Málfríður - 15.09.2002, Qupperneq 28

Málfríður - 15.09.2002, Qupperneq 28
28 og sænsku kvikmyndastofhanirnar eru til að mynda báðar með glæsileg vefsetur þar sem frnna má námsefni til notkunar með innlendum sem erlendum kvikmyndum. Breska kvikmyndastofnunin, svo og stofn- un sem nefnist Film Education, eru einnig nreð vefsetur þar sem boðið er upp á margvíslegt efni. Breskir og bandarískir framleiðendur myndefnis, svo sem BBC, ITV, A & E, Discovery Channel og TCM, bjóða margir upp á kennsluefni og hvetja til aukinnar notkunar þess. Afþessu má sjá að vegur kvikmynda fer mjög vaxandi innan skólakerfisins víða um lönd. Hér á Islandi má líka sjá merki um breytingar. I nýju námskránni er lagt til að kvikmyndir séu notaðar í flestum áföng- um í ensku án þess að það sé þó tilgreint nánar hvernig það skuli gert. Framboð myndefnis hefur aldrei verið meira en nú. Hægt er að ná útsendingum fjölmargra erlendra sjónvarpsstöðva og mikið úrval efnis er fáanlegt á sölumynd- böndum hérlendis, auk þess sem auðvelt er að nálgast efni frá útlöndum í gegnum Netið. Odýrari tækjabúnaður og tilkoma nýrrar stafrænnar tækni (DVD) gerir fleir- um kleift að nota kvikmyndir til kennslu að staðaldri og opnar nýja möguleika. DVD-diskar bjóða til að mynda oft upp á enskan texta með kvikmyndum á ensku, en það auðveldar nemendum mjög að skilja og meðtaka hið talaða mál. A DVD- diskunum er auk þess oft að finna marg- víslegt efni sem dýpkar skilning og eykur áhuga, svo sem viðtöl við aðstandendur og heimildaþætti um leikstjóra eða baksvið myndarinnar. Margt af þessu efni mætti einnig nota eitt og sér, án þess að nota kvikmyndina sjálfa við kennsluna. DVD-diskar eru handhægir í notkun, á þeim er til að mynda fljótlegt að finna til- tekin atriði og myndskeið, endurtaka, sýna hægt, frysta myndramma og fleira sem auðveldar notkun við kennslu. Sýningarréttur Strangt tiltekið er óheimilt að afrita efni úr sjónvarpi og sýna myndbönd eða DVD-diska, nema til einkanota á heimil- um, eins og kemur fram í viðvörununum í byrjun mynda. Hvergi er þó tekið fram að bannað sé að sýna í skólum eða menntastofnunum og reynslan sýnir að ekki er amast við slíku í öðrum löndum svo fremi sem það er gert í menntunar- skyni. Rétthafar sjá sér hag í að hvetja til slíks. Því til staðfestingar má benda á vef- setur og aðra útgáfustarfsemi stofnana sem minnst var á hér að ofan. Til hvers er best að nota kvik- myndir? Kvikmyndir má nota til að kenna og þjálfa nær alla þætti tungumálakennslu. Gagnsemi við hlustun Hggur í augum uppi. Hér að ofan er bent á hvernig ensk- ir textar við enskar myndir geta stutt við hlustunarskilning, en það getur einnig verið lesþjálfun í sjálfu sér að lesa textana. Kvikmynd getur vakið áhuga á lestexta, til dæmis umfjöllunum um kvikmyndir, kvikmyndadómum eða skáldverki sem myndin er byggð á. Kvikmyndir eru fyrst og síðast sögur af fólki og atburðum og um þær má fjalla á sama hátt og texta. Persónur eru forvitni- legt umfjöllunarefhi og hægt að ræða endalaust um persónueinkenni, kosti og galla og með því kenna og æfa orðaforða sem því tengist. Sama má segja um útlit fólks, staði og atburðarás. Ollu þessu fylgja oft fjörlegar umræður og skoðanaskipti, þ.e. talþjálfun. Málnotkun (usage) og málfræði má líka æfa með þessum hætti.Til þess er best að nota stutta, afmarkaða kafla, gjarnan úr

x

Málfríður

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Málfríður
https://timarit.is/publication/1081

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.