Bæjarins besta - 09.12.1992, Side 2
2
MJARINS BESI4 ■ Miðvikudagur 9. Desember 1992
Hraðfrystihúsið Norðurtangi hf:
Hálfrar aldar gamalt
HRAÐFRYSTIHÚSIÐ
Norðurtangi hf. á Isafirði,
eitt stærsta fyrirtækiðá Vest-
fjörðum í áraraðir verður
50 ára á föstudaginn. Fyrir-
tækið hefur verið leiðandi á
sínu sviði ailt frá stofnun þcss
og á og rekur í dag auk frysti-
hússins togarana Guðbjart
ÍS, Hálfdán í Búð ÍS og línu-
bátinn Orra IS. Þá er fyrir-
tækið helmingshluthafi í
Fiskiðjunni Freyju hf. á
Suðureyri sem það keypti
með Frosta hf. í Súðavík
fyrir eigi alls löngu.
Þegar fyrirtækið varð 40
ára, árið 1982 gaf það út veg-
legt rit um sögu fyrirtækisins
og þar segir m.a. um aðdrag-
andann að stofnun Norður-
tangans:
„Nú er ekki fyllilega ljóst,
hvort Hálfdán Hálfdánsson
hefur upphaflega haft í hyggju
að gerast einn eigandi hrað-
frystihússins í Norður-
tanganum, eða hvort hann hefur
verið búinn að undirbúa
stofnun hlutafélags um fyrir-
tækið áður en hann sótti um
byggingarleyfið. Síðari
kosturinn er þó miklu senni-
legri. Bygging og starfræksla
hraðfrystihúss var trauðla á
færi eins manns, þótt dugandi
væri og fjáður, og víst er, að
Hálfdán nefndi stofnun hrað-
frystihússins við frænda sinn,
Guðmund M. Jónsson,
veturinn 1941-1942 og gekk
þá út frá því að um hlutafélag
yrði að ræða.
Það var svo föstudaginn 11.
desember 1942, að þeir
Hálfdán Hálfdánsson, Aðal-
steinn Pálsson, skipstjóri og
Steingrímur Amason, síldar-
kaupmaður komu saman til
fundar á skrifstofu Gunnars
Þorsteinssonar, hæstaréttarlög-
manns í Thorvaldssensstræti 6
í Reykjavík og var tilgangur
fundarins sá, að stofna hluta-
félag um byggingu og starf-
rækslu hraðfrystihúss á Isa-
firði. Til fundarins hafði
Hálfdán meðferðis umboð
tveggja Isfirðinga, sem einnig
ætluðu að gerast hluthafar,
þeirra Guðbjarts Asgeirssonar,
útgerðarmanns og Guðmundar
M. Jónssonar, skipstjóra.”
Ofangreinir aðilar voru allir
stofnendur hlutafélagsins
Hraðfrystihússins Norður-
tanga hf. og hélst fyrirtækið í
þeirra eigu til ársins 1949 en þá
urðu eignabreytingar á því. Út
fóru þeir Hálfdán Hálfdánsson
sem lést fyrr á árinu og þeir
Aðalsteinn Pálsson og Stein-
grímur Arnason sem ákváðu
að selja sín bréf. Þeir Guð-
bjartur Asgeirsson og Guð-
mundur M. Jónsson voru nú
einu stofnendumir, sem eftir
voru í hópi hluthafa, en til liðs
við þá gengu þeir Eggert Hall-
dórsson, Guðjón E. Jónsson
og Ingólfur Amason. Þessir
menn voru allir búsettir á Isa-
firði, og eftir að þeir gerðust
hluthafar hefur fyrirtækið
jafnan verið að fullu í eigu
manna búsettra í bænum. T veir
hinna nýju hluthafa voru ná-
tengdir Norðurtanganum frá
upphafi. Eggert Halldórsson
var mágur Guðmundar M.
Jónssonar og Ingólfur Amason
hafði verið hægri hönd
Hálfdáns um árabil ogannaðist
skrifstofuhald fyrir Norður-
tangann frá 1944.
Núverandi framkvæmda-
stjóri fyrirtækisins er Jón Páll
Halldórsson og skrifstofustjóri
er Hans W. Haraldsson en hann
er eini skrifstofustjórinn í sögu
fyrirtækisins og hefur veitt
skrifstofunni forstöðu í 27 ár.
Eini núlifandi stofnandi fyrir-
tækisins er Guðmundur M.
Jónsson og starfar hann enn hjá
fyrirtækinu sem verkstjóri.
Blaðið óskar afmælisbarninu,
eigendum þess og starfsfólki
til hamingju með daginn.
• Sóknarpresturinn á ísafirði, sr. Magnús Erlingsson ásamtfulltrúum sóknarnefndar,
þeim Gunnari Steinþórssyni, Birni Teitssyni og Hlyn Snorrasyni með líkan af hinni
nýju kirkjubyggingu.
