Bæjarins besta - 24.02.1993, Side 7
BÆJARINS BESTA • Miðvikudagur 24. febrúar 1993
7
Austurlensk
matargerð
Síðara námskeiðiðsem
haldið verður að sinni er
tveggja kvölda námskeið í
austurlenskri matargerð
sem hefst miðvikudags-
kvöldið 17. mars.
Leiðbeinandi á nám-
skeiðinu verður Sigurvin
Gunnarsson fyrrum yfirmat-
reiðslumeistari á Hótel Sögu
en hann er einn þeirra sem
boðuðu breytta tíma í mat-
reiðslu hér á landi á átt-
undaáratugnum.
Námskeið Sigurvins kost-
ar kr. 4.800.- og eru upp-
skriftir og smökkun inni-
falin. Sigurvin verðurgesta-
kokkur á Hótelinu föstudags-
kvöldið 19. mars og laugar-
dagskvöldið 20. mars. Allar
frekari upplýsingarum nám-
skeiðin og borðapantanir
eru á Hótel Isafirði í síma
4111.
Tíðar
rafmagnstruflanir
AÐ SÖGN Jakobs Ólafs-
sonar hjá Orkubúi Vest-
fjarða er ástæða tíðra raf-
magnstruflana á Vest-
fjörðum að undanförnu sú
að vegna seltu og ísingar
hefur vesturlínan ekki
tollað inni. Það er sérstak-
lega Iínan frá Geiradal að
Mjólká sem verið hefur til
vandræða.
Jakob segir Orkubúið vera
búið að fá tilkynningu frá
Landsvirkjun þess efnis að
Landsvirkjunarmenn ætli að
auka einangrun á vesturlín-
unni þar sem truflanir hafa
verið tíðastar. „Við erum
að vona að það verði til
einhverra bóta en við erum
orðnir langþreyttir á að
bíða eftir því að þeir geri
einhverjar umbætur,” segir
Jakob. Hann kveður þó óvíst
hvenær hægt verður að
ráðast í þessar lagfæringar;
það veröi að gerast þegar
gott er veður og álag lítió.
Öldrunarþjónusta:
Heimahjúkrun og
heimilisþjónusta
undir einn hatt
Á DÖFINNI eru brey tingar
á tilhögun heimahjúkrunar
og heimilisþjónustu á Isa-
firði. Ætlunin er að setja
hvoru tveggja undir einn hatt
en fram að þessu hefur
heimahjúkrun heyrt undir
Heilsugæsluna á Isafirði -
það er ríkið - en heimilis-
þjónustan undir Isafjarðar-
bæ.
Um síðustu mánaðarmót lét
Guðrún Gunnarsdóttir deildar-
stjóri heimahjúkrunarinnar af
störfum en ástæða þess var,
samkvæmt heimildum BB,
ágreiningur við Guðmund
Marinósson framkvæmda-
stjóra FSI og Þorstein Jóhann-
esson yfirlækni. Ágreiningur-
inn mun hafa snúist um það
hvert væri raunverulegt starfs-
svið Guðrúnar.
Fylkir Ágústsson, formaður
stjórnar FSI, sagði í samtali
við BB að ákveðnar breyt-
ingar væru á döfinni en ekki
ætti að minnka þjónustuna.
„Við ætlum að setja heima-
hjúkrunina og heimilisþjón-
ustuna undir eina yfirstjóm svo
ekki verði skörun þarna á milli.
I stað tveggja stjórnenda og
tveggjagreiðenda verðureinn
stjórnandi og einn greiðandi,”
sagði Fylkir.
Hann sagði alls ekki standa
til að skerða þjónustuna á
neinn hátt, hún yrði veitt eins
og áður. Hér væri verið að
hagræða og koma á virkari og
betri stjórn og sambærilegar
breyti'ngar stæðu fyrir dyr í
mörgum öðrum sveitarfé-
lögum.
-hj-
Bolungarvík:
Mjölnir kaupir Hák
VÉLSMIÐJAN Mjölnir hf.
í Bolungarvík hefur fest kaup
á dýpkunarskipinu Háki sem
áður var í eigu Dýpkunar-
félagsins á Siglufirði scm
varð gjaldþrota.
Ráðgert er að Hákur verði
fyrst um sinn notaður til að
klára þau verkefni sem Dýpk-
unarfélagið var með, en náði
ekki að klára fyrir gjaldþrotið,
m.a. á Isafirði, þar sem átti
eftir að ljúka við dýpkun
hafnarinnar.
-s.
Æfing Skutuls, Tinda og Ernis:
Velheppnuð björgunaræfing
UM SÍÐUSTU helgi héldu
slysavarnarsveitirnar Skutull á
ísafirði, Tindar í Hnífsdal og
Ernir í Bolungarvík sameiginlega
björgunaræfingu. Að sögn Jóns
Guðbjartssonar hjá Erni gekk
æfingin vel í flesta staði og mark-
mið hennar náðust.
..Æfingin byggðist á því að við
vildum fá stjórnþáttinn í skoðun
og eins vildum við sjá viðbrögðin
við því að lenda [ vandræðum í
útkalli. Þess vegna settum við æf-
inguna upp í þremur hollum og
rugluðum þeim síóan mcð nýjum
útköllum og nýjuni uppákomum í
stanslaust þrjá klukkutíma,” sagði
Jón í samtali við BB.
