Kópavogsblaðið - 09.05.2015, Page 16

Kópavogsblaðið - 09.05.2015, Page 16
Kópavogsblaðið16 KópavogSÞríÞrauTin LiSTaháTíð Fyrsta þríþraut ársins Ný listahátíð í Kópavogi í sumar Á morgun, 10. maí, fer fram fyrsta þríþrautarmót ársins í Kópavogi. Kópavogsþrí- þrautin er sú þríþrautarkeppni sem á sér lengsta sögu á Íslandi. Hún var fyrst haldin árið1996 og síðan óslitið frá 2006. Mótið telur til stiga í stigakeppni Íslands í þríþraut. Keppnin samanstendur af 400m sundi, 10,4km hjólreiðum og 3,6km hlaupi. Flest af besta þríþrautarfólki lands- ins er skráð til leiks og verður mikið fjör á skiptisvæðinu því að þrautin er stutt og fljótustu menn eru um 36 mínútur að klára keppnina. Á eftir aðalþrautinni, eða klukkan 11 verður haldin fjölskyldu- og ungmennaþríþraut. Þá er keppt í helmingi styttri vegalengdum; 200 metra sundi, 5,2 km hjóli og 1,4km hlaupi. Þar geta fjölskyldur tekið sig saman og klárað þrautina í sameiningu þar sem hver fjölskyldumeðlimur tekur sinn hluta. Það eru engin aldurstakmörk í þessari keppni og geta liðin til dæmis verið afi, mamma og barn eða á þann hátt sem hentar best. Þá geta ung- menni 12-16 ára klárað alla þrautina sjálf. Ekkert þátttökugjald er í fjölskylduþrautina. Í fyrra tóku 37 fjölskyldulið þátt og er gert ráð fyrir enn fleiri fjöl- skylduliðum í ár. Einnig verður tvíþraut fyrir krakka þar sem krakkar niður í 6 ára aldur fá að spreyta sig. Gert er ráð fyrir um 250 kepp- endum og að á svæðinu verði milli 400 og 700 manns. Dag- urinn endar svo á grillveislu og verðlaunaafhendingu. Það verður því mikið glens og gaman á Rútstúninu á morgun. Í tilefni 60 ára afmælis Kópavogs-bæjar rifjum við upp samtvinn-aða sögu hans og Rauða kross- ins í Kópavogi. Kópavogsdeild var stofnuð þegar bæjarfélagið var einungis þriggja ára og hefur ávallt haft það að sjónarmiði að aðstoða þá sem minna mega sín í samfélaginu. Fyrst má rifja upp stórt hlutverk í stofnun Sunnuhlíðar, dvalar- og hjúkrunarheimili fyrir aldraða en það var m.a. stjórn Rauða krossins í Kópavogi sem benti á mikil- vægi þess að stofna slíkt heimili í Kópavogi. Deildin veitti mikið fjármagn í byggingu Sunnuhlíðar sem og rekstur heimilisins fyrstu tvo áratugina. Rauði krossinn í Kópavogi hafði aðsetur í Sunnu- hlíð allt frá vígslu heimilisins, 1982, þar til hann flutti í núverandi Kópavogsbær tekur þátt í nýrri alþjóðlegri listahátíð, Cycle Music and Art Festi- val, sem fram fer í Kópavogi dagana 13. til 16. ágúst. Hátíðin fer aðallega fram í Hamraborg, Salnum og Gerðarsafni auk þess sem óhefðbundnar staðsetningar og almenningsrými verða notuð fyrir tónleika, uppákomur og inn- setningar. Áhersla verður lögð á samtímatónlist í samvinnu við önnur listform, svo sem gjörn- ingalist, myndlist, hljóðlist og arkitektúr. Á hátíðinni koma fram listamenn sem eru brautryðjendur á sínu sviði. Helst má nefna verðlauna- hafa Tónlistarverðlauna Norður- landaráðs 2014, tónskáldið Simon SteenAndersen, hljóðlistakonuna Christinu Kubisch, gjörninga- listakonuna og tónskáldið Jennifer Walshe, Sigurð Guðjónsson myndlistarmann og Gjörninga- klúbbinn. Fjör hjá Skólahljóm- sveit Kópavogs Til hamingju