Fréttabréf frá Biskupsstofu - 15.02.1976, Blaðsíða 8
Sr. Einar Guðnason fyrrverandi prófastur látinn.
Hinn 14. janúar sxðast liðinn lést hinn kunni prestur og
prófastur sr. Einar Guðnason fyrrverandi prófastur að
Reykholti, 72 ára að aldri.
Hann var prestur í Reykholti x Borgarfirði rúmlega 42 ár,
lengur en nokkur annar prestur s.l. 300 ár en aðeins 2
höfðu setið staðinn lengur frá siðaskiptum. Hann var
jarðsettur að Reykholti 24. janúar að viðstöddu miklu
fjölmenni. Auk þess að vera prestur í Reykholti var
hann kennari við Reykholtsskóla frá stofnun hans 1931 -
1966. Hann var prófastur £ 6 ár frá 1966 - 1972 og
fyrsti prófastur í sameinuðu prófastsdæmi Mýra- og
Borgafjarðarsýslu frá 1970. Eftirlifandi kona hans er frú
Anna Bjarnadóttir.
A DÖFINNI
Hinn 15. febrúar n.k. eru prestskosningar £ Mosfellssveit,
en sr. Bjarni Sigurðsson, sem verið hefur sóknarprestur þar
22 s.l. ár, lætur nú af embætti og tekur við lektorsstöðu
við Guðfræðideild Háskóla íslands frá 1. janúar að telja.
Umsækjendur eru fjórir: Sr. Auður Eir Vilhjálmsdóttir,
sr. Bragi Benediktsson, sr. Kolbeinn Þorleifsson og sr.
Sveinbjörn Bjarnason.
I veikindaforföllum sr. Gríms Grímssonar í Ásprestakalli
mun sr. Árelíus Níelsson þjóna prestakallinu næstu 2 mánuði.
Þa hefur sr. Jon Kr. Isfeld verið settur prestur á
Norðfirði til a.m.k. næstu fjögurra mánaða.
Skipuð hefur verið ný Æskulýðsnefnd frá áramótum að telja.
Sú nýbreytni verður jafnframt tekin upp að æskulýðsfulltrúi
er nú jafnframt formaður nefndarinnar og oddamaður.