Fréttabréf frá Biskupsstofu - 15.02.1976, Blaðsíða 4
ÆSKULÝÐSFULLTRÚI A FÖRUM
Sr. Guðjón Guðjónsson, sem gengt hefur embætti æskulýðs-
fulltrúa, síðan haustið 1974 hefur sagt starfi sínu lausu
frá 15. febrúar að telja. Hann og fjölskylda hans eru á
förum til Svíþjóðar í lok febrúar, þar sem sr. Guðjón er
ráðinn sem 4. prestur í Köping, sem er 29 þúsund manna
bær, skammt frá Vasterás. Koma sr. Guðjóns til safnaðarins
£ Köping hefur vakið nokkra athygli í Svíþjóð, og m.a.
birtist nú nýverið viðtal við biskupinn x Vasterás í
dagblaði, þar sem hann fagnar hæfum presti og kirkjutón-
leikamanni, þar sem sr. Guðjón er. í viðtali þessu kemur
m.a. fram að kirkjukórinn í Köping bíður eftir sr. Guðjóni
sem stjórnanda, og væntir góðs af því samstarfi.
Sr. Guðjón mun til að byrja með verja miklum txma til
ýmiss konar skýrslugerða, til þess að læra opinberar
skyldur sænsks prests, sem starfsmanns sænska rikisins.
Hins vegar mun hugur sr. Guðjóns stefna til þess að
gerast prestur í litlu sveitaprestakalli - "minnugur hins
ánægjulega tíma í Stóra-Núpsprestakalli", eins og sr.
Guðjón orðaði það, í viðtali við fróttabréfið. Sr. Guðjón
sagðist aðspurður ekki geta svarað því hve lengi hann
hygðist dvelja í Svíþjóð, en ljóst væri að hann yrði þar
a.m.k. í fimm ár - e.t.v. ævilangt. Sr. Guðjón er kvæntur
sænskri konu, Siv Guðjónsson og eiga þau eina dóttur.
Það er vissulega mikill söknuður að sr. Guðjóni - ekki
síst fyrir æskulýðsstarf kirkjunnar, en hann hefur
hlotið mikla viðurkenningu æskulýðsnefndar og annarra
samstarfsmanna fyrir uppbyggingarstarf og skipulagshæfileika
í þágu Æskulýðsstarfs Þjóðkirkjunnar. Sr. Guðjóni og
fjölskyldu hans fylgir bæn íslensku þjóðkirkjunnar á tíma-
mótum - og víst skal sú von látin í ljós, að kirkja íslands
megi njóta krafta hans, þótt síðar kunni að verða.