Bæjarins besta - 08.02.1995, Page 12
VIFILFELL HF
Sími 5490
Fax 5491
Opið frá kl. 8 til 17
- þegar aiþingi hefur samþykkt breytingar á ákvæði til laga um
Viðlagatryggingu sem tekin verður fyrir á næstu dögum
„ÞAÐ er ekki kominn endan-
leg dagsetning ennþá en björt-
ustu vonir manna standa til að
hægt verði að opna svæðið
mánudaginn 20. febrúarnk. Við
erum að vonast til að fulltrúi
ítalska fyrirtækisins, sem selur
okkur lyfturnar, geti komið
hingað í næstu viku en hann
mun sjá um að fínstilla allan
tækjabúnaðinn sem og að
splæsa saman víra. Gangi það
eftir gæti svæðið opnast þann
20.,” sagði Eyjólfur Bjarnason,
forstöðumaður tæknideildar
Isafjarðarkaupstaðar í samtali
við blaðið á mánudag.
„Við höfum óskað eftir því
við bæjarráð að fá keyptan
annan snjótroðara en meðan að
ekki hefur verið gengið frá
/ J IJ ÓHÁÐ FRÉTTABLAÐ
I / #7 Á VESTFJÖRÐUM
öiurnHU /4. nuvcmocn iutw
HOLLAND ELECTRO ryksugur
Verð frá
kr. 12.945,-
HAFNÆRsfRkjI
í /eit að fæðu
Rjúpu þessa festi ijósmyndari BB á fiimu síðastiiðinn miðvikudag fyrir
utan hús Vegagerðar ríkisins í Dagverðardai, en þar varhún augijósiega
íætisieit. Mikiii snjór er tii fjaiia og þvíerfitt fyrir rjúpuna að afia sér fæðu
þar. Þá ieitar hún tii byggða, þar sem frekari von er á magafyiii.
þeim tryggingarbótum sem eiga
að koma úr Viðlagasjóði, hefur
ekki fengist heimild til kaup-
anna. Ég held að búið sé að
gera upp allt sem tryggt var en
þær bætur sem ríkisstjórnin
ætlaði að koma til okkar í
gegnum Viðlagatryggingu eru
mér vitandi ókomnar,” sagði
Eyjólfur.
„Við erum búnir að fá tjónið
greitt sem er um 30 milljónir
króna. Ríkisstjórnin eða Við-
lagatrygging mun síðan bæta
okkur upp restina en það er ekki
komið enn. Framhald fram-
kvæmda í dölunum tveimur
stranda á þessum fjármunum,
þar á meðal kaup á nýjum snjó-
troðara, en þetta setur okkur
ákveðnar skorður því við getum
ekki ausið endalaust úr bæjar-
sjóði. Það liggur fyrir skýr og
afdráttarlaus yfirlýsing frá
ríkinu þess efnis að þeir muni
bæta okkur tjónið og við höfum
enga aðra ástæðu en að treysta
því. Ég het'ekki nákvæma stöðu
í dag en við erum búnir að setja
töluvert fjármagn umfram bæt-
ur í þetta verkefni,” sagði
Kristján Þór Júlíusson, bæjar-
stjóri.
„Ástæðan fyrir því að þessir
fjármunir hafa ekki skilað sér
enn er sú að það var ekki búið
að afgreiða frumvarpið. Ég
vann að því í gær og fyrradag
að fá þingnefndina til að af-
greiða málið og það gerði hún á
fundi sínum í morgun. Þar er
búið að gera ráð fyrir því að sú
breyting verði gerð á ákvæði til
bráðabirgða í lögum til Við-
lagatryggingu að Viðlagasjóður
skuli greiðaþetta. Hérerum að
ræða 90 milljónir króna sem
greiddar verða til bæjarfélagsins
um leið og þetta hefur verið
afgreitt sem lög frá alþingi og
því ætti þetta ekki að taka
langan tíma til viðbótar. Þetta
er komið í gegnum þingnefnd-
ina en það hefur tekið alltof
langan tíma að mínu mati,”
sagði Sighvatur Björgvinsson,
ráðherra í samtali við blaðið.
