fellur undir „chick lit“ skilgreininguna,
eins og kunnugt er. Sumum þátttakendum
fannst námskeiðið ekki nógu vel skipu-
lagt, eða ekki nóg um praktíska aðferða-
fræði. Þeim féll ekki umræðustílhnn sem
var ráðandi. Ef til vih réði þar nokkru um
að annar kennarahópur var á námskeiðinu
„Creativity in the Classroom“ á sama
tíma og fréttist af almennri ánægju þeirra.
En við stöllurnar höfum sótt mörg að-
ferðafræðinámskeið og kunnum vel að
meta að fá nýja innsýn í hugarheim Breta,
sem eru enn í uppáhaldi hjá okkur þrátt
fyrir að þeir dragi úr eigin ágæti í ræðu og
riti. Þar mynda þeir skemmtilegt mótvægi
við Bandaríkjamenn, sem eru nemendum
okkar svo rík fyrirmynd á fjölrmðlaöld.
Eva Hallvarðsdóttir, Menntaskólanum við Hamrahlíð,
Þórey Einarsdóttir, Menntaskólanum við Hamrahlíð og
Þórhildur Lárusdóttir, Kvennaskólanum í Reykjavík.
18