Málfríður - 15.09.2002, Page 23

Málfríður - 15.09.2002, Page 23
Tabula — Netblað Tabula er netblað nemenda sem er hann- að með það fyrir augum að skapa vettvang fyrir ritunarverkefni nemenda í tungu- málum. I Tabula má finna ýmsar greinar um Reykjavík, um Island svo og viðtöl. Við kennararnir í spænskudeildinni hleyptum verkefninu af stokkunum en við vonum hins vegar að greinar á öðrum tungumálum bætist við síðar. Hver þekkir ekki verkefnin í byrjunar- áfanga tungumála þar sem nemendur eru látnir lýsa landinu sínu eða segja frá áhugamálum sínum og hvað þeir gera sér til gamans þegar ekki er verið að læra eða vinna. Efnið getur verið afar aviðkvæmt og stundum finnst nemendum leiðinlegt að tala um sig eða fjölskylduna sína. Okk- ur finnst kannski tilvalið að láta nemend- ur segja frá sér og sínum en spurningin er hvort þeim finnist það nokkuð gagnlegt. Síðan er það spurning hvort nemend- ur læri nokkuð af því að skrifa eitthvað um sig sem fer síðan aftur ofan í tösku og verkefnið liggur þar það sem eftir er ann- arinnar. Hvernig getum við verið viss um að nemendur læri af því sem þeir eru að fást við í svona ritunarverkefni? Og hvernig getum við hvatt þau til að leggja sig fram við það sem þau eru að gera? Mér hefur alltaf fundust erfitt að vinna með ritun þar sem ferlið sem slíkt getur verið eingöngu að setja nemendum fýrir, innheimta verkefni og síðan leiðrétta og skila til baka. Eg tel nauðsynlegt að hafa víðtækari markmið og hagnýta krafta nemenda til sköpunar á verki sem vex og dafnar yfir lengri tíma. Að skrifa er ferh undir leiðsögn og þess vegna tók ég upp á því að gefa nem- endunum mínum kost á að leiðrétta sjálf- ir verkefnin sín. Eg skilaði verkefnum með athugasemdum og þeir skiluðu síðan verkefnunum aftur til baka. I fýrrahaust hófst fartölvuvæðing í mínum skóla og allt í einu vorum við far- in að vinna með tölvur í tungumálum. I kennslunni fórum við m.a. að nota tölv- urnar til að leita upplýsinga, fræðast um menningu annarra landa, lesa texta, leysa þrautir, gera vefleiðangra ásamt því að æfa og þjálfa ritun. Þarna sá ég mér leik á borði að gera ritunarverkefni nemend- anna að alvöru verkefni sem gæti hvatt þá til að skrifa góð verkefni að eigin vali sem þeir og aðrir gætu notið. Mikilvægt var þó að ákveða að leggja verkefnið þannig fyrir að nemendur gætu sjálfir valið sér viðfangsefni innan ákveð- ins ramma. Hugmynd mín var auðvitað sú að þá myndu þeir verða áhugasamari um að leita sér upplýsinga og skrifa góðan texta. Þegar þeir eiga von á fleiri lesend- um heldur en bara kennaranum er líklegt að þeir leggi meira í verkið. I stað þess að hver nemandi skrifaði bara fyrir sig og kennarann ákváðum við að búa til netblað sem fékk nafnið Tabula. I upphafi væri blaðið tómt en myndi síð- an fýllast af fróðleiksmolum og greinum um ísland. Nemendur í SPÆ203, SPÆ303 og SPÆ403 fengu að taka þátt í verkefninu. Fyrsta skrefið var að velja viðfangsefni og til þess fylltum við töfluna með hug- myndum og síðan fengu nemendur að velja sér efni eftir eigin áhugasviði. Eftir það var þeim skipt niður í litla hópa, pör eða þeim leyft að vinna einum. Þeir fengu ákveðinn tíma í töflu til að skrifa greinar en áttu síðan að skila þeim sem einu af tveimur ritunarverkefnum í áfanganum. Textunum var síðan skilað á rafrænu formi til að setja á vefsíðu Tabula. Kennarinn hjálpaði nemendum að afla upplýsinga, vinna með einfaldan texta og efni. Eftir að textinn var tilbúinn fór kennarinn aftur yfir hann með nemend- unum og setti hann að lokum textann inn á vefinn. Þar sem þetta var í fyrsta skipti sem verkefnið var unnið komu upp ýmis vandamál. Fyrst og fremst þau að halda utan um verkefnið í heild og fá nemend- ur til að skilja að þetta væri alvöru verk- efni sem færi síðan út á vefinn. Einnig þurfti að kenna nemendum að takmarka sig við viðráðanlegt efni. Ahuginn var oft svo mikill að það reyndist erfitt að fá nemendur til að velja ekki of erfið við- fangsefni miðað við getu. Einnig stóð til Ida Semey. 23

x

Málfríður

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Málfríður
https://timarit.is/publication/1081

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.