Fréttabréf frá Biskupsstofu - 15.02.1976, Blaðsíða 1
FRÉTTABRÉF frá BISKUPSSTOFU
1. tlb.
jan. - feb. 1976
1. árg.
FYLGT ÚR HLAÐI:
Það er áformað, að fréttabréf af því tagi, sem hér
er á ferð, verði eftirleiðis sent frá Biskupsstofu
öðru hverju. Guðmundur Einarsson, framkvæmdastjori
Hjálparstofnunar kirkjunnar, hefur tekið að sér sem
aukastarf fyrst um sinn að annast kynningu á
fréttum, sem kirkjuna varða, að koma orði frá henni
á framfæri við fjölmiðla, begar þörf krefst og eftir
því sem unnt er. Þessi ráðstöfun er gerð í samráði
við framkvæmdastjórn Hjálparstofnunar og samfara
hagræðingu á skrifstofu hennar. Fréttaþjonustu
kirkjunnar hefur lengi verið ábótavant, enda skortur
á aðstöðu til þess að ir.na hana af hendi. Ég vona,
að þetta bréf verði nokkur umbét til bráðabirgða og
að þvx verði vel tekið. Ég vil biðja menn að senda
bréfinu fregnir af því, sem gerist í söfnuðum
þeirra. Einnig má senda fyrirspurnir og athuga-
semdir. En auðsætt er, að hér er ekki- rúmrfyfir
langa pistla að svo búnu.
ANDS8GKASAFN Með bréðurkveðju,
376192 1
•1 Sigurbjörn Einarsson.
ISIANOS á