Málfríður - 15.09.2002, Blaðsíða 27

Málfríður - 15.09.2002, Blaðsíða 27
Notkun kvikmynda í enskukennslu Kvikmynd er miðill sem höfðar til flestra og einkum og sér í lagi ungu kynslóðarinnar. Það er því tilvalið að nota kvikmyndir við kennslu erlendra mála þar sem auðvelt er að þjálfa færni- þættina fjóra: Tal, hlustun, lestur og rit- un, með hjálp kvikmynda. Við Þórey Einarsdóttir og Þórhildur Lárusdóttir höfum góða reynslu af því að nota kvikmyndir við enskukennslu. Við höfum samið og tekið saman verkefni með kvikmyndum til notkunar í enskukennslu og fengið til þess styrk frá menntamálaráðuneytinu. Sem reyndir kennarar vitum við að það er mjög þægilegt að fá tilbúin verkefni upp í hendurnar. Með þá reynslu að leiðarljósi höfum við sett þetta verkefni okkar út á Netið til þess að þeir kennar- ar, sem hafa áhuga og aðstæður til, geti kynnt sér þær hugmyndir sem við höf- um byggt á og notað verkefnin okkar eins og þau koma fyrir, eða hluta af þeim eftir því sem þeirn hentar hverju sinni. Það er ósk okkar og von að sem flestir geti nýtt sér þetta efni. Kvikmyndir í enskukennslu (Orðið kvikmynd (sem upphaflega merkir hreyfimynd) er hér notað sem samheiti yfir leiknar kvikmyndir í fullri lengd, myndbönd, heimildamyndir, sjón- varpsefni og fleira). Ekki gefst betra tækifæri í skólastof- unni til þess að þjálfa skilning á mæltu máli en með því að horfa á kvikmyndir. Tungumálið skilst betur þegar nemandinn getur tengt það við svipbrigði, handa- hreyfingar og aðra líkamstjáningu. I kvik- myndum er tungumáhð talað af ólíkum einstaklingum við aflar hugsanlegar að- stæður. Þar gefst tækifæri til að heyra ólík- ar mállýskur, málhreim og málsnið marg- víslegra þjóðfélagshópa. Ólíkt því sem margir kunna að telja er kvikmyndaáhorf alls ekki einhhða mötun upplýsinga. Kvikmyndin krefst þess að áhorfandinn leggi sitt af mörkum til að túlka, draga ályktanir, fýfla inn í eyður og fá botn í atburðarás og aðstæður. Hver einstaklingur gerir það út frá sínum eigin einstaklingsbundnu forsendum. Kvik- myndir bjóða því upp á umræður og skoðanaskipti. Nemendur eru áhugasamir um kvikmyndir og vel með á nótunum vegna þess að þetta er flstform sem átt hef- ur hug þeirra flestra frá blautu barnsbeini. Þeir eru oft öruggari og fúsari til að tjá skoðanir sínar á ýmsu sem lýtur að kvik- myndum en öðru sem þeir eiga erfiðara með að samsama sig við, svo sem bók- menntatextum. Þrátt fyrir að kostirnir við að að nota kvikmyndir í kennslu séu svo margir og ótvíræðir er staðreyndin sú að þær eru óvíða notaðar að nokkru marki. Mikil áhersla hefur verið á ritmálið í íslensku skólakerfi og víðar. íslensk kvik- myndasaga er mjög stutt, hefðin býður að ritmálið hafi forgang og kvikmyndin hef- ur orð á sér fýrir að vera fýrst og fremst af- þreyingarefni. Með því að gera kvikmyndum hærra undir höfði í tungumálakennslu er ekki ætlunin að draga úr vægi ritmáls svo nokkru nemi. Þessir tveir þættir — lestur texta og kvikmyndapæflngar - geta stutt hvor við annan. Nota má kvikmynd til að auka skilning og áhuga á lestexta og öfugt. Lestrarþjálfun er, og verður enn, einn mik- ilvægasti þáttur enskunámsins, en hlustun, skilningur á menningarlegum þáttum svo og munnleg færni verða æ þýðingarmeiri í sívaxandi samskiptum þjóða. Annað sem kemur í veg fýrir notkun kvikmynda við kennslu er skortur á tækj- um og aðgengilegu efni. Tíminn er oft naumt skammtaður og mörgum kennur- um finnst þeir ekki hafa nægjanlega þekk- ingu og reynslu af kvikmyndum til að geta miðlað öðrum eða unnið gagnlega með þær. Þórey Einarsdóttir. Þórhildur Lárusdóttir. Vaxandi vegur kvikmynda í skólastarfi í nágrannalöndum okkar, svo sem í Bret- landi, Noregi og Svíþjóð, eru kvikmyndir notaðar allmikið bæði í móðurmáls- kennslu og við tungumálakennslu. Norsku 27

x

Málfríður

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Málfríður
https://timarit.is/publication/1081

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.