Kópavogsblaðið - 09.05.2015, Page 13

Kópavogsblaðið - 09.05.2015, Page 13
Kópavogsblaðið 13 Mynd: Starfsmenn Áhaldahúss Kópavogs Skeljabrekka 4, úthlutað til Últíma hf. Byggt árið 1963 og rifið árið 2014. Á vef Kópavogsbæjar segir um þetta hús: „Últíma- húsið dregur nafn sitt af því að klæðagerðin Últíma var þar með vefnaðarverksmiðju á árum áður. Húsið var einnig kallað Krókshúsið. Fyrirtækið Krókur sem var með dráttarbílaþjónustu hafði þar nefnilega líka höfuðstöðvar Álfhólsvegur 111 úthlutað til Gísli Friðgeir Guðjónsson 1945 rifið 2014 Mynd: Starfsmenn Áhaldahúss Kópavogs Álfhólsvegur 22, úthlutað til Þórðar Guðnasonar og Ragnheiðar Tryggvadóttur. Byggt um 1950, rifið árið 2014. Þarna rak Þórður áratugum saman vélsmiðju sem var eitt af elstu fyrirtækjum í Kópavogi. Meðal annars hannaði hann og smíðaði ruslapokagrindurnar sem margir muna eftir. Mynd: Starfsmenn Áhaldahúss Kópavogs Kópavogsbraut 77, úthlutað til Guðmundar Einarssonar og Guðrúnar Jónsdóttur. Byggt árið 1955 og rifið árið 2007. Þau hjón voru bæði kennaramenntuð og starfaði Guðmundur árum saman við Heyrnleysingjskólann en Guðrún sem oft var kennd við Prestbakka í Strandasýslu kenndi ungum börnum að lesa og skrifa heima hjá sér á Kópavogsbrautinni. Einnig tók hún unglinga í einkatíma í tungumálum.

x

Kópavogsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kópavogsblaðið
https://timarit.is/publication/1117

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.