Hvers vegna bjóða F/ug/eiðir upp á f/eiri ferðir ti! Vestmannaeyja en
ísafjarðar þrátt fyrir minni farþegafjöida?
Náum ekki fleiri ferðum vegna birtuskilyrða
- segir Páll Halldorsson yfírmaður innanlandsflugs Flugleiða
ÁHUGAMAÐUR um flug-
samgöngur til og frá norðan-
verðum Vestfjörðum hafði sam-
band við blaðið og benti á það
misræmi sem væri í sætafram-
boði Flugleiða til svæðisins,
samanborið við Vestmanna-
eyjar, þrátt fyrir að yfir 3.200
fleiri farþegar færu með félag-
inu til Vestfjarða. Benti við-
komandi á, að á báðum þessum
stöðum byggju um fimm þús-
und manns og að á árinu 1993
het'ðu 38.313 farþegar flogið
með Flugleiðum til Eyja en
41.512 farþegar til norðan-
verðra Vestfjarða. Til Vest-
manneyja bjóða Flugleiðir þrjár
ferðir á dag að vetrarlagi, eða
19 ferðir á viku á sama tíma og
aðeins tvær ferðir væru til ísa-
fjarðar, eða þrettán ferðir á viku.
Til að fá upplýsingar um þennan
mismun á sætaframboði hafði
blaðið samband við Pál Hall-
dórsson, yfirmann innanlands-
flugs Flugleiða.
„Aðalatriðið eru birtuskil-
yrðin á ísafirði. Við náum ekki
fleiri en tveimur ferðum á dag
yfir vetrartímann vegna þessa.
Við þurfum að lýsa upp fjöllinn
í kring til þess að geta flogið til
ísafjarðar í myrkri en það er of
kostnaðarsamt fyrir okkur.
Hvað varðar þriðju ferðina til
Vestmannaeyja, þá var sú ferð
sett upp á meðan að við höfðum
fjórðu flugvélina f rekstri en
þar sem hún hefur verið leigð
til Svíþjóðar eigum við í erfið-
leikum með að standa við þá
áætlun. En fyrst of fremst eru
það birtuskilyrðin sem há okkur
á ísafirði,” sagði Páll.
Sami áhugamaður um flug-
samgöngur til og frá norðan-
verðum Vestfjörðum vildi einn-
ig fá að vita, hvenær lágmarks
öryggiskröfum til flugsá vegum
félagsins til Vestmannaeyja hafi
verið breytt og hvers vegna?
„Breytingarnar hafa staðið
yfir um tveggja ára skeið og í
raun voru reglurnar hertar.
Flugmálastjórn gefur út reglur
sem gilda fyrir ákveðinn vind í
ákveðnum stefnum. Síðan gefa
Flugleiðir út sérreglur sem
byggjast á reglum Flugmála-
stjórnar og hæfni Fokker-vél-
anna. I Vestmannaeyjum, þar
sem ég þekki vel til, munar
stundum 4-5 hnútum í ákveðn-
um vindáttum þar sem okkar
reglureru lægri ogástæðan fyrir
því að þessum lágmarkskröfum
var breytt, er sú að búið er að
setja upp ný aðflugstæki í Vest-
mannaeyjum. Það hafa verið
sett upp Ijós í fjöllin í kringum
völlinn, stefnuvita og fleira og
allt þetta hefur bætt flugskil-
yrði til Eyja á sama tíma og
skilyrði til flugs til Isafjarðar
hafa verið óbreytt. Til að ná
sömu hæfni út af flugskilyrðum
til ísafjarðar þurfum við að fara
út miklar framkvæmdir auk
þess sem allaraðstæðureru mun
erfiðari,” sagði Gunnar Sigur-
finnsson hjá Flugleiðum í sam-
tali við blaðið.
RITSTJORN
4564 • AUGLYSINGAR OG ASKRIFT