ísafjörður:
Ný kirkja vígð 1994?
■menn bjartsýnir á að verkinu Ijúki á tilskiidum tíma
FRAMKVÆMDUM við
kirkjubyggingu hefur verið
hætt í bili. Fyrsta hluta
verksins átti að ljúka fyrir 1.
desember sl. en sökum veðurs
tókst það ekki. Vonast er til
að því verki verði lokið fyrir
1. júní næsta árs og þá þegar
og jafnvel fyrr hafist handa
við byggingu annars hluta. I
maí sl. var kosin fimm manna
bygginganefnd sem Gunnar
Steinþórsson veitir for-
mennsku. Sú nefnd hefur haft
yfirumsjón með gangi
verksins svo og kostnaðará-
ætlunum.
Lokið hefur verið við 70%
af fyrsta hluta verksins sem
hljóðaði upp á 10 millj. kr.
Annar hluti og sá viðamesti er
uppsteypa byggingarinnar og
frágangur hennar að utan. Gert
er ráð fyrir að þessi hluti verði
boðinn út í síðasta lagi í byrjun
mars 1993 og er áætlaður
kostnaður tæpar 74 millj. kr.
Stefnt er að því að einangra og
pússa bygginguna að utan
jafnframt því að vinna að frá-
gangi kirkjuskipsins að innan
sumarið 1994.
Kostnaðaráætlun fyrir frá-
gang kirkjuskipsins hljóðar
upp á rúmar 25 millj. kr. að
undanskildri steinlögn á gólf
og orgeli. Að loknum 120
millj.krframkvæmdum verður
enn eftir að innrétta safnaðar-
heimilið en það verður látið
bíða um tíma.
Bjartsýnustumenn stefnaað
vígslu nýrrar kirkju seint á árinu
1994.
Til að fullkomnahljómburð
í kirkjunni var fenginn hljóm-
burðarsérfræðingurinn Stefán
Einarsson til að meta hljóm-
burð í kirkjunni og í samráði
við hann var ákveðið formið
á þakinu og breytingar gerðar
• Hraðfrystihúsið Norðurtangi hf. verður 50 ára á föstudaginn.
Framhaldsskóli Vestfjarða:
kennarár bætast þó við í val
Annar-
próf í
fullum
gangi
ANNARPRÓF standa
yfir í Framhaldsskóla Vest-
fjarða og því nóg að gera
bæði hjá nemendum og
kcnnurum.
Ef allt gengur að óskum
lýkur annarprófum 14.
desember en endurtektar- og
sjúkraprófum lýkur 18.
desember og ættu því allir
nemendur og kennarar að
vcra komnir í jólafri um það
leiti. Þeir nemendur sern
þreyta próf á þessari önn eru
276 samkvæmt bókhaldi
skólans. Þar af eru 227 í dag-
skóla, 22 i öldungadeild, 17 á
Hólmavík og 10 á Patreks-
firði. Kennsla hefst aftur 6.
janúarog að sögn Jóns Reynis
Sigurvinssonar kennara
verða engar breytingar á
kennarahaldi. Tveir stundar-
greinum. Einn í fjölmiðlaf-
ræði sem er ný af nálinni og
einn í forritun. Því máeinnig
bæta við að á vorönn verður
boðið upp á í fjarnámi
byrjunaráfanga í dönsku,
þýsku og stærðfræði og fram-
haldsáfanga í ensku.
-ma
á turni svo og aðrar smávægi-
legar breytingar.
Gert er ráð fyrir að kirkjan
í heild sinni taki tæplega 500
manns. í kirkjuskipinu sjálfu
eru sæti fyrir 300 manns en í
forsalinn komast 60 manns og
130 í safnaðarsalinn. Kosin var
sjö manna fjáröflunamefnd til
að athuga ýmsa möguleika í
fjáröflun. Hlynur Snorrason
veitir þeirri nefnd formennsku
og nú þegar hefur verið hafist
handa við fjáröflun. Búið er
að stofna reikninga í báðum
bönkunum á Isafirði þar sem
fólk getur lagt inn fjárframlög
að eigin frumkvæði.
I Landsbankanum er um að
ræða tékkareikning nr. 10115
en í Islandsbanka sparisjóðs-
bók nr. 301111. Búið er að
senda út gíróseðla til fólks og
á næstu dögum verður farið
að selja jóiakort til styrktar
kirkjubyggingunni. Jólakortin
verða til sölu í hinum ýmsu
verslunum í bænum og er fólki
bent á að með jólakorta-
kaupum aukast líkur á að
kirkjan verði tilbúin á til-
skildum tíma. Jólakortin prýðir
teikning af nýju kirkjunni og
vel þess virði aö fjárfesta í
slíku. Ekki hefur verið stefnt
að ákveðinni fjárhæð að sögn
Hlyns en ætlunin er að safna
sem mestu fé.
-ma.