Fréttabréf frá Biskupsstofu - 15.02.1976, Síða 3
EKKNASJÓÐUR ÍSLANDS
Árlegur söfnunardagur fyrir Ekknasjóð Islands er 2.
sunnudagur í marz. Það var sjómannskona, sem stofnaði
þennan sjóð, ásamt manni sínum, á stríðsárunum, með
höfðinglegu stofnframlagi. Hlutverk sjóðsins er að hlaupa
undir bagga með ekkjum, sem eru í nauðum staddar fjárhags-
lega. Slíkar ekkjur eru vissulega til, þrátt fyrir
tryggingar. Getur styrkur bætt úr brýnni þörf, þótt ekki
só hann hár. Sjóðurinn hefur getaö orðið mörgum að liði
í tímabundnum erfiðleikum. En hann hefur ekki orðið
nægilega öflugur til þess að geta bætt úr nema broti af
þeirri þörf, sem greiða þyrfti úr.
Á síðast liðnu ári veitti sjóðurinn 4 ekkjum úrlausn,
samtals 250 þúsund krónur. Ráðstöfunartekjur hans eru
nær eingöngu ágóði af merkjasölu hór í Reykjavík, svo og
söfnunarfó í kirkjum. Stofnandi sjóðsins, frú Guðný
Gílsdóttir, hefur um árabil sjálf annast umsjón með
merkjasölunni x Reykjavík af miklum dugnaði og fórnfýsi.
Undanfarin ár hefur hún notið ágætrar aðstoðar frú
Margrótar Þórðardóttur, form. Mæðrafólags Reykjavíkur.
Víðast um landið hefur árangur af fjársöfnun til Ekkna-
sjóðsins verið lítill eða enginn að undanförnu. Það eru
vinsamleg tilmæli, að menn muni sjóð þennan og hlutverk
hans. Gjafir til hans eru kærleiksverk. Prestar eru
beðnir að gera viðvart á Biskupsstofu um það, hvort þeir
telji æskilegt að fá merki til sölu. Einnig er mælzt til
þess, að þeir láti vita um ekkjur, sem hafa þörf fyrir
styrk, og sæki um fyrir þær með sem gleggstum upplýsingum.
Umsóknir sendist form. sjóðsstjórnar, biskupi. Framlög
sendist Biskupsstofu.