Fréttabréf frá Biskupsstofu - 15.02.1976, Blaðsíða 6
bréf, þar sem við óskum eftir upplýsingum um störf þeirra,
þótt það verði að játast að svör hafa borist heldur dræmt.
Við höfum haldið fundi með mjög mörgum að undanförnu og
skrifað hinum ýmsu stofnunum s.s. Hjálparstofnun kirkjunnar
safnaðaráði Reykjavíkurprófastsdæmis - fjölmiðlunarnefnd
kirkjunnar - bindindisráði kristinna safnaða, söngmálastjóra
Æskulýðsstarfi kirkjunnar og fleirum og í framhaldi af því
átt fund með skipulagsnefnd Reykjavíkurprófastsdæmis um
sérstöðu þess prófastsdæmis um t.d. hvernig beri að standa
að stofnun nýrra prestakalla, og í sambandi við það höfum
við átt fund með prestunum í Breiðholti - mjög gagnlegt -.
Nú þá var fundur með fráfarandi formanni Æskulýðsnefndar
og Æskulýðsfulltrúa.
Við höfum reynt að taka málin fyrir á breiðum grundvelli,
en nú erum við einkum að einbeita okkur að prestakalla-
skipun og skipun biskups.
Á næsta fundi x byrjun marz verða þessi tvö mál um presta-
kallaskipun og stöðu biskupsembættisins einkum til umræðu,
og hefur töluverð undirbúningsvinna verið í sambandi við
þau mál t.d. könnuð öll frumvörp sem komið hafa fram á
kirkjuþingum um skipun biskups og um biskupsembættið eða
embættin, ef út í það er farið.
- Hverjir eiga sæti í nefndinni auk þín?
- Sr. Jónas Gíslason, lektor, sr. Halldór Gunnarsson, sem
er ritari nefndarinnar, sr. Þórhalldur Höskuldsson, sr.
Heimir Steinsson og sr. Jón Bjarman, sem skipaður var
varamaður, en hefur starfað sem fullgildur nefndarmaður.
AÐ NORÐAN
Við hringdum í sr. Pétur Sigurgeirsson, vfgslubiskup til
þess að fá helztu fréttir sem hann myndi eftir að norðan
Sr. Pétur kvað tvannt ofarlega í huga, annars vegar
vegleg gjöf kvenfélagskvenna á Akureyri til kirkjunnar -
kr. 300 þúsund, sem fyrirhugað er að verja til bættrar
aðstöðu í safnaðarheimilinu, sem er x kjallara kórsins
í Akureyrarkirkju.