með sextugsafmælið Kópavogur Það er búið að vera mikið fjör hjá Skólahljómsveit Kópavogs undanfarnar vikur, með hljóðfæraprófum, tón- fundum, hljóðfærakynningum og ýmsu öðru. Elstu krakkarnir í hljómsveitinni sem eru á aldrinum 13 – 18 ára hafa verið á stífum æfingum síð- asta mánuðinn að undirbúa tón- leikaferð til Spánar dagana 19. – 29. júní. Þar mun hljóm- sveitin taka þátt í fjölmennri tón- listarhátíð í bænum Calella sem er skammt fyrir norðan Barcelo- na. Búist er við fjölda hljómsveita á mótið og verður spennandi að sjá og heyra samanburðinn við aðra hópa frá hinum ýmsu lön- dum. Það er fjölmennur hópur sem fer á mótið, 66 hljóðfæra- leikarar ásamt sjö manna fylgdar- liði, stærsti hópur sem nokkru sinni hefur farið á vegum SK í tónleikaferð. Undanfarna daga hafa nemendur og kennarar SK verið á faraldsfæti og heimsótt grunnskóla bæjarins með hljóðfærakynningar fyrir nemendur í 3. bekk. Þar gefst börnunum kostur á að sjá hljóðfærin sem kennt er á í hljómsveitinni og heyra hvernig þau hljóma þegar leikið er á þau af kunnáttu. Það getur komið sér vel að kunna skil á hljóðfærunum þegar opnað er fyrir innritun í skólahljómsveitina, en innritun er dagana 8. og 9. maí. Við SK starfa 15 kennarar sem kenna börnunum það sem þau þurfa að kunna til að geta spilað með í hljómsveit og stefnan er að gefa sem allra flestum kost á því að læra á hljóðfæri. Til að gefa ennþá fleiri börnum kost á að vera með í starfi SK verður sérstaklega fjölgað plássum fyrir nemendur sem búa austast í bænum, en þeir krakkar hafa stundum átt erfitt með að sækja tíma í Digranesið þar sem aðstaða hljómsveitarinnar er. Frá næsta vetri verður stefnt að því að senda kennara í meira mæli til hljóðfærakennslu í Vatnsenda- og Hörðuvallaskóla. Einnig er nýlokið tónfundatörn vorsins en þá fá allir nemendur SK tækifæri á að spreyta sig á tón- leikasviðinu með því að spila eitt- hvað af þeim lögum sem þeir hafa lært á vorönninni fyrir áhorfendur í tónleikasal. Það er alltaf mikill spenningur í kring um svona tónfundi og glæsilegt að fylgjast með hvað allri eru einbeittir í að standa sig sem allra best á tón- leikapallinum. Með hækkandi sól og fækkandi lægðum kemur líka tími vor- prófa í flesta skóla og síðustu viku aprílmánaðar tóku allir nemendur SK próf á hljóðfærið sitt. Sumir taka próf samkvæmt skólanámskrá SK en aðrir taka áfangapróf í samræmi við nám- skrá tónlistarskóla frá Mennta- málaráðuneytinu. Þá koma lærðir prófdómarar í heimsókn til að gefa einkunn fyrir frammi- stöðuna og þá er sérlega mikil spenna í loftinu! Í maímánuði eru krakkarnir í SK oft sýnilegri en yfir vetrartímann enda hafa hljómsveitirnar gjarnan leikið á vorhátíðum hjá leik- og grunnskólum þegar vorar. Einnig geta bæjarbúar séð hluta sveitarinnar á stórtónleikum í Kórnum sunnudaginn 10. maí sem haldnir eru í tilefni sextugs- afmælis bæjarins. Skólahljómsveitin sjálf heldur upp á fimmtíu ára starfsafmæli sitt árið 2017 og er undibúningur vegna æfmælisins þegar kominn af stað. Fyrir skömmu fékk sveitin til dæmis styrk frá Lista-og menningarráði Kópavogs til að láta semja tónverk sem flutt verður á afmælistónleikunum í