Bæjarins besta


Bæjarins besta - 08.02.1995, Blaðsíða 1

Bæjarins besta - 08.02.1995, Blaðsíða 1
OHAÐ FRETTABLAÐ A VESTFJORDUM STOFNAÐ 74 NOVEMBER 1984; BÆJAMNS BESTA * MIÐVIKUBAGUB 8. FEBBÚAB1995 • 6. TBL. • 12. ÁBG. • VEBBKB. 179 M/VSK Súðavík Ráðgert að bygging hefjist 7. /77c?/ Botungarvík Þrír sýknað- ir af svikum með verð- iítii hús^r^ Súðavfk og fjöimiðiar- mr Flateyri Hreppsnefnd mótmæ/ir vinnubrögð- um við mokstur^ Skíóasvæðið ísafjarðar- kaupstaður fær 90 miiijóna^ króna bætur Heimingur vinnufæra manna á Þingeyri atvinnuiaus Ásjöttatug einstald- inga atnnnulausir - ef nauðasamningar nást hjá Fáfni, á ég von á að vinna fari á fullt skrið á ný, segir Jónas Olafsson, sveitarstjóri á Þingeyri í SIÐASTA blaði var greint frá því hér í blaðinu að Héraðs- dómur Vestfjarða hefði samþykkt að veita Fáfni hf., á Þingeyri heimild til að leita nauðasamninga við lánadrottna fyrirtækisins. I sömu frétt var haft samband við Magnús Guðjónsson, framkvæmdastjóra fyrirtækisins, þar sem hann lýsti því yfir að næg vinna hefði verið hjá frystihúsinu undanfarnar vikur og það sama væri að segja um framhaldið. Eftir að blaðið kom á götur Þingeyrar, hefur símhringinum ekki linnt frá staðnum og voru allir viðmælendur blaðsins sammála um að orð framkvæmda- stjórans væru markleysa ein. tugir manna hefðu gengið um atvinnulausir undanfarnar vikur og nokkrir hefðu verið án at- vinnu frá því á haustdögum. Frá Þingeyri. Heimingur atvinnufæra manna á staðnum er án atvinnu í dag. „Það er rétt að það er fjöldi manns á atvinnuleysisskrá. I síðustu viku voru þessir ein- staklingar 52 að tölu en sumir þeirra höfðu haft einhverja at- vinnu ívikunni. Þettaersáfjöldi sem hefur að jafnaði verið at- vinnulaus hér á staðnum frá ára- mótum og framundan er stopul vinna. Eg vil ekki leggja mat á orð framkvæmdastjórans en því miðurhefur lítið verið um vinnu í frystihúsinu. Eg held að um þrjátíu manns séu að staðaldri án atvinnu hjá fyrirtækinu, sem svarar til um helmings starfs- fólks. Eg er að vísu ekki öllum hnútum kunnugur þar en þetta er mitt mat," sagði Jónas Olafs- son, sveitarstjóri á Þingeyri í samtali við blaðið. Jónas sagði að nokkrir ein- staklingar á staðnum hefðu verið atvinnulausir frá því á haustdögum en sem betur fer væru þeir fáir. ,,Eg sé ljós framundan ef nauðasamningar nást hjá Fáfni. Þá geri ég ráð fyrir að vinna fari á fullt skrið á ný en í dag er ástandið ekki gott. Helmingur íbúanna er at- vinnulaus og það telst ekki gott ástand,” sagði Jónas. „Eg veit ekkert um samtal þitt við Magnús en við höfum frá áramótum haft vinnu fyrir 20-30 manns. Það er ekki sá fjöldi sem áður var því þegar starfsmennirnir voru sem flestir, voru þeir 45. Helmingurinn er því atvinnulaus ef miðað er við hópinn þegar hann er hvað stærstur. Hins vegar hefur það verið viðloðandi hér að fólk hefur sótt um vinnu á veturna þegar maður hefur engan haft fiskinn og svo hefur það ekki viljað vera í vinnu þegarmaður hefurhaft fiskinn. Það má segja að ef allir hefðu fengið vinnu í dag væru hér 35 manns en eru 20-30. Eg er með fisk til vinnslu út þessa viku en ég veit ekki hvernig verður með þá næstu. Eg sé þó að það verður vinna hér megnið af febrúar.” sagði Leifur Eiríksson, verkstjóri hjá frystihúsinu á staðnum í sam- tali við blaðið. Skutuisfjörður ísafjarðarkaupstaður vill kaupa Neðri-Tungu BÆJARSTJÓRANUM á ísa- firði, Kristjáni Þór Júlíussyni, hefur verið falið að ganga til viðræðna við eigendur jarðar- innar Neðri-Tungu í Skululs- firði um hugsanleg kaup bæjar- sjóðs Isafjarðar á jörðinni. Eigandi jarðarinnar er Ríkis- sjóður Islands en gert er ráð fyrir að andvirði jarðarinnar renni til Svæðisskrifstofu mál- efna fatlaðra á Vestfjörðum. „Gildandi aðalskipulag gerir ráð fyrir að íbúðabyggð verði á svæðinu sem og opin svæði, því leggjum við áherslu á að kaupa jörðina,” sagði Kristján Þór í samtali við blaðið. Hann var ófáalegur til að gefa upp hugsanlegt kaupverð á meðan að samningaviðræður stæðu yfir. Þorri biótaður Hjáiparsveit skáta á ísafirði héit sitt áriega þorra- biót í Tjöruhúsinu í Neðstakaupstað síðastliðið iaugardagskvöid. Fyrrum daginn fórfram Þorra- mót sveitarinnar á nýja skiðasvæði ísafjarðar, en mótið felst í ýmsum nýstáriegum keppnis- greinum vetraríþróttafiórunnar. Hér er það sjáift aiisherjargoð kvöldsins, Kristján Jónsson, sem útbýr al-íslenskan málsverð á diskinn sinn. RITSTJÓRN ** 4560 • FAX ** 4564 • AUGLYSINGAR OG ÁSKRIFT ** 4570

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.