Málfríður - 15.09.2002, Page 22
Áberandi var að
þingheimur var
sammála um
mikilvægi
margtyngds
samfélags á ís-
landi þar sem
fjölbreytt fram-
boð tungumála-
náms væri
grundvöllur far-
sældar í náinni
framtíð.
styttra og væri knappari en námskrá í
þýsku og spænsku. Helstu galla taldi Mar-
grét vera uppsetningu og ytri ramma
námskrárinnar — áfangaheiti í neðstu
áfbngum væru stundum villandi. Þá taldi
hún að það að gert væri ráð fyrir þriggja
eininga áfongum væri ekki í samræmi við
hefðir allra skóla svo sem bekkjaskóla sem
sumir væru með tveggja eininga áfanga.
Margrét lauk máh sínu með því að lýsa
yfir áhyggjum yfir að einingum í kjarna á
málbraut í þriðja og fjórða máh hefði ver-
ið fækkað og kvaðst uggandi um framtíð
tungumálakennslu — sérstaklega ef fram-
haldsskólinn yrði styttur kæmi það niður
á tungumálanámi.
Að loknu kafhhléi stýrði Hólmfríður
Garðarsdóttir, formaður STIL umræðum.
Hún gerði að umtalsefni að tungumála-
kennsla væri tæki til aukinna samskipta og
samvinnu í margtyngdri og margmenn-
ingarlegri verbld samtímans og að skil-
greind markmið tungumálanáms á Islandi
væru tungumálanám frá unga aldri, sjálfs-
ábyrgð í námi, fjarnám og tæknivæðing
auk efhngar margmæhs eða fjöltyngis. Eft-
ir að hafa dregið saman efnisinnihald fýr-
irlestra dagsins gaf hún síðan orðið laust.
Fjörugar umræður spunnust þar sem sitt
sýndist hvequm. Áberandi var að þing-
heimur var sammála um mikilvægi marg-
tyngds samfélags á Islandi þar sem fjöl-
breytt framboð tungumálanáms væri
grundvöhur farsældar í náinni framtíð.
Vakin var athygli á því að vegna vaxandi
vinsælda spænskunnar að undanförnu hafi
franska og þýska átt erfiðara uppdráttar.
Einn fundargesta var uggandi yfir þessari
þróun og benti á ábyrgð foreldra á að hafa
áhrif á börn sín varðandi val á tungumála-
námi. Aðrir bentu á að sífehdar sveiflur
væru í vinsældum tungumála og spilaði
þar margt saman. Rétt væri að nýta áhuga
fólks á hvaða tungumáli sem væri til að
mála menningarhf á Islandi með fleiri og
bjartari litum.
I lokin voru aðstandendum ráðstefn-
unnar og þá sérstaklega frúVigdísi Finn-
bogadóttur sem sat aha dagskrána,
Menntamálaráðuneytinu og þeim dr. Auði
Hauksdóttur og Guðnýju Guðlaugsdóttur
frá StofnunVigdísar Finnbogadóttur færð-
ar sérstakar þakkir fyrir hversu glæshega
tókst th með skipulag á þessum öðrum
tungumáladegi í Evrópu.
Byggt á samantekt frá Stofhun Vigdísar
Finnbogadóttur
22