Hörpu í mars 2017. Tónskáldið er fyrrum nemandi hljómsveitar- innar Helgi Rafn Ingvarsson og einleik í verkinu leikur annar fyrrum nemandi, trompetleika- rinn Jóhann Már Nardeau. Stjórnandi Skólahljómsveitar Kópavogs undanfarin 20 ár er Össur Geirsson. aðSenT rauði KroSSinn Hljóðfæraleikarar í Skólahljómsveit Kópavogs. Að hátíðinni standa Guðný Guð- mundsdóttir, Tinna Þorsteinsdóttir og Fjóla Dögg Sverrisdóttir ásamt Listhúsi Kópavogsbæjar, lista- og menningarráði Kópavogs, menn- ingarskrifstofunni Curated Place í Englandi, Listaháskóla Íslands og Festival of Failure. Hátíðin er styrkt af Creative Europe - Kvikmynda og menningaráætlun ESB, Kópavogs- bæ, Ernst von Siemens Music Found-ation og Tónlistarsjóði menntamálaráðuneytisins. Nánari upplýsingar um dagskrána má sjá á vef og samfélagsmiðlum hátíðarinnar. Tímasetningar og nánari dagskrá verður sent út er nær dregur hátíðinni. Heimasíða: www.cycle.is Facebook: https://www.facebook. com/cyclemusicandartfestival Twitter: https://twitter.com/ cycle_festival húsnæði árið 2002. Í Sunnuhlíð byrjuðu síðan hinir svokölluðu sjúkravinir sem við þekkjum í dag sem heimsóknavini. Það eru sjálfboðaliðar sem heimsækja félagslega einangrað fólk og veitir þeim vinskap, en heimsóknavinir spila enn stóran sess í starfsemi Sunnuhlíðar. Dvöl, athvarf fyrir fólk með geð- raskanir, var opnað 10. október 1998. Rauði krossinn tók þátt í rekstri athvarfisins allt til 2013 þegar Kópavogsbær tók alfarið við rekstrinum. Í dag mæta þó sjálfboðaliðar Rauða krossins í Kópavogi reglulega í Dvöl og taka þátt í félagsstarfinu þar. Skyndihjálp er eitt af áhersluverk- efnum Rauða krossins og Kópavogsdeild hóf kennslu í skyndihjálp árið 1979, fyrst í 12 ára bekkjum í grunnskólum bæjarins. Síðan þá hafa verið haldin regluleg námskeið í skyndihjálp og í fyrra voru skyndihjálparkynningar í öllum grunnskólum bæjarins. Rauði krossinn í Kópavogi fór af stað með verkefni hönnuð til að rjúfa félagslega einangrun inn- flytjenda. Fyrsta verkefnið fór af stað árið 2004 og enn í dag eru fjölbreytt verkefni sniðin að þörfum innflytjenda á vegum Rauða krossins í Kópavogi. Rauði krossinn í Kópavogi gegnir mikilvægu starfi m.a. í samstarfi við Kópavogsbæ. Ef þig langar að taka þátt hafðu þá samband í síma 570 4060 eða á kopavogur@red- cross.is. Sjálfboðaliðar Rauða kro- ssins í Kópavogi eru og hafa verið drifkraftur verkefna í bæjarfélag- inu í tæp 60 ár. Önnumst alla þætti þjónustunnar með virðingu og umhyggju að leiðarljósi Útfarar- og lögfræði- þjónusta Vesturhlíð 2 - Fossvogi - Sími: 551 1266 - www.utfor.is Við þjónum allan sólarhringinn Hugrún Jónsdóttir útfararstjóri Rósa Kristjánsdóttir útfararstjóri Elín Sigrún Jónsdóttir framkvæmdastjóri Þorsteinn Elísson útfararþjónusta Snævar Jón Andrésson útfararþjónusta Ellert Ingason útfararþjónusta Katla Þorsteinsdóttir lögfræðiþjónusta Gestur Hreinsson útfararþjónusta Jón G. Bjarnason útfararþjónusta Guðmundur Baldvinsson útfararþjónusta

x

Kópavogsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kópavogsblaðið
https://timarit.is/publication/1117

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.