Hóparnir þrír þurftu að glíma
vió margvíslegar uppákomur
á æfingunni og útköllin dundu á
mannskapnum hvert ofan í annað
og reyndi mikið á flokksstjóra og
stjórnendur að nýta mannskap og
tæki sem best á hverjum stað, færa
menn á milli og deila út hinum
margvíslega verkefnum sem leysa
þarf. „Þetta tókst allt ágætlega en
auðvitað komu í Ijós ýmsir mein-
bugir sem laga þarf. Ut á það gekk
einmitt æfingin; að sýna mannskap-
num hvað þarf að laga. Og við
munum fara yfir þaó með
mönnunum hvað betur má fara
næstu vikurnar,” sagði Jón. Hann
sagði sveitirnar ágætlega tækjum
búnarog mannskapurinn væri nijög
góður og legði sig allan fram.
Næsta æfing er fyrirhuguð að
Núpi í Dýrafirði í vor og þá
meó þátttöku allra slysa- og björg-
unarsveita á Vestfjörðunt.
-hj
ísafjöröur:
/
UM SIDUSTL helgi fór
fram á vcgum Bílaleigunnar Ernis hf. á Isafirði ein stærsta
vélsleðasýning sem haldin hefur veriðá ísaftrði.
Að sögn Magnúsar Jóhannssonar, eins af eigendum Bílaleigunnar Ernis tókst sýningin í
ulla stað vcl en um tvö hundruð manns litu inn hjá þcim fclögum þá tvo daga scm sýningin
stóð yfir. Fjórir sleöar seldust á sýningunni og er því heildarsalan á þessurn vetri komin á
fjórða tuginn. Magnús sagðist eiga von á góðri sölu á næstu vikum enda færi á næstunni í
gang einn aöaltími vélsleðamanna. Framundan hjá fyrirtækinu eru bílasýningar þar sem
það helsta og nýjasta t þeim geira verður til sölu og sýnis
Mörg snjóflóö í gær:
Bílar lokaðir inni
milli snjóflóða
VEGAGERÐIN gat ekki
mokað veginn til Bolung-
arvíkur né Súðavíkur í gær-
morgun vegna sífelldra snjó-
flóða sem féllu á veginn.
Bílar lokuðust inni á milli
flóða en vegagerðarmenn að-
stoðuðu fólk við að komast
leiðar sinnar. Klukkan tíu í
gærmorgun varveginum lokað
en einhverjir lögðu þó í hann
út eftir. Þeir hinir sömu komust
ekki langt á bílum sínum því
þeir lokuðust inni á milli
flóða. Þeirsem íbílunum voru
komust þó fótgangandi á leið-
arenda. Þegar síðast fréttist
voru bílarnir enn fastir á
veginum.
Rétt um kl. tólf í gærdag féll
snjóflóð á miðjum Hnífsdals-
vegi og lokaði veginum. Hann
var þó fljótlega opnaður aftur
af gröfu frá bænum en áður
hafði einni bifreið verið ekið
upp í mitt flóðið en ökumaður
hennar hafói lítið séð til
vegna skafrennings. -hj
Þróunarsamtökin:
Fundur um
vöruþróun
smáfyrirtækja
Á LAUGARDAG halda
Þróunarsamtök Vestfjarða
fund á Hótel Isafirði um
vöruþróun í smáfyrirtækj-
um.
Frummælendur á fundinum
verða Karl Friðriksson verk-
efnisstjóri Iðntæknistofnunn-
ar, Guðmundur Stefánsson
deildarstjóri vinnslu og vöru-
þróunardeildar Rannsóknar-
stofnunnar fiskiðnarins og
Guðbrandur Sigurðsson for-
stöðumaður markaðs og þró-
unarsviðs Islenskra sjávaraf-
urða.
Á alþjóðlegan mælikvaróa
eru flest fyrirtæki á Islandi smá-
fyrirtæki en frummælendurnir
þrír eru þeir sem hvað mesta
þekkingu hafa á vöruþróun á
landinu í dag og stjórnendur
allra fyrirtækja, sama á hvaða
sviði er, ættu að geta haft gagn
af þessum fundi. Fundurinn
hefst klukkan tíu að morgni,
verð er tvö þúsund krónur og
er þá kaffi og meðlæti inni-
falið. -hj
Bæjarins besta:
Nýr blaða-
maður
í SÍÐUSTU viku tók til
starfa á blaðinu nýr blaða-
maður, Haraldur Jónsson.
Haraldurer27 áragamall og
hefur starfað sem blaðamaður
í Reykjavík undanfarin misseri.
Hann er kvæntur Steinunni
Þorsteinsdóttur, sagnfræöi-
nema við Háskóla Islands.
Blaðið býður Harald vel-
kominn til starfa. Jafnframt er
Margréti Björku Arnardóttur,
fráfarandi blaðamanni þökkuð
vel unnin störf, en hún er nú
farin til heimabyggðar sinnar,
Siglufjarðar. .s
NYJAR
MYNDIR
VIKULEGA -
SHINING THROUGH
Shoning Through er frábær
stórmynd með fjölda
góðra leikara. Fara þar
fremst í flokki þau Michael
Douglas og Melanie
Griffith í hlutverkum
njósnara sem takast á við
þýska herinn.
Hann er yfirmaður í
hernum, hún er ritari hans.
Það átti fyrir þeim að
liggja aó verða njósnarar
og elskendur...
THESUPER
Louie Kritski er leigusali.
sem hirðir lítt um hag
viðskiptavina sinna. Hann
er saniviskulaus og það
bítur ekkert á hann, jafnvel
þó húsnæði hans sé
heilsuspillandi og beinlínis
hættulegt. Hann hefur oft
verið kærður, en er nú
dæmdur til að búa í einni
íbúðinni þar til
nauðsynlegar viðgerðir
hafa farið fram á húsinu...
JR-VIDEO
MÁNAGÖTU6
@ 4299