Málfríður - 15.09.2002, Qupperneq 25
Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum
tungumálum
Auður Hauksdóttir, forstöðumaður Stofn-
unarVigdísar Finnbogadóttur var svo vin-
samleg að fræða lesendur Málfríðar m.a.
um hlutverk stofnunarinnar, dagskrá
haustmisseris og samstarf við tungumála-
kennara. Hún upplýsir lesendur einnig um
það hvernig stjórn stofnunarinnar er sam-
sett og hið öfluga kynningarstarf sem fra-
mundan er.
Á fundi í heimspekideild Háskóla
íslands þann 26. apríl 2001 var samþykkt
tillaga um nafnbreytingu á Stofnun í erlen-
dum tungumálum í StofnunVigdísar Finn-
bogadóttur í erlendum tungumálum.
Tilgangurinn með nafnbreytingunni er
tvíþættur. Annars vegar að heiðra frúVigdísi
fyrir ötult starf í þágu tungumála og hins
vegar að styrkja rannsóknir og kennslu í
erlendum málum. I greinargerð með tillög-
unni stendur m.a.: „Frú Vigdís Finn-
bogadóttir hefur sem kunnugt er verið
öflugur talsmaður mikilvægis tungumála-
kunnáttu, jafnt erlendra mála sem móður-
málsins og hefur lagt drjúgan skerf til þessa
málaflokks í störfum sínum sem kennari,
forseti Islands og nú síðast á vettvangi
Sameinuðu þjóðanna ... Með því að kenna
stofnunina við frú Vigdísi Finnbogadóttur
sýnir heimspekideild hug sinn í verki til
merkilegs ffamlags hennar á þessu sviði.
Jafnframt mun það verða Stofnun í erlend-
um tungumálum mikil lyftistöng að tengj-
ast nafhi og störfum ffúVigdísar“
Nafnbreytingin tengdist annars vegar
90 ára affnæli Háskóla íslands og hins veg-
ar Evrópska tungumálaárinu 2001. Hinn
1. október var haldin hátíðarsamkoma í
tilefni af stofndegi Stofnunar Vigdísar
Finnbogadóttur í erlendum tungumálum
og var hún fyrsti liðurinn í affnælisdagskrá
sem haldin var í tilefni 90 ára afmælisins.
Athöfnin fór fram í Hátíðasal Háskólans
að viðstöddu fjölmenni.
Hlutverk
StofnunVigdísar Finnbogadóttur í erlend-
um tungumálum er rannsóknastofnun og
starfar innan Hugvísindastofnunar. Stofn-
unin er rannsóknavettvangur þeirra kenn-
ara heimspekideildar sem fást við erlend
tungumál, fornfræði og þýðingaffæði. Sem
stendur er boðið upp á nám í eftirtöldum
tungumálum: dönsku, ensku, finnsku,
ffönsku, grísku, latínu, norsku, rússnesku,
spænsku, sænsku og þýsku, en stefnt er að
því að hefja japönskukennslu á næsta ári.
Stofnunin leggur einnig ríka áherslu á
að efla tungumálakennslu jafnt innan há-
skólans sem utan. Auk náms á B.A.-stigi
og þverfaglegs náms í Tungumálamiðstöð-
inni er sérstök áhersla lögð á að efla fram-
haldsnám í tungumálum við heimspeki-
deild m.a. í samstarfi við erlenda háskóla.
Meginmarkmið Stofnunar Vigdísar
Finnbogadóttur er að efla rannsóknir á
fræðasviði sínu og vera vettvangur þróun-
arstarfs og upplýstrar umræðu um tungu-
mál, tungumálanám og menningarffæði.
Þetta hlutverk rækir stofnunin m.a. með
því að stuðla að öflugum rannsóknum í
tungumálum og með því að gangast fyrir
ráðstefnum, námskeiðum, málstofum og
standa að útgáfu fræðirita. Áhersla er lögð
á samvinnu við aðrar háskólastofnanir
jafnt innan lands sem utan.
Auður Hauksdóttir.
Dagskrá haustmisseris
í september var dagskrá haustmisseris
2002 kynnt, en þar gefur að hta yfirlit yfir
málþing og fyrirlestra á vegum stofnunar-
innar. Sem dæmi um málþing má nefna
málþing um tungutækni í tungumálarann-
sóknum, þýðingum og tungumálakennslu,
sem haldið var í september s.l. og málþing
um tungumál og atvinnulífið, sem haldið
verður 28. nóvember n.k. Efhi málþingsins
er Hugbúnaðarþýðingar á Islandi.
Meðal fyrirlestra má nefna fyrirlestur
spænska rithöfundarins Manuel Rivas,
sem fluttur var í september og fyrirlestur
Margrétar Jónsdóttur, lektors, sem fluttur
var í október, en hann bar yfirskriftina
Miðaldahetjan El Cid í hugmyndafrœði fas-
isma á Spáni. I lok október fjölluðu Maria