Bæjarins besta - 08.02.1995, Síða 2
Fórstu út
fyrir vald-
syió þitt,
Óiafur
Heigi?
Ólafur Helgi Kjartans-
son, formaður Almanna-
varna ísafjarðar:
,,Nel, en það er auðvelt
að vera vitur eftir á. Að-
stæðurnar í Súöavík voru
mjög slæmar að sögn
þeirra sem á staðnum voru
og dreg ég ekki í efa að sú
lýsing varekki orðum aukin.
Við sem uþþlifðum veður-
haminn á ísafirði þennan
sama dag gleymum því
seint. Það er skylda þeirra
sem stjórna björgunarað-
gerðum að reyna eftir
fremsta megni að tryggja
öryggi björgunarmanna og
annarra á leitarstað og skylt
er að takmarka umferð á
hættusvæði við þá eina,
sem eiga þangað brýnt
erindi. Þar er auðvitað fyrst
og fremst átt við björgunar-
menn og hjálþarlið.
Fréttamenn voru ekki út-
búnir til þess að vera á
hættusvæði. Reynt var að
gæta þess að skiþta út
björgunarmönnum og ekki
má gleyma því að tak-
markaðurfjöldi komst að til
leitar. Ég var ekki á stað-
num, en þar var mjög
traustur vettvangsstjóri,
Snorri Hermannsson,
margreyndur þjörgunar-
sveitarmaður og vel þjálf-
aöur. Uþþlýsingar hans
reyndust mjög glöggar og
skýrar.
En af þessum atþurðum
má ýmislegt læra og f rétta-
menn, almannavarnamenn
og stjórnendur þjörgunar-
sveita ættu að setjast niður
og meta reynsluna. Engir
fréttamenn eru mér vitan-
lega þjálfaðir sérstaklega til
að takast á við þessar að-
stæður. En úr því má bæta.
Þeir gætu svo aflað mynda,
bæði Ijós- og kvikmynda,
sem allir fjölmiðlar ættu að-
gang að, ásamt almanna-
vörnum.
Þvi má ekki gleyma held-
ur að svo vel tókst til að ekki
féllu snjóflóð á leitarmenn.
En enginn vissi það fyrir-
fram.”
Blaðamannafélag ís/ands
hélt fund í síðustu viku um
fjölmiðla og náttúruham-
farimar f Súðavík. Á fundi-
num beindust skeytin
harkalega að Ólafi Helga
Kjartanssyni, sýslumanniog
formanni A/mannavama á
ísafirði en margir fundar-
menn tö/du að hann hefði
farið út fyrir vaidsvið sitt er
hann takmarkaði mjög
fréttafiutning frá svæðinu.
Hefur Stöð 2 sent inn kvört-
un vegna þessa tii dóms-
máiaráðherra og einnig
bíða biaðamann syðra eftir
viðbrögðum Aimannavama
ríkisins en vinnubrögð Óiafs
Hetga munu ekkihafa verið
ísamræmi við starfsaðferðir
þeirra.
Fjöhnenni var á borgarafundinum á sunnudaginn.
Fjöimennur borgarafundur um máiefni Súðavíkur
Ráðgert að hefja bygg-
ingaframkvæmdir eftir
nýju deiliskipulagi 1. maí
Féiagsmáiaráðherra, Rannveig Guðmundsdóttir
var á meðai gesta á fundinum.
FJÖLMENNI var á borgara-
fundi, sem Súðavíkurhreppur
boðaði til um málefni staðarins
í grunnskólanum í Súðavík á
sunnudaginn. Meðal viðstaddra
á fundinum var félagsmálaráð-
herra, Rannveig Guðmunds-
dóttir og aðstoðarmenn hennar
þau Berglind Asgeirsdóttir og
Húnbogi Þorsteinsson auk Guð-
mundar H. Ingólfssonar, starfs-
manns sjóðstjórnar söfnunar-
innar Samhugur í verki.
„Þessi fundur var fyrst og
fremst upplýsingamiðlun, þar
sem útskýrt var fyrir íbúunum
hvað við erum að gera og að
hverju væri stefnt. Það sem
kannski er mest um vert er að
við gerum ráð fyrir að hægt
verði að byrja að vinna eftir
nýju deiliskipulagi þann 1. maí
sem og að hægt verður að
hefjast handa við að koma upp
bráðabirgðahúsnæði á næstu
dögum. Félagsmálaráðherra
kom með þau boð að ríkið
myndi sjá til þess að nettó-
kostnaður vegna þessa yrði
borinn af ríkinu. Við munum
kaupa sumarbústaði, setja þá
upp og selja síðan aftur þegar
nýtt þorp verður risið. Sá
kostnaður sem fellur á sveitar-
félagið vegna þessa mun ríkið
kosta,” sagði Jón Gauti Jóns-
son, starfandi sveitarstjóri í
Súðavík í samtali við blaðið á
tnánudag.
