Fréttabréf frá Biskupsstofu - 15.02.1976, Blaðsíða 9
Nefndin er skipuð eftirtöldum aðilum: Sr. Guðjón Guðjónsson
formaður, Björn Ingólfsson, skólastjóri Grenivík, fru
Hanna Pálsdóttir, sr. Jón Dalbú Hróbjartsson.og Guðmundur
Einarsson.
Æskulýðs- og fórnarvika verður haldin vikuna 7. - 14. marz
n.k. Yfirskrift vikunnar er: Guð þarfnast þinna handa. í
vikunni verður aðaláherzla lögð á tvö verkefni - málefni
þroskaheftra barna á íslandi, og söfnun fastra styrktarmanna
fyrir Hjálparstofnun kirkjunnar. í tilefni vikunnar verða
margvísleg erindi og þættir fluttir á opinberum vettvangi,
bæði við guðsþjónustur og í fjölmiðlum. Unniö er af fullum
krafti við undirbúning og má þar m.a. nefna útgáfu
Æskulýðsmessuforms, blaðs í dagblaðsformi, "plakat" o.fl.
og verður efni þetta sent til safnaða nú á næstunni. 1
undirbúningsnefnd eru sr. Ingólfur Guðmundsson, lektor,
Jóhannes Tómasson, aðstoðaræskulýðsfulltrúi og Guðmundur
Einarsson, framkvæmdastjóri.
Hinn 25. janúar s.l. var efnt til söfnunar 1 tilefni
alþjóða holdsveikradagsins. Safnanir voru víða við guðs-
þjónustur og jafnframt var vakin athygli á gíróreikningi
Hjálparstofnunar kirkjunnar. Þegar þetta er skrifað hafa
borist til skrifstofu Hjálparstofnunar kirkjunnar á 7.
hundrað þúsund krónur.
ÆSKUL?ÐSBLAÐIÐ
Æskulýðsblaðið 3 tlb'. \. 25. árg. er nýkomið út. Ritstjóri
er sr. Birgir Ásgeirsson, sóknarprestur á Siglufirði.
Blaðið er vandað að öllu leyti, en meðal efnis má nefna
grein eftir sr. Kristján Val Ingólfsson um helgisiði,
kirkjusöguþátt eftir sr. Gunnar Björnsson, 1jósmyndaþátt
eftir Pjetur Maack, stud theol. , auk margra greina og
frásöguþátta.