Fréttabréf frá Biskupsstofu - 15.02.1976, Page 10
VESTMANNSVATN
Á baksíðu Æskulýðsblaðsins er grein, sem ber yfirskriftina
Ný áform, þar er greint frá því að á sumri komanda muni
horfist handa um byggingu kapellu í sumarbúðunum að
Vestmannsvatni, svo og húsnæðis fyrir eftirlitsmann, sem
hugsanlega byggi þar allt árið.
"DAGUR Æ.S.K."
I Æskulýðsblaðinu er greint frá því að til eflingar starfs-
semi Æ.S.K. (Æskulýðssamband kirkjunnar í Hólastifti),
munu hin ýmsu félög innan Æ.S.K. halda upp á daginn vxtt og
breitt um Hólastifti, með samkomum og helgistundum.
HIMINN I AUGUM
í desember s.l. kom út vönduð bók, sem inniheldur úrval
predikana sr. Þorsteins Briem. Vissulega ber að fagna því
að bók þessi er komin út og víst er að öllum þeim sem
eitthvað láta sig varða meistaraverk kristinna pródikana
munu fagna útgáfu þessari. Á bókarkápu segir m.a. Hér
kemur fyrir almenningssjónir úrval prédikana eftir sr.
Þorstein Briem fyrrverandi prófast og ráðherra. Formála
að bókinni ritar biskupinn yfir Islandi herra-Sigurbjörn
Einarsson og segir þar m.a. "Síra Þorsteirin.prófastur Briem
hefði orðið níræður á þessu ári 3. júlx. Hann var auð-
kenndur maður,hvar sem hann fór og lét til sín taka. Og
orðum hans fylgdu jafnan áhrif þeirrar persónugerðar, sem
minnir á hin djúpu vötn, stillt og tær. Það var einmælt,að
hann væri sá prestur sinna daga hérlendis, sem einna mest
kvæði að. Bar þó frá um það álit, sem hann hafði á sér
sem prédikari. Þar þóttu fæstir komast jafnfætis honum
og enginn framar. Hann samdi ekki svo ræðu, að hann legði
sig ekki allan x verkið. Missmíðum undi hann ekki og mundi
seint hafa treyst þvi, að engin væru. Hann var kröfuharður
við sjálfan sig og gagnrýninn. Hugsjón hans um ábyrgð
predikarans gagnvart Guði og mönnum var há og kröfumikil.