„Það er ljóst að það er einhver
kostnaður samfara þessu en
þarna eru góðar aðstæður, flatt
land, rafmagn, skólp, vatn og
sími. Þetta verður eins ódýrt og
hægt er og það sama má segja
um undirstöður húsanna. Deili-
skipulagið fer í lokaða sam-
keppni á næstu dögum og okkar
vonir standa til að hægt verði
að hefja byggingu á nýrri Súða-
vík á Eyrardalssvæðinu þann 1.
maí. Það er ekki Ijóst á þessari
stundu hversu mörg hús verða
þama en við erum að tala um að
flytja þorpið í heilu lagi. Við
tökum gömul timburhús af
sökklum og steypum undir þau
upp á nýtt. Þá höfum við haft
fregnir af því að hægt sé að
flytja steinhús og við munum
skoða þau mál.”
Jón Gauti sagði að á þessari
stundu lægi ekki fyrir hversu
mikill kostnaður yrði samfara
því að byggja upp nýja Súða-
vík en Ijóst væri að bætur þær
sem hreppurinn fengi úrBjarg-
ráðasjóði kæmu þar vel á móti.
„Sveitarfélagið fær bætur fyrir
götur og lagnir, Ijósastaura og
gangstéttir og þeir fjármunir
fara í gatnagerð á nýju svæði en
það liggur ekki fy rir hver endan-
legur kostnaður verður.
Það sem var brýnast á vörum
íbúanna voru skólamálin. Fólk
er að vinna hér, það getur ekki
flutt hingað því enginn skóli er
á svæðinu. Þetta hangir allt
saman og við erum að reyna að
leysa þessi mál og munum
reyna að hraða þeim eins og
kostur er,” sagði Jón Gauti.
Skóiamáiin voru efst í huga Súðvíkinga á fundinum.
Styrkur tii
Edinborg-
arhússins
Á 2.015 fundi bæjar-
ráðs ísafjarðar sem
haldinn var fyrir stuttu
var lagt fram bréf frá
Guðrúnu Guómunds-
dóttur, forstöðumanni
Edinborgarhússins hf.,
meó beiðni um nióur-
fellingu fasteigna-
gjalda vegna fast-
eignarinnar við Aðal-
stræti 7 auk fjár-
veitingu til menningar-
miðstöóvarinnar í
Edinborgarhúsinu.
Bæjarráð samþykkti
að veita styrk sem
nemur fasteignaskatti
þess hluta húsnæðis-
ins við Aðalstræti 7
sem er notaóur til
félags- og/eóa menn-
ingarstarfsemi en
hafnaói frekari styrk-
veitingu til handa
félaginu.
Nýtt
fréttabiað,
Víkarinn
Fyrir stuttu bættist
nýtt fréttablaó í fjöl-
miðlaflóru Vestfirðinga.
Blaðið sem hlotið hefur
nafnið Víkarinn og er
gefið út í Bolungarvík,
mun verða dreift án
endurgjalds í hvert hús
í bænum en kostnaður
við útgáfuna verður
fjármagnaóur með
auglýsingum. Út-
gefandi Víkarans er
Magnús Hávaróarson,
rekstraraóili skemmti-
staðarins Víkurbæjar.
Víkarinn er í A-4 broti
og vonast útgefandinn
til að geta gefió blaðið
út á tveggja vikna
fresti og þá í stæróinni
4-8 síður. Fyrst um
sinn verður blaðið án
mynda en vonir standa
ti að bót verói unnin á
þeim byrjunaröróug-
leikum innan skamms
tíma. BB býður Vík-
arann velkominn í hóp
vestfirskra blaóa.
Tvö gistu
fanga-
geymsiur
Tveir einstaklingar
gistu fangageymslur
lögreglunnar um
síðustu helgi. í öðru
tilfellinu var um að
ræða ölvaðan karl-
mann sem ekki fékkst
til að upplýsa um
heimilisfang sitt og í
hinu tilfellinu var um
að ræða unga konu
sem lét svo ófriðlega
að lögreglan gat ekki
fyrir nokkurn mun
sleppt af henni hend-
inni. Fékk hún því
öruggt húsaskjól á
hörðum bekk fanga-
klefans.
2
MIÐVIKUDAGUR 8. FEBRUAR 1995